Að­ila­skipti og út­vist­un

Sala fyrirtækis eða annað framsal rekstrar til nýs atvinnurekanda réttlætir ekki eitt og sér uppsögn starfsfólks. Réttindi og skyldur samkvæmt ráðningarsamningum flytjast sjálfkrafa til nýs atvinnurekanda.

Hvenær er um aðilaskipti að ræða?

Aðilaskipti geta átt sér stað við sölu fyrirtækis, samruna, útvistun verkefna, endurútboð þjónustu eða þegar starfsemi flyst frá einum rekstraraðila til annars. Um réttarstöðu starfsfólks gilda lög nr. 72/2002 um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum, sem innleiða tilskipun 2001/23/EB.

Samkvæmt lögunum eru aðilaskipti framsal á efnahagslegri einingu sem heldur einkennum sínum, þ.e. skipulagðri heild verðmæta sem notuð er í efnahagslegum tilgangi, hvort sem um aðal- eða stoðstarfsemi er að ræða (2. gr.).

Evrópudómstóllinn hefur lagt áherslu á heildarmat á öllum atvikum (mál 24/85, Spijkers). Meðal þess sem litið er til er:

  • hvort starfsemin heldur áfram með sambærilegum hætti,
  • hvort starfsfólk flyst til nýs atvinnurekanda,
  • hvort tæki, búnaður eða önnur rekstrarverðmæti flytjast,
  • hvort viðskiptavinir eða verkefni fylgja með,
  • hversu mikil samfella er í rekstrinum.

Í vinnuaflsfrekri starfsemi, svo sem ræstingum, umönnun eða öryggisgæslu, getur yfirtaka verulegs hluta starfsfólks ráðið úrslitum. Þar sem tæki eða sérhæfður búnaður eru meginforsenda starfseminnar vegur yfirfærsla slíkra verðmæta þyngra. Það eitt að nýr aðili taki við verkefni sem annar sinnti áður nægir þó ekki (mál C-13/95, Süzen).

Gilda reglurnar hjá hinu opinbera?

Lögin taka til einstaklinga, félaga, opinberra aðila og annarra sem stunda atvinnurekstur, án tillits til þess hvort hann er rekinn í hagnaðarskyni (2. gr.). Þau gilda hins vegar ekki um breytingar á skipulagi og starfsháttum stjórnvalds eða tilfærslu á verkefnum milli stjórnvalda (1. gr.).

  • Þegar ráðuneyti eða stofnanir eru sameinaðar eða verkefni flutt milli ríkisstofnana gilda lögin ekki. Um réttarstöðu starfsfólks fer þá eftir lögum nr. 70/1996 og sérlögum um breytinguna. Sjá niðurlagningu starfa, sameiningu og breytt rekstrarform.
  • Þegar opinber verkefni eru útvistuð til einkaaðila, eða opinber aðili sem stundar atvinnurekstur framselur rekstur, geta lögin átt við.

Hvaða réttindi flytjast?

Réttindi og skyldur framseljanda samkvæmt ráðningarsamningi eða ráðningarsambandi sem er til staðar þegar aðilaskiptin eiga sér stað færast yfir til framsalshafa, þar á meðal vanefndir framseljanda á skyldum sínum fyrir aðilaskiptin (3. gr.). Nýr atvinnurekandi tekur þannig meðal annars við kröfum starfsfólks vegna vangoldinna launa.

Til réttinda sem flytjast teljast meðal annars:

  • launakjör og starfshlutfall,
  • starfsaldurstengd réttindi,
  • áunninn orlofsréttur,
  • önnur réttindi samkvæmt ráðningarsamningi.

Kjarasamningsbundin réttindi

Framsalshafi skal virða áfram launakjör og starfsskilyrði samkvæmt kjarasamningi með sömu skilyrðum og giltu fyrir framseljanda, þar til kjarasamningi er sagt upp, hann rennur út eða annar kjarasamningur öðlast gildi eða kemur til framkvæmda (3. gr.).

Lífeyrisréttindi

Reglan um flutning réttinda gildir ekki um rétt til elli- og örorkulífeyris eða eftirlifendabóta úr lífeyrissjóðum fyrir eina eða fleiri starfsstéttir sem starfa samkvæmt sérstökum lögum eða reglugerðum. Aðilaskipti geta þó aldrei leitt til skerðingar á áunnum réttindum úr slíkum sjóðum, hvort sem starfsmaður starfar áfram hjá fyrirtækinu eða ekki (3. gr.).

Má segja upp vegna aðilaskipta?

Framseljanda og framsalshafa er óheimilt að segja starfsfólki upp vegna aðilaskiptanna, bæði fyrir og eftir þau, nema efnahagslegar, tæknilegar eða skipulagslegar ástæður séu fyrir hendi sem hafa í för með sér breytingar á starfsmannahaldi (4. gr.). Ekki nægir að vísa til þess að eigendaskipti hafi orðið eða að nýr rekstraraðili vilji skipuleggja starfsemina á annan hátt.

Verulegar breytingar á starfsskilyrðum. Ef ráðningarsamningi er rift vegna þess að aðilaskiptin hafa leitt til verulegra breytinga á starfsskilyrðum starfsmanni í óhag ber vinnuveitandi ábyrgð á riftuninni (4. gr.). Starfsmaður sem hættir af þessum sökum getur því átt rétt á bótum.

Upplýsingar og samráð

Framseljandi og framsalshafi skulu veita trúnaðarmönnum, eða starfsfólki sjálfu ef trúnaðarmenn eru ekki til staðar, upplýsingar um (6. gr.):

  • dagsetningu aðilaskiptanna eða fyrirhugaða dagsetningu þeirra,
  • ástæður aðilaskiptanna,
  • lagaleg, efnahagsleg og félagsleg áhrif þeirra fyrir starfsfólk,
  • hvort ráðstafanir séu fyrirhugaðar vegna starfsfólks.

Framseljandi skal veita upplýsingarnar með góðum fyrirvara áður en aðilaskiptin koma til framkvæmda. Framsalshafi skal veita þær með góðum fyrirvara og áður en aðilaskiptin hafa bein áhrif á starfsskilyrði starfsfólks. Hyggist annar hvor aðilinn gera ráðstafanir vegna starfsfólks skal hann hafa samráð um þær með góðum fyrirvara með það að markmiði að ná samkomulagi.

Brot gegn lögunum geta leitt til skaðabótaskyldu (8. gr.).

Trúnaðarmenn

Trúnaðarmenn halda stöðu sinni eftir aðilaskipti ef fyrirtækið eða hluti þess heldur sjálfstæði sínu. Missi trúnaðarmaður umboð sitt við aðilaskiptin nýtur hann eftir sem áður þeirrar verndar sem lög eða samningar kveða á um (5. gr.).

Félagsdómur taldi í dómi 25. október 2022 í máli Eflingar gegn Icelandair að öryggistrúnaðarmaður nyti sömu verndar og trúnaðarmaður stéttarfélags við aðilaskipti.

Aðilaskipti við gjaldþrot

Sérreglur gilda þegar fyrirtæki sem tekið hefur verið til gjaldþrotaskipta er framselt:

  • Almennu reglurnar um flutning réttinda og skyldna og um vernd gegn uppsögnum eiga ekki við.
  • Framsalshafi skal þó virða áfram launakjör og starfsskilyrði samkvæmt kjarasamningi eins og þau voru á úrskurðardegi, þar til kjarasamningi er sagt upp, hann rennur út eða annar kemur í hans stað. Hið sama gildir ef fyrrum starfsfólk er endurráðið innan þriggja mánaða frá framsali.
  • Vanefndir þrotabúsins gagnvart starfsfólki fyrir úrskurðardag færast ekki yfir til framsalshafa.

Sjá einnig um gjaldþrot og Ábyrgðasjóð launa.

Tengt efni

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt