Vinnu­slys, at­vinnu­sjúk­dóm­ar og vinnu­tengt heilsu­tjón

Verði starfsmaður fyrir heilsutjóni vegna vinnu sinnar geta ýmis réttindi komið til álita. Þau ráðast meðal annars af því hvort um vinnuslys, atvinnusjúkdóm eða önnur vinnutengd veikindi er að ræða.

Hvað er hvað?

  • Vinnuslys er slys sem verður vegna eða við vinnu og veldur líkamlegu eða andlegu heilsutjóni. Í lögum um slysatryggingar almannatrygginga er slys skilgreint sem skyndilegur, óvæntur atburður sem veldur meiðslum á líkama hins tryggða og gerist án vilja hans.
  • Atvinnusjúkdómur er sjúkdómur sem orsakast af vinnu eða aðstæðum í starfsumhverfi. Sjúkdómar sem geta talist bótaskyldir atvinnusjúkdómar eru taldir upp í viðauka við reglugerð nr. 390/2023 um atvinnusjúkdóma.
  • Atvinnutengdur sjúkdómur er sjúkdómur sem vinna eða starfsumhverfi á þátt í, án þess að hann falli undir lista reglugerðarinnar.
  • Önnur vinnutengd veikindi, til dæmis vegna langvarandi álags, geta valdið óvinnufærni þótt þau teljist hvorki vinnuslys né atvinnusjúkdómur. Réttindi starfsfólks ráðast þá fyrst og fremst af veikindarétti.

Greinarmunurinn skiptir máli, því réttindi starfsfólks og skyldur atvinnurekanda eru ólík eftir því hvað á við.

Tilkynningar og skráning

Skyldur atvinnurekanda

  • Atvinnurekandi skal án ástæðulausrar tafar tilkynna Vinnueftirlitinu um öll slys þar sem starfsmaður deyr eða verður óvinnufær í einn eða fleiri daga, auk þess dags sem slysið varð. Slys þar sem líkur eru á að starfsmaður hafi orðið fyrir langvinnu eða varanlegu heilsutjóni skal tilkynna eigi síðar en innan sólarhrings (79. gr. laga nr. 46/1980). Tilkynnt er rafrænt á Ísland.is.
  • Óheimilt er að breyta aðstæðum á slysstað umfram það sem nauðsynlegt er vegna björgunar áður en Vinnueftirlitið hefur kannað vettvang.
  • Atvinnurekandi skal halda skrá yfir öll vinnuslys á vinnustaðnum, óháð því hvort þau valda fjarveru, og yfir atvinnusjúkdóma og óhöpp sem geta valdið heilsutjóni.

Atvinnusjúkdómar

Starfsfólk sem telur sig vera með atvinnusjúkdóm ætti að tilkynna það atvinnurekanda og leita læknis. Samkvæmt reglugerð nr. 540/2011 ber lækni sem greinir eða grunar atvinnusjúkdóm eða atvinnutengdan sjúkdóm að tilkynna það Vinnueftirlitinu. Sjá leiðbeiningar um tilkynningu um atvinnusjúkdóm.

Hvað á starfsfólk að gera?

  1. Tilkynna slys eða veikindi strax til yfirmanns.
  2. Leita læknis og afla vottorða, þar á meðal slysavottorðs þegar við á.
  3. Ganga úr skugga um að slysið hafi verið tilkynnt Vinnueftirlitinu og að hinn slasaði geti nálgast tilkynninguna á Ísland.is.
  4. Tilkynna slysið til Sjúkratrygginga Íslands og eftir atvikum tryggingafélags atvinnurekanda.
  5. Skrá atvik, varðveita gögn og leita ráðgjafar stéttarfélags.

Dragist tilkynning getur það haft áhrif á rétt til bóta. Samkvæmt lögum um slysatryggingar almannatrygginga skal almennt sækja um bætur innan árs frá slysi. Heimilt er að víkja frá því ef atvik eru ljós, en bætur eru ekki greiddar ef meira en tíu ár eru liðin frá slysdegi þegar tilkynning berst.

Hvaða réttindi geta komið til álita?

Laun í forföllum

Starfsfólk sem verður óvinnufært vegna vinnuslyss eða atvinnusjúkdóms á rétt á launum samkvæmt kjarasamningi, auk sérstaks viðbótarréttar vegna vinnuslysa. Réttindin eru ólík eftir því hvort starfað er á almennum vinnumarkaði eða hjá ríki og sveitarfélögum, sjá veikindalaun vegna vinnuslysa.

Slysatryggingar almannatrygginga

Samkvæmt lögum nr. 45/2015 um slysatryggingar almannatrygginga eiga þeir sem slasast við vinnu rétt á bótum óháð tekjum og óháð því hvort einhver beri sök á slysinu. Sjúkratryggingar Íslands annast framkvæmd trygginganna.

Frá árinu 2022 ná slysatryggingarnar einnig til bótaskyldra atvinnusjúkdóma. Sjúkratryggingar Íslands meta hvort sjúkdómur sé á lista reglugerðar nr. 390/2023 og hvort hann hafi orsakast af vinnu eða starfsumhverfi. Ákvörðunum má skjóta til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Kjarasamningsbundnar slysatryggingar

Atvinnurekendum er skylt samkvæmt kjarasamningum að slysatryggja starfsfólk sitt. Skilmálar eru ólíkir eftir því hvaða kjarasamningur á í hlut, sjá veikindalaun vegna vinnuslysa. Sjálfstætt starfandi þurfa sjálfir að huga að tryggingum, sjá sjálfstætt starfandi.

Skaðabætur frá atvinnurekanda

Atvinnurekandi getur borið skaðabótaábyrgð á heilsutjóni starfsmanns á grundvelli sakarreglunnar, þar á meðal á saknæmri háttsemi annarra starfsmanna sinna. Brot á reglum um vinnuvernd, til dæmis um áhættumat, öryggisbúnað eða fræðslu, getur haft þýðingu við mat á því hvort sök sé fyrir hendi. Um ákvörðun bóta fer samkvæmt skaðabótalögum nr. 50/1993.

Í dómaframkvæmd hefur vanræksla atvinnurekanda á tilkynningarskyldu til Vinnueftirlitsins í sumum tilvikum leitt til þess að hann hefur þurft að bera hallann af óljósum atvikum. Það á þó ekki við í öllum tilvikum og ræðst af atvikum hverju sinni.

Skaðabótamál geta verið flókin og fyrningarfrestir takmarkaðir. Mikilvægt er að leita ráðgjafar stéttarfélags eða lögmanns tímanlega.

Aðlögun starfa og endurkoma til vinnu

Eftir slys eða veikindi getur verið þörf á breyttu starfshlutfalli, breyttum verkefnum eða vinnuaðstöðu. Lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði leggja þá skyldu á atvinnurekendur að gera viðeigandi ráðstafanir, sé þeirra þörf í sérstöku tilviki, til að gera fötluðum einstaklingum og einstaklingum með skerta starfsgetu kleift að taka þátt í starfi, enda séu ráðstafanirnar ekki of íþyngjandi fyrir atvinnurekandann.

Sjá einnig endurkoma til starfa – starfshæfnisvottorð og hlutaveikindi og starfsendurhæfing. Frá 1. september 2025 hafa sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá Tryggingastofnun komið í stað endurhæfingarlífeyris.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt