Breyt­ingar á störf­um og starfs­kjör­um

Atvinnurekandi getur almennt breytt verkefnum og skipulagi vinnunnar, en verulegar breytingar á launum og öðrum meginþáttum ráðningarsamnings krefjast samþykkis eða uppsagnar með lögmætum fresti.

Hver er munurinn á breytingu á starfi og breytingu á starfskjörum?

Gera þarf greinarmun á tvenns konar breytingum:

  • Breytingar á verkefnum og skipulagi rúmast að jafnaði innan stjórnunarréttar atvinnurekanda. Dæmi eru ný verkefni, breytt verklag, flutningur milli deilda eða endurskoðuð starfslýsing innan sama fagsviðs.
  • Breytingar á starfskjörum varða meginþætti ráðningarsamnings, svo sem laun, fastar greiðslur, starfshlutfall eða vinnutíma. Slíkum breytingum getur atvinnurekandi að jafnaði ekki komið á einhliða nema með því að segja upp viðkomandi ráðningarkjörum með þeim uppsagnarfresti sem starfsmaðurinn á rétt á.

Breytingar á störfum geta einnig verið gerðar með samkomulagi. Starfsfólk ætti þó ekki að samþykkja breytingar sem skerða kjör þess án þess að hafa leitað ráðgjafar hjá stéttarfélagi sínu.

Starfsfólk ríkisins

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins er starfsfólki ríkisins skylt að hlíta breytingum á störfum sínum og verksviði frá því að það tók við starfi. Ákvæðinu fylgja tvær mikilvægar takmarkanir:

  • Starfsmaður getur kosið að segja upp starfi sínu vegna breytinganna, enda tilkynni hann forstöðumanni það innan eins mánaðar frá því að honum var tilkynnt um þær.
  • Ef breytingarnar skerða launakjör eða réttindi starfsmanns heldur hann óbreyttum launakjörum og réttindum í jafnlangan tíma og uppsagnarfrestur hans er, eða, ef um embættismann er að ræða, þann tíma sem eftir er af skipunartíma hans.

Breytingar samkvæmt 19. gr. verða að byggjast á málefnalegum sjónarmiðum og mega ekki vera meira íþyngjandi en nauðsynlegt er. Breyting sem er svo umfangsmikil að í raun er um nýtt starf að ræða getur jafngilt niðurlagningu starfs. Sjá nánar um niðurlagningu starfa og biðlaun.

Mannauðstorg ríkisins hefur gefið út leiðbeiningar um breytingar á störfum.

Starfsfólk sveitarfélaga og á almennum vinnumarkaði

Á almennum vinnumarkaði og hjá sveitarfélögum ræðst svigrúm atvinnurekanda til breytinga af ráðningarsamningi og þeim kjarasamningi sem gildir um starfið. Því nákvæmar sem starfinu er lýst í ráðningarsamningi, þeim mun þrengra er svigrúmið til einhliða breytinga.

Ákvarðanir sveitarfélaga um starfsmannamál, svo sem uppsagnir, eru stjórnvaldsákvarðanir og lúta stjórnsýslulögum nr. 37/1993 og óskráðum reglum stjórnsýsluréttar.

Getur breyting á starfskjörum jafngilt uppsögn?

Já. Samkvæmt ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins frá 19. apríl 2023 í máli E-9/22 telst það uppsögn í skilningi tilskipunar 98/59/EB um hópuppsagnir þegar vinnuveitandi gerir einhliða og starfsmanni í óhag verulegar breytingar á meginþætti ráðningarsamnings hans af ástæðum sem tengjast ekki starfsmanninum sjálfum.

Málið varðaði uppsögn samninga um fasta yfirvinnu hjá starfsfólki stoðeininga Landspítala. Landsréttur taldi að um hópuppsögn hefði verið að ræða, en Hæstiréttur sneri þeirri niðurstöðu við í dómi 18. september 2024 í máli nr. 3/2024. Hæstiréttur taldi breytingarnar ekki svo verulegar að þær teldust uppsögn.

Af þessu leiðir:

  • Hvort breyting sé veruleg ræðst af atvikum hverju sinni, meðal annars af umfangi kjaraskerðingarinnar og því hvort hún snertir meginþátt ráðningarsamningsins.
  • Breyting sem jafngildir uppsögn getur talist með þegar metið er hvort hópuppsögn sé fyrirhuguð. Sjá nánar um hópuppsagnir.

Hvað á ég að gera ef mér er tilkynnt um breytingu?

  1. Óskaðu eftir skriflegri lýsingu á breytingunni, ástæðum hennar og gildistöku.
  2. Berðu breytinguna saman við ráðningarsamning, starfslýsingu og kjarasamning.
  3. Kannaðu hvort breytingin hafi áhrif á laun, fastar greiðslur, starfshlutfall eða vinnutíma.
  4. Hafðu samband við trúnaðarmann eða aðildarfélag þitt áður en þú samþykkir breytinguna eða segir upp.
  5. Gættu að frestum, til dæmis eins mánaðar fresti starfsfólks ríkisins til að segja upp vegna breytinga samkvæmt 19. gr.

Tengt efni

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt