Hvaða reglur gilda?
Um orlof á almennum vinnumarkaði gilda lög nr. 30/1987 um orlof og sá kjarasamningur sem gildir um starfið. Margir félagsmenn aðildarfélaga BHM á almennum vinnumarkaði starfa samkvæmt kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga BHM. Aðrir starfa samkvæmt öðrum kjarasamningum eða fyrirtækjasamningum. Orlofslögin gilda alltaf sem lágmark.
Hversu langt orlof á ég rétt á?
Lágmarksorlof er 24 virkir dagar miðað við fullt ársstarf og orlofslaun nema 10,17%.
Samkvæmt kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM gildir eftirfarandi frá og með 1. maí 2025, það er um orlof sem kemur til töku á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2026:
- Eftir 6 mánuði hjá sama fyrirtæki: 25 dagar, orlofslaun 10,64%.
- Eftir 5 ár í sömu starfsgrein: 26 dagar, orlofslaun 11,11%.
- Eftir 4 ár hjá sama fyrirtæki eða 10 ár í sömu starfsgrein: 28 dagar, orlofslaun 12,07%.
- Eftir 6 ár hjá sama fyrirtæki: 30 dagar, orlofslaun 13,04%.
Orlof ávinnst hlutfallslega í hlutastarfi og þegar unnið er hluta úr ári.
Held ég áunnum rétti þegar ég skipti um starf?
Samkvæmt kjarasamningnum endurnýjast áunninn réttur vegna starfa hjá sama fyrirtæki eftir tveggja ára starf hjá nýju fyrirtæki, enda hafi hann verið staðreyndur. Samkvæmt eldra ákvæði samningsins fær starfsmaður sem hafði áunnið sér 30 daga orlofsrétt hjá fyrri atvinnurekanda þann rétt að nýju eftir þriggja ára starf hjá nýjum atvinnurekanda, enda hafi rétturinn verið staðreyndur.
Starfsmaður þarf að geta sýnt fram á fyrri starfstíma, til dæmis með starfsvottorði. Leitaðu til stéttarfélags þíns ef vafi leikur á því hvaða regla á við.
Hvenær tek ég orlof?
Veita skal að minnsta kosti 20 virka daga orlof, það er fjórar vikur, á tímabilinu 2. maí til 15. september. Starfsmaður sem fær ekki 20 orlofsdaga á þessu tímabili að ósk atvinnurekanda á rétt á 25% álagi á þá daga sem vantar upp á 20.
Atvinnurekandi ákveður í samráði við starfsmann hvenær orlof er tekið og skal verða við óskum hans eftir því sem unnt er vegna starfseminnar. Atvinnurekandi skal tilkynna í síðasta lagi mánuði fyrir upphaf orlofs hvenær það hefst, nema sérstakar ástæður hamli (5. gr. orlofslaga). Orlofi skal lokið fyrir lok orlofsársins (4. gr.).
Samkvæmt bókun um vinnutímastyttingu má taka orlof í klukkustundum, hálfum dögum eða heilum dögum.
Hvað gerist ef ég veikist í orlofi?
Samkvæmt grein 3.3 í kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM gilda eftirfarandi reglur þegar starfsmaður veikist í orlofi innanlands, í EES-ríki, Sviss, Bandaríkjunum eða Kanada svo alvarlega að hann getur ekki notið orlofsins:
- Starfsmaður skal tilkynna atvinnurekanda um veikindin á fyrsta degi með sannanlegum hætti. Komi óviðráðanlegar aðstæður í veg fyrir það skal tilkynnt um leið og þeim léttir.
- Standi veikindin lengur en þrjá sólarhringa og tilkynni starfsmaður innan þess tíma hvaða læknir annast hann, á hann rétt á uppbótarorlofi jafnlangan tíma og veikindin vöruðu.
- Veikindin skal sanna með læknisvottorði. Atvinnurekandi getur látið lækni vitja starfsmannsins.
- Uppbótarorlof skal veitt eftir því sem kostur er á tímabilinu 2. maí til 15. september á þeim tíma sem starfsmaður óskar, nema sérstakar aðstæður hamli.
Sömu reglur gilda um slys í orlofi. Um samspil þessara skilyrða við EES-rétt er fjallað á síðunni Veikindi og orlof.
Má flytja orlof milli ára?
Kjarasamningur SA og aðildarfélaga BHM hefur ekki að geyma sérstakt ákvæði um flutning orlofs. Því gilda reglur orlofslaga: orlofi skal lokið fyrir lok orlofsársins og óheimilt er að flytja orlofslaun milli orlofsára. Ónýtt orlof fellur þó ekki sjálfkrafa niður ef atvinnurekandi hefur ekki gert starfsmanni kleift að taka það. Sjá nánar Flutningur, frestun og fyrning orlofs.
Orlofs- og desemberuppbót
Starfsfólk, annað en stjórnendur, fær orlofsuppbót og desemberuppbót samkvæmt aðalkjarasamningum SA á almennum vinnumarkaði. Í ráðningarsamningi má semja um að uppbæturnar séu felldar inn í mánaðarlaun. Fjárhæðir eru á síðunni Orlofs- og desemberuppbætur.
Hvert get ég leitað?
Aðildarfélög BHM veita félagsfólki upplýsingar um orlofsrétt samkvæmt lögum, kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM og öðrum samningum á almennum vinnumarkaði.