Or­lofs­rétt­ur

Allt launafólk á rétt á árlegu orlofi á launum. Í orlofsrétti felst annars vegar réttur til leyfis frá störfum til hvíldar og endurnæringar og hins vegar réttur til launa meðan á leyfinu stendur. Lög tryggja lágmarksrétt en kjarasamningar aðildarfélaga BHM veita að jafnaði ríkari rétt.

Hvar er kveðið á um orlofsrétt?

Samkvæmt lögum nr. 30/1987 um orlof eiga allir sem starfa í þjónustu annarra gegn launum rétt á orlofi og orlofslaunum (1. gr.). Lögin mæla fyrir um lágmarksréttindi. Samningur um minni rétt en lögin kveða á um er ógildur, en lögin rýra ekki víðtækari eða hagstæðari rétt samkvæmt öðrum lögum, samningum eða venjum (2. gr.).

Kjarasamningar aðildarfélaga BHM kveða á um lengra orlof og nánari reglur um framkvæmd orlofstöku. Réttur hvers og eins ræðst því af þeim kjarasamningi sem gildir um starfið.

Rétturinn á sér jafnframt stoð í 7. gr. tilskipunar 2003/88/EB um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma. Tilskipunin er hluti af EES-samningnum og tryggir launafólki minnst fjögurra vikna árlegt orlof á launum.

Hversu langt orlof á ég rétt á?

Samkvæmt orlofslögum er orlof tveir dagar fyrir hvern unninn mánuð á síðasta orlofsári. Hálfur mánuður eða meira telst heill mánuður. Fullt ársstarf veitir því rétt til 24 orlofsdaga. Sunnudagar og aðrir helgidagar teljast ekki til orlofsdaga og ekki heldur fyrstu fimm laugardagar í orlofi (3. gr.). Lágmarkið jafngildir fjórum vikum.

Í kjarasamningum er samið um lengra orlof:

  • Ríki, Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög: 30 dagar miðað við fullt ársstarf, óháð starfsaldri.
  • Almennur vinnumarkaður: Samkvæmt kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM 24 til 30 dagar eftir starfsaldri.

Í hlutastarfi og þegar unnið er hluta úr ári ávinnst orlof hlutfallslega. Nánari upplýsingar eru á síðunum Ríki og sveitarfélög og Almennur vinnumarkaður.

Hvenær ávinn ég mér orlof?

Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl. Á orlofsárinu ávinnur starfsfólk sér rétt til orlofs sem kemur til töku á næsta orlofsári. Orlof sem ávinnst frá 1. maí 2026 til 30. apríl 2027 er þannig tekið á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2027. Hjá hinu opinbera er áunnið orlof frá fyrra orlofsári kallað gjaldfallið orlof.

Tími sem starfsmaður er frá vinnu vegna veikinda eða slysa telst til vinnutíma við ávinnslu orlofs (3. gr. orlofslaga). Fæðingarorlof telst til starfstíma við mat á starfstengdum réttindum, svo sem orlofsrétti (14. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof).

Hver ákveður hvenær ég tek orlof?

Atvinnurekandi ákveður í samráði við starfsmann hvenær orlof er tekið. Honum ber að verða við óskum starfsmanns að svo miklu leyti sem unnt er vegna starfseminnar. Að lokinni könnun á vilja starfsmanns skal atvinnurekandi tilkynna svo fljótt sem unnt er, og í síðasta lagi mánuði fyrir upphaf orlofs, hvenær orlof hefst, nema sérstakar ástæður hamli (5. gr.).

Samkvæmt orlofslögum skal orlof veitt í einu lagi á tímabilinu 2. maí til 15. september. Nú tekur starfsmaður, sem nýtur ekki lengri orlofsréttar en lögin kveða á um, hluta orlofs utan þess tímabils að ósk atvinnurekanda. Þá lengist sá hluti um fjórðung. Aðilar geta samið um aðra skiptingu orlofs, en orlofi skal alltaf lokið fyrir lok orlofsársins (4. gr.).

Í kjarasamningum er kveðið á um sumarorlofstímabil, fresti til að ákveða sumarorlof og lengingu eða álag ef orlof er tekið utan sumarorlofstímabils að ósk atvinnurekanda. Reglurnar eru ólíkar eftir vinnumarkaði.

