Ríki og sveit­ar­fé­lög

Starfsfólk ríkis og sveitarfélaga á rétt á 30 daga orlofi á ári miðað við fullt starf. Reglur um sumarorlofstímabil, ákvörðun orlofs og flutning orlofs milli ára eru þó ekki að öllu leyti eins hjá ríkinu, Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum.

Um orlof opinberra starfsmanna gilda lög nr. 30/1987 um orlof og 4. kafli kjarasamninga. Hér er lýst þeim reglum sem eru sameiginlegar kjarasamningum aðildarfélaga BHM við ríkið, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga á samningstímabilinu 2024–2028. Einstakir samningar geta haft að geyma sérákvæði. Kannaðu því alltaf þann samning sem gildir um starf þitt.

Hversu langt orlof á ég rétt á?

Orlof er 30 dagar miðað við fullt ársstarf, óháð starfsaldri. Það svarar til 216 vinnuskyldustunda miðað við 36 stunda vinnuviku. Sé vinnuvikan önnur breytist stundafjöldinn í samræmi við það. Orlof ávinnst hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Orlof er mælt í vinnuskyldustundum og því er hægt að taka orlof hluta úr degi. Hjá ríkinu er almenna reglan sú að orlof sé ekki tekið í skemmri einingum en hálfum degi í senn, en stofnanir geta sett sér eigin reglur.

Hvenær er sumarorlofstímabilið?

  • Ríkið: Frá 1. maí til 15. september. Starfsmaður á rétt á að fá 15 daga samfellt orlof á tímabilinu, verði því við komið vegna starfsemi stofnunar.
  • Reykjavíkurborg: Frá 15. maí til 30. september. Starfsmaður á rétt á að fá 15 daga samfellt orlof á tímabilinu, verði því við komið vegna starfseminnar.
  • Önnur sveitarfélög: Frá 15. maí til 30. september. Starfsmaður á rétt á að taka allt orlof sitt á tímabilinu, verði því við komið vegna starfseminnar.

Hver ákveður hvenær ég tek orlof?

Yfirmaður ákveður í samráði við starfsmann hvenær orlof er tekið. Honum er skylt að verða við óskum starfsmanns eftir því sem við verður komið vegna starfseminnar.

  • Ríkið og Reykjavíkurborg: Ákvörðun um sumarorlof skal liggja fyrir 31. mars og skal tilkynnt starfsmanni með sannanlegum hætti, til dæmis í tímaskráningarkerfi.
  • Önnur sveitarfélög: Tilkynna skal starfsmanni með minnst mánaðar fyrirvara hvenær orlof hefst, nema sérstakar aðstæður hamli.

Sé orlof eða hluti þess tekinn utan sumarorlofstímabils að skriflegri beiðni yfirmanns lengist sá hluti orlofsins um 25%.

Hvernig fæ ég greitt í orlofi?

Starfsfólk á mánaðarlaunum heldur dagvinnulaunum sínum í orlofi. Hafi starfshlutfall breyst á orlofsárinu skal tekið tillit til þess við útreikning launa í orlofi.

Starfsfólk fær 13,04% orlofsfé á yfirvinnu og álagsgreiðslur samkvæmt kjarasamningi. Um fasta yfirvinnu og útreikning orlofslauna er fjallað á síðunni Orlofslaun og orlofsfé.

Auk orlofslauna fær starfsfólk greidda orlofsuppbót 1. júní ár hvert. Uppbótin er föst krónutala og orlofslaun reiknast ekki á hana. Áunnin orlofsuppbót er gerð upp við starfslok. Fjárhæðir og skilyrði eru á síðunni Orlofs- og desemberuppbætur.

Má flytja orlof milli ára?

Meginreglan er sú að orlof skal tekið á orlofsárinu. Reglur um frestun og flutning eru ólíkar eftir viðsemjendum:

  • Ríkið og Reykjavíkurborg: Flutningur orlofs milli ára er óheimill nema starfsmaður hafi ekki tekið orlof eða hluta þess vegna skriflegrar beiðni yfirmanns, vegna fæðingar- eða foreldraorlofs eða vegna veikinda í orlofi. Uppsafnað orlof getur þó aldrei orðið meira en 60 dagar. Samkvæmt samningstextanum fyrnast ónýttir uppsafnaðir dagar.
  • Önnur sveitarfélög: Orlofi skal lokið fyrir lok orlofsársins. Atvinnurekandi skal skipuleggja orlofstöku með tilliti til óska starfsmanns. Í samningunum er mælt fyrir um ferli þar sem aðilar ræða orlofstöku og gera skriflegt samkomulag um lok hennar. Náist ekki samkomulag skal atvinnurekandi tilkynna starfsmanni hvenær orlof verður tekið. Starfsmaður sem getur ekki tekið orlof vegna veikinda eða fæðingarorlofs getur krafist þess að taka orlofið á öðrum tíma.

Samkvæmt kjarasamningum ríkisins og Reykjavíkurborgar skulu upplýsingar um stöðu áunnins og ótekins orlofs vera starfsfólki aðgengilegar í tímaskráningarkerfi.

Ónýtt orlof fellur ekki sjálfkrafa niður í öllum tilvikum. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins um tilskipun 2003/88/EB getur réttur til orlofs aðeins fallið niður ef atvinnurekandi hefur í raun gert starfsmanni kleift að taka orlofið. Sjá nánar Flutningur, frestun og fyrning orlofs.

Hvað gerist ef ég veikist í orlofi?

Veikist starfsmaður í orlofi telst veikindatíminn ekki til orlofs, enda sanni starfsmaðurinn veikindin með læknisvottorði. Tilkynna skal yfirmanni um veikindin án tafar. Samkvæmt samningum við ríkið og Reykjavíkurborg er heimilt að flytja orlof sem ekki næst að taka af þessum sökum til næsta orlofsárs. Sjá nánar Veikindi og orlof.

Hvað ef ég kem úr öðru starfi?

Starfsmaður sem kemur úr öðru starfi án þess að hafa notið þar áunnins orlofs á samkvæmt kjarasamningum ríkisins og Reykjavíkurborgar rétt á launalausu orlofi, þannig að samtals náist allt að 30 dagar.

Hvað verður um orlofsréttinn við andlát?

Áunninn orlofsréttur látins starfsmanns er greiddur dánarbúi hans.

Hvert get ég leitað?

Aðildarfélög BHM veita félagsfólki upplýsingar um orlofsrétt samkvæmt þeim kjarasamningi sem það heyrir undir. Gildandi kjarasamningar eru birtir á vefjum aðildarfélaganna.

Lög og heimildir

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt