Vinnu­vernd í fjar­vinnu

Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum gilda einnig þegar unnið er að heiman eða utan fastrar starfsstöðvar. Atvinnurekandi ber áfram ábyrgð á vinnuvernd starfsfólks í fjarvinnu.

Gilda vinnuverndarreglur um fjarvinnu?

Já. Ekki eru til sérstök lög um fjarvinnu hér á landi, en lög nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum gilda um alla starfsemi, óháð því hvar vinnan fer fram. Atvinnurekandi ber því ábyrgð á vinnuvernd starfsfólks í fjarvinnu með sama hætti og á fastri starfsstöð. Um almenn réttindi og skyldur í fjarvinnu er fjallað á síðunni fjarvinna.

Áhættumat og vinnuaðstaða

Áhættumat atvinnurekanda á einnig að ná til fjarvinnu. Þar þarf meðal annars að huga að:

  • vinnuaðstöðu og búnaði, svo sem vinnustól, vinnuborði, skjá og lýsingu,
  • líkamlegu álagi við langvarandi skjávinnu,
  • skipulagi vinnutíma og möguleikum starfsfólks til að taka hlé,
  • upplýsinga- og netöryggi.

Vinnuaðstaða á heimili jafnast ekki alltaf á við aðstöðu á vinnustað. Eðlilegt er að atvinnurekandi og starfsmaður komi sér saman um hvaða búnað atvinnurekandi leggur til og hvernig staðið er að mati á aðstæðum.

Aðgangur að heimili starfsmanns

Heimili starfsmanns nýtur friðhelgi samkvæmt 71. gr. stjórnarskrárinnar. Atvinnurekandi getur því ekki krafist aðgangs að heimili starfsmanns til að meta vinnuaðstöðu nema með samþykki hans. Mat á vinnuaðstöðu í heimavinnu fer því oftast fram með samtali, gátlista eða sjálfsmati starfsmanns, í samráði við öryggistrúnaðarmann eftir því sem við á.

Sálfélagslegir áhættuþættir

Fjarvinna getur aukið sveigjanleika og dregið úr ferðatíma, en henni geta einnig fylgt áhættuþættir sem atvinnurekandi þarf að taka tillit til:

  • félagsleg einangrun og minni tengsl við samstarfsfólk og stjórnendur,
  • óljós mörk vinnu og einkalífs og væntingar um að starfsfólk sé ávallt til taks,
  • minni aðgangur að faglegum stuðningi og upplýsingum.

Reglur um hvíldartíma og hámarksvinnutíma gilda í fjarvinnu eins og annars staðar, sjá vinnutími, hvíld og heilsa og rétturinn til að aftengjast.

Fjarvinnustefna

Vinnueftirlitið mælir með að vinnustaðir setji sér skýra fjarvinnustefnu þar sem meðal annars er fjallað um áhættumat, vinnuaðstöðu og búnað, vinnutíma, samskipti og ábyrgð.

Þróun á vettvangi Evrópusambandsins

Framkvæmdastjórn ESB hefur haft til skoðunar nýjar reglur um fjarvinnu og rétt starfsfólks til að aftengjast, meðal annars í tengslum við fyrirhugaða löggjöf um gæðastörf (Quality Jobs Act). Engar slíkar reglur hafa verið samþykktar. Verði þær samþykktar öðlast þær ekki gildi hér á landi nema þær verði teknar upp í EES-samninginn og innleiddar í íslenskan rétt.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt