Lok starfs­æv­innar

Hjá ríki og sveitarfélögum lýkur starfi að jafnaði við 70 ára aldur. Á almennum vinnumarkaði eru ekki sambærileg aldursmörk í kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM.

Ríkið

Starfsmanni ríkisins skal segja upp störfum með formlegum hætti frá og með næstu mánaðamótum eftir að hann nær 70 ára aldri, sbr. 2. mgr. 43. gr. laga nr. 70/1996. Gæta þarf uppsagnarfrests samkvæmt kjarasamningi.

Dæmi: Starfsmaður með þriggja mánaða uppsagnarfrest verður 70 ára 5. maí. Starfslok verða um mánaðamótin maí–júní og segja þarf honum upp í febrúar svo að uppsagnarfresturinn verði mars, apríl og maí.

Starfsmaður sem orðinn er 63 ára og hefur starfað samfellt hjá sömu stofnun í a.m.k. tíu ár á rétt á sex mánaða uppsagnarfresti samkvæmt 17. kafla kjarasamninga. Taka verður tillit til þess þegar uppsögn er tilkynnt.

Sveitarfélög

Samkvæmt gr. 11.1.7.1 í kjarasamningum aðildarfélaga BHM við Samband íslenskra sveitarfélaga lætur starfsmaður af störfum næstu mánaðamót eftir að hann nær 70 ára aldri, án sérstakrar uppsagnar. Rétt er að senda honum skriflega tilkynningu um starfslok vegna aldurs með fyrirvara. Í samningi Sálfræðingafélags Íslands og Sambandsins er miðað við sex mánaða fyrirvara. Heimilt er að framlengja ráðningu eða endurráða starfsmann eftir 70 ára aldur, óski hann þess (gr. 11.1.7.2).

Reykjavíkurborg

Samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar lætur starfsmaður af starfi eigi síðar en um næstu mánaðamót eftir að hann nær 70 ára aldri, án sérstakrar uppsagnar. Heimilt er að endurráða starfsmann eftir 70 ára aldur á tímavinnukaupi, allt að hálfu starfi, að hámarki til 72 ára aldurs. Starfsmaður sem óskar þess skal sækja um það skriflega með þriggja mánaða fyrirvara.

Almennur vinnumarkaður

Í kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM er ekki kveðið á um starfslok vegna aldurs. Um uppsögn gilda því almennar reglur um uppsagnarfrest (gr. 5.3). Starfslok geta þó ráðist af ráðningarsamningi eða starfsmannastefnu, sem verða að samræmast banni við mismunun vegna aldurs, sbr. lög nr. 86/2018.

Lífeyrir

Réttur til töku lífeyris fer eftir reglum viðkomandi lífeyrissjóðs og lögum um almannatryggingar. Kynntu þér réttindi þín hjá þínum lífeyrissjóði og Tryggingastofnun með góðum fyrirvara.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt