Hvað get ég gert ef vinnu­um­hverfi er ábóta­vant?

Telji starfsfólk að vinnuaðstæður séu hættulegar eða heilsuspillandi eru ýmsar leiðir færar, allt frá samtali við yfirmann til ábendingar til Vinnueftirlitsins. Hér er farið yfir helstu úrræðin og í hvaða röð er yfirleitt skynsamlegt að beita þeim.

Byrjaðu á að skrá og upplýsa

Góð skráning auðveldar alla eftirfylgni. Skráðu hvað gerðist eða hvað er að, hvenær og hverjir urðu varir við það. Varðveittu tölvupósta, ljósmyndir, læknisvottorð og önnur gögn. Komdu ábendingum á framfæri skriflega þegar þess er kostur.

Hvert er hægt að leita?

Í flestum tilvikum er skynsamlegt að leita fyrst lausna innan vinnustaðarins, en ekki er skylt að fara þessa leið í tiltekinni röð. Í alvarlegum málum, eða ef aðstæður gera það óraunhæft að leita til yfirmanns, er hægt að leita beint til stéttarfélags eða Vinnueftirlitsins.

  1. Næsti yfirmaður. Lýstu vandanum og óskaðu eftir úrbótum. Atvinnurekandi ber ábyrgð á vinnuverndarstarfinu og á að bregðast við.
  2. Öryggistrúnaðarmaður eða öryggisnefnd. Öryggistrúnaðarmenn eiga að fylgjast með því að aðbúnaður og öryggi séu í samræmi við lög og geta tekið málið upp við atvinnurekanda. Náist ekki samkomulag í öryggisnefnd getur hver nefndarmaður vísað málinu til Vinnueftirlitsins. Sjá nánar um öryggistrúnaðarmenn.
  3. Trúnaðarmaður og stéttarfélag. Trúnaðarmenn og starfsfólk stéttarfélaga veita ráðgjöf um réttindi samkvæmt lögum og kjarasamningum og geta aðstoðað við samskipti við atvinnurekanda. Hægt er að finna sitt aðildarfélag BHM hér.
  4. Vinnueftirlitið. Hægt er að senda Vinnueftirlitinu ábendingu um vinnuumhverfi, öryggi eða heilsu starfsfólks, og það má gera nafnlaust. Stofnunin metur hvort tilefni sé til vettvangsathugunar eða annarra aðgerða og er bundin þagnarskyldu um það hver beinir til hennar ábendingu.
  5. Önnur stjórnvöld. Varði málið mismunun eða áreitni á grundvelli kyns eða annarra mismununarþátta er hægt að kæra til kærunefndar jafnréttismála, sjá einelti, áreitni og ofbeldi. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hefur eftirlit með hollustuháttum í húsnæði.
  6. Dómstólar. Hafi starfsmaður orðið fyrir tjóni getur komið til álita að höfða mál til greiðslu skaðabóta eða vangoldinna launa. Slík mál eru yfirleitt rekin með aðstoð stéttarfélags eða lögmanns.

Hvað getur Vinnueftirlitið gert?

Vinnueftirlitið getur gefið atvinnurekanda fyrirmæli um úrbætur innan tiltekins frests og beitt dagsektum. Verði ekki orðið við fyrirmælum getur stofnunin látið stöðva vinnu eða loka starfsemi að hluta eða öllu leyti. Telji Vinnueftirlitið að veruleg hætta sé á ferðum fyrir líf eða heilsu starfsfólks getur það stöðvað vinnu þegar í stað. Frá 1. janúar 2025 getur Vinnueftirlitið einnig lagt stjórnvaldssektir á atvinnurekendur vegna tiltekinna brota.

Hættulegar aðstæður

Teljir þú að líf eða heilsa sé í yfirvofandi hættu skaltu láta yfirmann og öryggistrúnaðarmann vita þegar í stað og hringja í 112 ef þörf krefur. Vinnueftirlitið getur stöðvað vinnu þegar veruleg hætta er á ferðum. Ef þú ert í vafa um hvort þér sé heimilt að neita að sinna tilteknu verki skaltu leita ráða hjá stéttarfélaginu.

Vernd gegn óréttmætum viðbrögðum

  • Öryggistrúnaðarmenn og fulltrúar starfsfólks í öryggisnefnd njóta sömu verndar gegn uppsögn og trúnaðarmenn stéttarfélaga.
  • Starfsfólk sem sendir Vinnueftirlitinu ábendingu um eigin vinnustað getur óskað eftir vernd sem uppljóstrari samkvæmt 88. gr. laga nr. 46/1980.
  • Lög nr. 40/2020 um vernd uppljóstrara veita starfsfólki jafnframt vernd gegn óréttlátri meðferð þegar það miðlar í góðri trú upplýsingum um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi atvinnurekanda, að uppfylltum skilyrðum laganna.

Aðgangur að upplýsingum

  • Öryggistrúnaðarmenn eiga aðgang að gögnum sem varða aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustaðnum og á að kynna þeim niðurstöður mælinga og fyrirmæli Vinnueftirlitsins.
  • Starfsfólk á rétt á að nálgast upplýsingar um eigin vinnutíma tólf mánuði aftur í tímann, sjá skráning vinnutíma.
  • Sá sem slasast við vinnu getur nálgast tilkynningu um slysið til Vinnueftirlitsins á Ísland.is.
  • Starfsfólk á rétt á aðgangi að persónuupplýsingum um sig sem atvinnurekandi vinnur með, sjá persónuvernd.
  • Í málum vegna eineltis, áreitni eða ofbeldis eiga aðilar rétt á að tjá sig og að fá upplýsingar um framvindu og lyktir málsins.

Hjá ríki og sveitarfélögum gilda auk þess reglur stjórnsýsluréttar, meðal annars um andmælarétt og aðgang að gögnum, þegar teknar eru stjórnvaldsákvarðanir um réttindi og skyldur starfsfólks.

Tengt efni

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt