Val á um­sækj­end­um og rétt­indi um­sækj­enda

Hjá ríki og sveitarfélögum er ráðning stjórnvaldsákvörðun. Ráða ber hæfasta umsækjandann og umsækjendur eiga meðal annars rétt á rökstuðningi og aðgangi að gögnum.

Hjá ríki og sveitarfélögum er ákvörðun um ráðningu í starf stjórnvaldsákvörðun í merkingu 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Um undirbúning hennar og töku gilda því stjórnsýslulög og óskráðar meginreglur stjórnsýsluréttar. Á almennum vinnumarkaði og hjá opinberum hlutafélögum og sjálfseignarstofnunum gilda þessar reglur að jafnaði ekki, en bann við mismunun gildir hjá öllum atvinnurekendum.

Hvernig á að velja á milli umsækjenda?

Reglan um hæfasta umsækjandann

Það er óskráð meginregla stjórnsýsluréttar að stjórnvaldi sem ræður eða skipar í opinbert starf beri að velja hæfasta umsækjandann. Hæstiréttur staðfesti þessa reglu í dómum sínum 19. desember 2017 um skipun dómara við Landsrétt. Hæfni er metin út frá þeim kröfum sem gerðar eru í lögum, þeim kröfum sem fram komu í auglýsingu og þeim sjónarmiðum sem stjórnvaldið ákveður að leggja til grundvallar, sbr. álit umboðsmanns Alþingis í máli nr. 10135/2019.

Stjórnvald hefur svigrúm til að ákveða á hvaða sjónarmiðum valið byggist, en sjónarmiðin verða að vera málefnaleg, svo sem menntun, starfsreynsla, hæfni og eftir atvikum persónulegir eiginleikar, sbr. álit umboðsmanns í máli nr. 10626/2020. Þegar sjónarmiðin hafa verið ákveðin verður að gera heildstæðan samanburð á umsækjendum á grundvelli þeirra, sbr. bréf umboðsmanns í máli nr. 12513/2024.

Stjórnvaldi er heimilt að hætta við ráðningu og ráða engan, en sú ákvörðun verður að byggjast á málefnalegum ástæðum.

Málsmeðferðarreglur

  • Rannsóknarreglan (10. gr. stjórnsýslulaga): afla þarf nægilegra upplýsinga um umsækjendur til að unnt sé að bera þá saman, til dæmis með viðtölum, umsögnum, verkefnum eða hæfnismati.
  • Jafnræðisreglan (11. gr.): umsækjendur skulu sitja við sama borð, til dæmis þegar kemur að viðtölum og upplýsingaöflun.
  • Andmælaréttur (13. gr.): ef aflað er upplýsinga sem umsækjandi hefur ekki átt kost á að tjá sig um og þær hafa verulega þýðingu getur þurft að gefa honum kost á að koma að athugasemdum.
  • Hæfisreglur (II. kafli): sá sem kemur að ráðningu má ekki vera vanhæfur, til dæmis vegna náinna tengsla við umsækjanda.
  • Skráning upplýsinga: upplýsingar sem fram koma í viðtölum og umsögnum og hafa þýðingu fyrir niðurstöðuna þarf að skrá.

Stjórnvald getur fengið ráðningarstofu eða ráðgjafa til að aðstoða við ráðningu, en það ber eftir sem áður ábyrgð á því að ráðningarferlið samrýmist lögum. Um tiltekin störf og embætti er kveðið á um hæfnisnefndir eða önnur sérstök matsferli í sérlögum.

Á ég rétt á rökstuðningi ef ég fæ ekki starfið?

Já, hjá ríki og sveitarfélögum. Stjórnvaldi ber að tilkynna umsækjendum um niðurstöðuna og leiðbeina þeim um rétt til rökstuðnings. Umsækjandi getur óskað eftir rökstuðningi innan 14 daga frá því að honum var tilkynnt um ákvörðunina og stjórnvaldið skal svara innan 14 daga frá því að beiðnin barst, sbr. 21. gr. stjórnsýslulaga. Í rökstuðningi skal koma fram á hvaða sjónarmiðum ákvörðunin byggðist og hvers vegna sá sem ráðinn var þótti hæfastur, sbr. 22. gr. laganna.

Á almennum vinnumarkaði er engin almenn skylda til að rökstyðja ráðningu.

Get ég fengið aðgang að gögnum um ráðninguna?

Umsækjandi er aðili máls og á rétt á aðgangi að gögnum málsins samkvæmt 15. gr. stjórnsýslulaga, þar á meðal að umsóknargögnum annarra umsækjenda og upplýsingum um mat á þeim. Takmarka má aðganginn að tilteknum gögnum ef hagsmunir annarra vega þyngra, sbr. 17. gr. laganna.

Almenningur á rétt á upplýsingum um nöfn og starfsheiti umsækjenda þegar umsóknarfrestur er liðinn, sbr. 4. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 og upplýsingalög nr. 140/2012. Önnur gögn sem varða ráðningu í opinbert starf eru undanþegin upplýsingarétti almennings.

Hvað get ég gert ef ég tel að gengið hafi verið framhjá mér?

Leitaðu til stéttarfélagsins

Aðildarfélög BHM aðstoða félagsfólk við að óska eftir rökstuðningi og gögnum og meta hvort tilefni sé til frekari aðgerða. Hafðu samband sem fyrst vegna frestanna hér að neðan.

Kvörtun til umboðsmanns Alþingis

Umsækjandi um starf hjá ríki eða sveitarfélagi getur kvartað til umboðsmanns Alþingis. Kvörtun skal bera fram innan árs frá því að ákvörðun var tekin, sbr. 6. gr. laga nr. 85/1997 um umboðsmann Alþingis. Starfssvið umboðsmanns nær ekki til opinberra hlutafélaga og sjálfseignarstofnana nema þeim hafi verið falið opinbert vald.

Álit umboðsmanns eru ekki bindandi að lögum með sama hætti og dómar. Stjórnvöld fara þó almennt eftir þeim og þau hafa verulega þýðingu við túlkun reglna um ráðningar. Umboðsmaður telur oft ólíklegt að annmarkar leiði til ógildingar ráðningar vegna hagsmuna þess sem ráðinn var, en beinir því til stjórnvaldsins að leita leiða til að rétta hlut umsækjandans, sbr. til dæmis álit í málum nr. 10135/2019 og 10592/2020.

Kæra til kærunefndar jafnréttismála

Telji umsækjandi að honum hafi verið mismunað vegna kyns eða annarra þátta sem lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna eða lög um jafna meðferð á vinnumarkaði vernda getur hann kært til kærunefndar jafnréttismála. Kæra skal berast innan sex mánaða frá því að vitneskja um ætlað brot lá fyrir, sbr. lög nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála. Úrskurðir nefndarinnar eru bindandi. Þetta úrræði stendur umsækjendum hjá öllum atvinnurekendum til boða. Sjá einnig Jafnrétti á vinnumarkaði.

Dómstólar og skaðabætur

Umsækjandi getur höfðað mál fyrir dómstólum. Til að fá bætur fyrir fjártjón þarf að jafnaði að sýna fram á að hann hefði fengið starfið ef rétt hefði verið staðið að ráðningunni. Miskabætur geta komið til greina samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 ef framganga stjórnvalds telst ólögmæt meingerð gegn æru eða persónu umsækjanda. Í dómum Hæstaréttar 19. desember 2017 um skipun dómara við Landsrétt var kröfum um bætur fyrir fjártjón hafnað en umsækjendum dæmdar miskabætur.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt