Reiknivél fyrir útselda vinnu
Reiknivélin hjálpar þér að meta hvaða tímagjald þarf til að standa undir launum, lögbundnum gjöldum og kostnaði sem launafólk ber ekki sjálft.
Reiknivélin er hjálpartæki fyrir hvern og einn til að meta eigin kostnað. Hún er ekki gjaldskrá og felur ekki í sér ráðlagt eða sameiginlegt verð. Hver sjálfstætt starfandi einstaklingur ákveður sjálfur verð á eigin þjónustu.
Gildandi hlutföll og fjárhæðir eru á síðunni Skattar og opinber gjöld og Lífeyrisréttindi.
Samkeppnislög gilda um einstaklinga sem stunda atvinnurekstur. Þau banna meðal annars samráð keppinauta um verð. Því skal hver og einn ákveða verð sitt sjálfstætt. Sjá nánar Samningar, reikningar og innheimta.