Ákvörðunarvald atvinnurekanda nær til þess hvenær orlof er tekið, en ekki til þess hvort það er tekið. Atvinnurekanda ber að haga starfseminni þannig að starfsfólk geti nýtt áunnið orlof. Sjá nánar Flutningur, frestun og fyrning orlofs.

Má ég vinna í orlofi eða fá orlofið greitt út í staðinn?

Óheimilt er að vinna fyrir launum í sinni starfsgrein eða skyldum starfsgreinum meðan á orlofi stendur (12. gr.).

Framsal orlofslauna og flutningur þeirra milli orlofsára er óheimill (13. gr.). Meginreglan er því sú að orlof skal tekið en ekki greitt út. Undantekning er gerð við starfslok, en þá skal gera upp öll áunnin orlofslaun (8. gr.). Samkvæmt 2. mgr. 7. gr. tilskipunar 2003/88/EB má ekki greiða lágmarksorlof út í peningum nema ráðningarsambandi ljúki.

Starfsfólk getur ekki afsalað sér lögbundnum orlofsrétti.

Sérstakar aðstæður

Hlutastarf og breytt starfshlutfall

Orlof ávinnst hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Hafi starfshlutfall breyst á orlofsárinu skal samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna taka tillit til þess við útreikning launa í orlofi. Sjá Orlofslaun og orlofsfé.

Nýtt starf og tímabundin ráðning

Sá sem hefur störf á miðju orlofsári á rétt á launuðu orlofi í samræmi við þann rétt sem hann hefur áunnið sér hjá atvinnurekandanum. Í kjarasamningum ríkisins og Reykjavíkurborgar er kveðið á um rétt til launalauss orlofs þegar starfsmaður kemur úr öðru starfi án þess að hafa notið þar áunnins orlofs, þannig að samtals náist allt að 30 dagar. Við lok ráðningar, þar á meðal tímabundinnar ráðningar, skal gera upp allt áunnið og ótekið orlof.

Fleiri en einn atvinnurekandi

Starfsmaður sem starfar hjá fleiri en einum atvinnurekanda ávinnur sér orlofsrétt hjá hverjum þeirra fyrir sig. Hver atvinnurekandi greiðir orlofslaun af þeim launum sem hann greiðir. Semja þarf við hvern og einn um tímasetningu orlofs.

Vaktavinna

Hjá vaktavinnufólki er orlof mælt í vinnuskyldustundum. Samkvæmt kjarasamningum við sveitarfélög á vaktavinnufólk rétt á skýrum upplýsingum um hvenær það kemur aftur til starfa eftir orlof. Sjá nánar um vaktavinnu.

Fæðingar- og foreldraorlof

Fæðingar- og foreldraorlof er sjálfstæður réttur og kemur ekki í stað árlegs orlofs. Fæðingarorlof telst til starfstíma við ávinnslu orlofsréttar. Áunnin réttindi starfsmanns haldast óbreytt meðan á foreldraorlofi stendur (48. gr. laga nr. 144/2020). Samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna má fresta orlofi sem ekki næst að taka vegna fæðingarorlofs. Sjá nánar um fæðingarorlof og foreldraorlof.

Orlof, orlofsuppbót og Orlofssjóður – hver er munurinn?

  • Orlof: Leyfi frá störfum sem starfsfólk ávinnur sér.
  • Orlofslaun og orlofsfé: Laun sem greidd eru vegna orlofs. Sjá Orlofslaun og orlofsfé.
  • Orlofsuppbót: Föst krónutala sem greidd er einu sinni á ári samkvæmt kjarasamningi. Orlofslaun reiknast ekki á hana. Sjá Orlofs- og desemberuppbætur.
  • Orlofssjóður BHM: Sjóður sem atvinnurekendur greiða í og veitir félagsfólki meðal annars aðgang að orlofshúsum. Sjá Orlofssjóð BHM.

Hvert get ég leitað?

Aðildarfélög BHM veita félagsfólki upplýsingar og aðstoð um orlofsrétt samkvæmt lögum og þeim kjarasamningi sem það heyrir undir.

Lög og heimildir

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt