Skattar og op­in­ber gjöld

Sjálfstætt starfandi skrá sig á launagreiðendaskrá, reikna sér endurgjald og skila mánaðarlega staðgreiðslu og tryggingagjaldi. Velta yfir tilteknum mörkum leiðir einnig til virðisaukaskattsskyldu.

Skil á sköttum og gjöldum af reiknuðu endurgjaldi eru forsenda réttinda á borð við atvinnuleysisbætur og greiðslur í fæðingarorlofi.

Skráning

Sá sem hefur sjálfstæða starfsemi sendir Skattinum tilkynningu til launagreiðendaskrár og, ef starfsemin er virðisaukaskattsskyld, virðisaukaskattsskrár. Tilkynninguna skal senda á þjónustuvef Skattsins átta dögum áður en starfsemi hefst.

Reiknað endurgjald

Sá sem starfar við eigin atvinnurekstur á að reikna sér endurgjald, þ.e. laun, fyrir vinnu sína. Endurgjaldið á ekki að vera lægra en hann hefði haft sem laun fyrir sama starf hjá óskyldum eða ótengdum aðila.

  • Ríkisskattstjóri setur árlega reglur um reiknað endurgjald með viðmiðunarfjárhæðum fyrir einstakar starfsstéttir.
  • Reglurnar gilda einnig um vinnu fyrir einkahlutafélag eða annað félag sem maður á eða ræður yfir.
  • Heimilt er að lækka viðmiðunarfjárhæðirnar ef viðkomandi gegnir öðru launuðu föstu starfi.
  • Af reiknuðu endurgjaldi er greidd staðgreiðsla, tryggingagjald og iðgjald í lífeyrissjóð.

Reiknað endurgjald hefur bein áhrif á rétt þinn til atvinnuleysisbóta og greiðslna í fæðingarorlofi. Of lágt reiknað endurgjald getur skert þessi réttindi.

Staðgreiðsla og tryggingagjald

  • Staðgreiðslu og tryggingagjaldi af reiknuðu endurgjaldi er skilað mánaðarlega og eru skil 15. hvers mánaðar.
  • Tryggingagjald er 6,35% á árinu 2026.
  • Ef starfsemi er svo óveruleg að reiknað endurgjald fer ekki yfir 700.000 kr. á ári (2026) er það ekki staðgreiðsluskylt. Það skal þó alltaf telja fram á skattframtali.

Virðisaukaskattur

  • Almennt þrep virðisaukaskatts er 24% og lægra þrep 11%. Tiltekin vara og þjónusta telst ekki til skattskyldrar veltu.
  • Þeir sem selja skattskylda vöru eða þjónustu fyrir minna en 2.000.000 kr. (án virðisaukaskatts) á hverju tólf mánaða tímabili þurfa ekki að skrá sig á virðisaukaskattsskrá. Undanþágan er valkvæð.
  • Fari veltan yfir 2.000.000 kr. á tólf mánaða tímabili verður skráning skylda. Tilkynna þarf um skráningu þegar ljóst má vera að salan muni ná mörkunum.
  • Þeir sem seldu fyrir minna en 4.000.000 kr. á almanaksári nota næsta almanaksár sem uppgjörstímabil ef reiknað endurgjald á mánuði er lægra en 200.000 kr.

Rekstrarkostnaður

Samkvæmt lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt má draga frá tekjum af rekstri þann kostnað sem gengur til að afla tekna, tryggja þær og halda þeim við. Kostnaður þarf að vera færður í bókhald og studdur reikningum eða öðrum fullnægjandi gögnum.

Ráðgjöf

  • Skatturinn svarar fyrirspurnum, meðal annars í gegnum Mínar síður.
  • Endurskoðendur og bókarar aðstoða við bókhald, skattskil og uppgjör.
  • Aðildarfélög BHM veita ráðgjöf um réttindi sjálfstætt starfandi.

Fjárhæðir á þessari síðu eiga við árið 2026.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt