Vinnu­vik­an og dag­vinna

Full vinnuvika er 36 virkar vinnustundir hjá ríkinu og Reykjavíkurborg og að jafnaði 35,5 stundir samkvæmt kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM. Mánaðarlaun miðast við vinnuskyldu í dagvinnu.

Hvað er dagvinna?

Dagvinna er vinna sem unnin er innan dagvinnutímabils og upp að vikulegri vinnuskyldu samkvæmt kjarasamningi. Mánaðarlaun eru greidd fyrir dagvinnu. Vinna utan dagvinnutímabils eða umfram vinnuskyldu er að jafnaði yfirvinna.

Samkvæmt lögum nr. 88/1971 um 40 stunda vinnuviku mega dagvinnutímar ekki vera fleiri en 40 í viku hverri. Lögin setja þannig hámark á dagvinnu en ekki á heildarvinnutíma. Hámark heildarvinnutíma, að yfirvinnu meðtalinni, er 48 stundir að meðaltali á viku samkvæmt lögum nr. 46/1980, sjá dagleg og vikuleg hvíld.

Starfsfólk ríkisins

  • Vinnuvika: Vinnuvika starfsfólks í fullu starfi er 36 virkar vinnustundir (gr. 2.1.1).
  • Dagvinnutímabil: Dagvinna skal unnin á tímabilinu kl. 08:00–17:00 frá mánudegi til föstudags (gr. 2.2.1).
  • Sveigjanlegur vinnutími: Heimilt er að verða við óskum starfsfólks um sveigjanlegan vinnutíma á tímabilinu kl. 07:00–18:00 á virkum dögum (gr. 2.2.2). Starfsfólk ríkisins á rétt á sveigjanlegum vinnutíma eftir því sem unnt er, sbr. 13. gr. laga nr. 70/1996.
  • Tímakaup í dagvinnu: Tímakaup í dagvinnu er 0,632% af mánaðarkaupi í hverjum launaflokki og þrepi (gr. 1.4.1).

Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög

  • Reykjavíkurborg: Frá 1. nóvember 2024 er vinnuvika starfsfólks í fullu starfi 36 virkar vinnustundir og tímakaup í dagvinnu 0,632% af mánaðarkaupi. Á sama tíma féllu brott fylgiskjöl um betri vinnutíma, enda voru ákvæði þeirra felld inn í meginmál kjarasamninga.
  • Önnur sveitarfélög: Samband íslenskra sveitarfélaga samdi einnig um betri vinnutíma. Aðildarfélagið veitir upplýsingar um ákvæði gildandi samnings.

Almennur vinnumarkaður

Kjarasamningur SA og aðildarfélaga BHM gildir frá 1. maí 2025:

  • Vinnuvika: Vikulegur virkur dagvinnutími í fullu starfi er að jafnaði 35,5 stundir.
  • Dagvinnutímabil: Dagvinna er unnin á tímabilinu kl. 07:00–18:00 frá mánudegi til föstudags.
  • Virkur vinnutími: Með virkum vinnutíma er átt við þann tíma sem starfsmaður er við störf. Hádegishlé, umfram greidd neysluhlé, telst ekki til greidds vinnutíma.

Aðrir kjarasamningar geta gilt um félagsfólk BHM á almennum vinnumarkaði. Kannaðu hjá aðildarfélaginu hvaða samningur á við.

Hvernig er stytting vinnuvikunnar útfærð?

Stytting vinnuvikunnar er útfærð á hverjum vinnustað. Starfsfólk og stjórnendur ákveða í sameiningu hvort styttingin er tekin daglega, vikulega eða með öðrum hætti, til dæmis í heilum eða hálfum dögum með reglubundnum hætti. Leiðbeiningar og algengar spurningar eru á Mannauðstorgi ríkisins og vef Reykjavíkurborgar.

Ef skipulagi vinnustaðar er breytt einhliða geta reglur um breytingar á störfum og starfskjörum átt við.

Hlutastarf

Í hlutastarfi er vinnuskylda hlutfallsleg miðað við fullt starf. Hvernig greitt er fyrir vinnu umfram umsamið starfshlutfall fer eftir kjarasamningi. Aðildarfélagið veitir upplýsingar um þau ákvæði sem gilda.

Um heimildir

Greinanúmer um ríkið vísa til ritstýrðs kjarasamnings Félags háskólakennara og ríkisins sem gildir frá 1. nóvember 2024. Kjarasamningar annarra aðildarfélaga BHM við ríkið eru byggðir upp með sama hætti en geta vikið frá í einstökum atriðum. Um almennan vinnumarkað er vísað til kjarasamnings SA og aðildarfélaga BHM sem gildir frá 1. maí 2025.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt