- Ráðning til starfa
- Auglýsing lausra starfa
- Val á umsækjendum og réttindi umsækjenda
- Starfsfólk ríkisins
- Embættismenn
- Starfsfólk sveitarfélaga
- Opinber hlutafélög, félög í opinberri eigu og sjálfseignarstofnanir
- Starfsfólk á almennum vinnumarkaði
- Ráðningarsamningar og reynslutími
- Tímabundnar ráðningar
- Hlutastörf
Skriflegur ráðningarsamningur tryggir að bæði starfsmaður og atvinnurekandi viti hvaða kjör og skyldur fylgja starfinu. Skýr samningur getur komið í veg fyrir ágreining síðar, einkum ef kjörin eru að einhverju leyti frábrugðin því sem almennt gildir. Skyldan til að gera skriflegan ráðningarsamning byggist á lögum hjá ríkinu en á kjarasamningum hjá sveitarfélögum og á almennum vinnumarkaði.
Þarf að gera skriflegan ráðningarsamning?
Ríkið
Veita skal starfsmanni upplýsingar um skipunar- eða ráðningarkjör þegar hann er skipaður eða ráðinn til starfa, sbr. 8. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Gera skal skriflegan ráðningarsamning milli forstöðumanns stofnunar og starfsmanns þar sem ráðningarkjör koma fram, sbr. 42. gr. laganna. Ráðherra hefur sett nánari reglur um form ráðningarsamninga og skyldu til að upplýsa starfsfólk um ráðningarkjör. Fyrirmynd að ráðningarsamningi er á Mannauðstorgi ríkisins. Um embættismenn gildir skipunarbréf. Sjá Embættismenn.
Sveitarfélög
Skylda til að gera skriflegan ráðningarsamning byggist á kjarasamningum aðildarfélaga BHM við Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg og samkomulagi um skriflega ráðningarsamninga sem fylgir þeim. Sjá Starfsfólk sveitarfélaga.
Almennur vinnumarkaður
Skyldan byggist á kjarasamningum. Í kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga BHM segir að við upphaf ráðningar skuli gerður skriflegur ráðningarsamningur, sbr. grein 5.1.1. Sambærileg ákvæði eru í öðrum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Ákvæðin eiga rætur að rekja til tilskipunar 91/533/EBE um skyldu vinnuveitanda til að skýra launafólki frá ráðningarskilmálum, sem innleidd var hér á landi með kjarasamningum.
Hvað þarf að koma fram í ráðningarsamningnum mínum?
Samkvæmt grein 5.1.4 í kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM skal ráðningarsamningur að lágmarki tilgreina:
- deili á aðilum, þar á meðal kennitölur,
- vinnustað,
- starfsheiti, stöðu eða stutta starfslýsingu,
- fyrsta starfsdag,
- lengd ráðningar ef hún er tímabundin,
- orlofsrétt,
- uppsagnarfrest,
- mánaðarlaun, aðrar greiðslur og hversu oft laun eru greidd,
- lengd venjulegs vinnudags eða vinnuviku,
- lífeyrissjóð,
- tilvísun í gildandi kjarasamning og stéttarfélag.
Hjá ríki og sveitarfélögum eru kröfurnar sambærilegar. Þar er að auki tilgreint hvort ráðning sé ótímabundin eða tímabundin, vinnutímaskipulag og starfshlutfall og réttur til launa í veikindum.
Gott er að tilgreina einnig menntun, fyrri starfsreynslu sem metin er til launa, áunnin réttindi og næsta yfirmann. Ef samið er um föst heildarlaun, til dæmis að þau feli í sér greiðslu fyrir yfirvinnu, þarf það að koma skýrt fram.
Störf erlendis
Ef starfsmaður á almennum vinnumarkaði er sendur til starfa erlendis í einn mánuð eða lengur skal hann fá skriflega staðfestingu fyrir brottför, sbr. grein 5.1.5 í kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM. Þar skal meðal annars koma fram áætlaður tími erlendis, í hvaða gjaldmiðli laun eru greidd, viðbótargreiðslur og skilyrði fyrir heimferð.
Hvað gerist ef enginn skriflegur ráðningarsamningur er gerður?
Ráðningarsamningur getur verið gildur þótt hann sé ekki skriflegur. Vanræki atvinnurekandi skyldu sína til að gera skriflegan ráðningarsamning getur það hins vegar haft áhrif á sönnun. Íslenskir dómstólar hafa í slíkum tilvikum lagt á atvinnurekanda að sanna hver ráðningarkjörin voru og látið vafa um þau koma starfsmanni til góða. Atvinnurekandi sem heldur því fram að ráðning hafi verið tímabundin ber sönnunarbyrði fyrir því.
Evrópudómstóllinn hefur talið að allir mikilvægir þættir ráðningarsambandsins, til dæmis skylda til að vinna yfirvinnu, þurfi að koma fram skriflega. Ef það er ekki gert ráðast afleiðingarnar af sönnunarreglum landsréttar, sbr. dóm í máli C-350/99, Lange.
Ef þú hefur ekki fengið skriflegan ráðningarsamning skaltu óska eftir honum og leita til stéttarfélagsins ef það gengur ekki eftir.
Breytingar á ráðningarkjörum
Á almennum vinnumarkaði skal staðfesta skriflega, innan mánaðar frá því að breyting tekur gildi, breytingar á ráðningarkjörum sem ganga lengra en leiðir af lögum eða kjarasamningi, sbr. grein 5.1.2 í kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM. Hjá ríkinu er starfsmanni skylt að hlíta breytingum á störfum sínum og verksviði, en leiði breyting til skerðingar á launum eða réttindum heldur hann fyrri kjörum út uppsagnarfrest, sbr. 19. gr. laga nr. 70/1996.
Reynslutími
Reynslutími gefur báðum aðilum færi á að meta hvort ráðningin henti. Á reynslutíma er uppsagnarfrestur styttri en ella, en að öðru leyti gilda sömu réttindi og skyldur. Í íslenskum lögum er hvorki almenn regla um hvort ráðning skuli vera til reynslu né um hámarkslengd reynslutíma. Lengd hans ræðst því af ráðningarsamningi og kjarasamningum. Mikilvægt er að tilgreina í ráðningarsamningi hvort samið sé um reynslutíma og hve langur hann sé.
Hversu langur má reynslutíminn vera?
- Ríkið: Samkvæmt leiðbeiningum ríkisins telst reynslutími yfirleitt þrír mánuðir ef lengd hans er ekki tilgreind í ráðningarsamningi. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á reynslutíma er yfirleitt einn mánuður miðað við mánaðamót. Reynslutíma má aðeins framlengja með samkomulagi við starfsmann áður en hann er liðinn. Að loknum reynslutíma er uppsagnarfrestur þrír mánuðir nema annað sé ákveðið í kjarasamningi, sbr. 1. mgr. 41. gr. laga nr. 70/1996.
- Sveitarfélög: Um reynslutíma fer samkvæmt kjarasamningum og því samkomulagi um réttindi og skyldur sem fylgir þeim.
- Almennur vinnumarkaður: Samkvæmt grein 5.3.1 í kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM er gagnkvæmur uppsagnarfrestur ein vika fyrstu þrjá mánuði í starfi, einn mánuður eftir þriggja mánaða samfellt starf og þrír mánuðir eftir sex mánaða samfellt starf. Heimilt er að semja um allt að sex mánaða reynslutíma með einnar viku gagnkvæmum uppsagnarfresti. Einnig má semja um að þriggja mánaða uppsagnarfrestur taki fyrst gildi eftir níu mánaða samfellt starf. Uppsagnir skulu vera skriflegar og á sama tungumáli og ráðningarsamningurinn.
Nýjar reglur sem ekki hafa tekið gildi
Tilskipun (ESB) 2019/1152 um gagnsæ og fyrirsjáanleg vinnuskilyrði kemur í stað tilskipunar 91/533/EBE. Hún kveður meðal annars á um að reynslutími skuli almennt ekki vera lengri en sex mánuðir, um rétt til að taka að sér störf hjá öðrum atvinnurekendum og um lágmarksfyrirsjáanleika vinnu. Tilskipunin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 221/2024 frá 23. september 2024 með stjórnskipulegum fyrirvara af hálfu Íslands.
Samkvæmt EES-gagnagrunni stjórnarráðsins hefur innleiðing tilskipunarinnar ekki hafist hér á landi. Hún hefur því ekki tekið gildi á Íslandi og veitir ekki réttindi samkvæmt íslenskum rétti að svo stöddu. BHM fylgist með framvindu innleiðingarinnar og þessi síða verður uppfærð þegar nýjar reglur taka gildi.