Sam­keppn­is­ákvæði og trún­að­ar­skylda eft­ir starfs­lok

Samkeppnisákvæði í ráðningarsamningi geta takmarkað rétt starfsmanns til að starfa hjá keppinaut eða hefja samkeppnisrekstur eftir starfslok. Slík ákvæði eru heimil en þau má ógilda eða takmarka ef þau ganga lengra en nauðsynlegt er.

Trúnaðarskylda

Starfsmaður er bundinn trúnaðarskyldu gagnvart atvinnurekanda á meðan ráðningarsamband varir. Í vissum tilvikum getur trúnaðarskylda náð til tímabils eftir starfslok, einkum þegar um viðskiptaleyndarmál er að ræða. Starfsfólk ríkis og sveitarfélaga er einnig bundið lögbundinni þagnarskyldu sem helst eftir starfslok.

Hvenær er samkeppnisákvæði bindandi?

Samkeppnisákvæði er heimilt samkvæmt 37. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Samkvæmt ákvæðinu er samkeppnisákvæði þó ekki bindandi að því marki sem það gengur lengra en nauðsynlegt er til að varna samkeppni eða takmarkar atvinnufrelsi starfsmanns á ósanngjarnan hátt. Einnig getur komið til álita að víkja samningsákvæði til hliðar samkvæmt 36. gr. sömu laga.

Atvinnufrelsi er varið í 75. gr. stjórnarskrárinnar. Samkvæmt dómvenju stendur ákvæðið þó ekki í vegi fyrir samkeppnisákvæðum, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 124/2003.

Við mat á gildi samkeppnisákvæðis er meðal annars litið til:

  • hvort ákvæðið verndar raunverulega og lögmæta hagsmuni atvinnurekanda,
  • gildistíma, landfræðilegs umfangs og þeirrar starfsemi sem það tekur til,
  • stöðu starfsmanns og launakjara,
  • hvort starfsmanni var sagt upp án þess að hann hefði sjálfur gefið til þess tilefni.

Dómaframkvæmd

  • Í dómi Hæstaréttar í máli nr. 414/2008 var samkeppnisákvæði talið gilt. Það var ekki víðtækara en nauðsynlegt var til að varna samkeppni og gildistími þess var hæfilegur.
  • Í dómi Hæstaréttar í máli nr. 18/2021 var fjallað um kröfu atvinnurekanda um bætur vegna ætlaðs brots fyrrverandi starfsmanns gegn trúnaðarskyldu og samkeppnisákvæði. Hæstiréttur taldi sönnunarbyrðina hvíla á atvinnurekanda.
  • Í dómi Landsréttar í máli nr. 276/2022 var talið að samkeppnishömlur sem gilda áttu í tólf mánuði eftir að launagreiðslum lauk ættu ekki að halda gildi sínu, enda hafði starfsmaðurinn ekki sjálfur gefið nægilegt tilefni til uppsagnar.
  • Í dómum Landsréttar í málum nr. 16/2022 og 563/2021 hefur einnig verið vísað til þess að atvinnurekandi beri sönnunarbyrði fyrir því að lögmætir hagsmunir réttlæti skerðingu á atvinnufrelsi.

Hvað á ég að gera?

Lestu ráðningarsamning þinn vel áður en þú hefur störf hjá keppinaut eða hefur eigin rekstur. Leitaðu til aðildarfélagsins ef vafi leikur á gildi samkeppnisákvæðis.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt