

Yfirlit formanns
Eins og venjulega er í mörg horn að líta á skrifstofu bandalagsins og í félagspólitíkinni er líka líf og fjör. Það sem borið hefur hæst undanfarið er samtal við stjórnvöld vegna þrálátrar verðbólgu og mögulegra aðgerða til að tryggja að forsenduákvæði kjarasamninga haldi. Þar er við ramman reip að draga og engar einfaldar aðgerðir sem hægt er að grípa til. Þó rætt sé um hægfara kólnun í hagkerfinu og á vinnumarkaði, verður ekki framhjá því litið að enn er mikið álag á öll okkar samfélagslegu kerfi; heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfi.
Aðferðir til að bregðast við auknu álagi þar, sem leiðir til aukinna veikindaforfalla, virðast ekki í sjónmáli þó ekki sé hægt að saka stjórnvöld um að þau skelli skollaeyrum við ástandinu. Við blasir augljós innviðaskuld, svo gripið sé til tískuorðs úr umræðunni, og stjórnvöld hafa lýst sig reiðubúin til að hlusta á allar góðar hugmyndir hagsmunasamtaka launafólks, sem mættu verða til þess að ná utan um vandann.
Undirbúningur undir aðalfund BHM er nú kominn í fullan gang, eins og aðildarfélögin hafa orðið vör við. Fundurinn verður haldinn á Hótel Hilton Reykjavík Nordica 21. maí nk. og verður með hefðbundnu sniði, en á vettvangi samræmingarhóps um innra starf BHM eru hafnar umræður um endurnýjað fyrirkomulag aðalfunda og stefnumótunarþinga bandalagsins. Sú umræða er á byrjunarreit en ýmsar hugmyndir til skoðunar sem væru til þess fallnar að nútímavæða þessar mikilvægu stofnanir í starfi BHM. Allar hugmyndir inn í þá deiglu væru vel þegnar. Það sama má segja ef uppi eru hugmyndir að efni fræðslufunda BHM eða nýrra morgunverðarfunda, þá er alltaf hægt að koma slíku til okkar gegnum netfangið bhm@bhm.is

Morgunverðarfundur um stöðu mæðra á vinnumarkaði
Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars stóð BHM fyrir morgunverðarfundi um stöðu mæðra á vinnumarkaði. Fundurinn var haldinn í Norræna húsinu föstudaginn 6. mars.
Á fundinum var leitast við að varpa ljósi á stöðu mæðra á vinnumarkaði, áhrif barneigna á tekjur þeirra og lífeyri og hvernig umönnunarbilið er að meiri hluta brúað af mæðrum. BHM gerði ítarlega greiningu sem sýnir að þátttaka kvenna í atvinnulífinu hefur aukist, menntunarstig hækkað og hlutdeild í fjölmörgum starfsgreinum styrkst. Þrátt fyrir þessar framfarir er kerfislægur munur milli kynjanna í starfshlutfalli, tekjum og starfsþróun enn til staðar, sem leiðir til uppsafnaðs ójafnaðar yfir starfsævina.
Þessi ójöfnuður tengist meðal annars skipulagi vinnumarkaðarins, kynbundinni skiptingu atvinnugreina og því hvernig ábyrgð á umönnun og fjölskyldulífi er dreift.
Fundurinn var virkilega vel heppnaður. Ásamt fræðandi og áhugaverðum erindum voru viðtöl við mæður sem lýstu upplifun af því að tengja saman þátttöku á vinnumarkaði og einkalíf – og hvernig umönnunarbilið hafði áhrif á það samspil

Morgunverðarfundur um stöðu og horfur á vinnumarkaði
BHM stóð fyrir morgunverðarfundi fimmtudaginn 26. febrúar í Norræna húsinu þar sem rýnt var í stöðu og þróun á vinnumarkaði. Spurt var: Hvert stefnir íslenskur vinnumarkaður – og hvaða tækifæri og áskoranir bíða okkar á næstu árum?
BHM vann viðamikla greiningu á stöðu og þróun vinnuafls á Íslandi sem sýnir að íslenskur vinnumarkaður stendur á tímamótum. Þróun síðustu ára hefur verið önnur en við höfum átt að venjast fram að þessu þar sem fæðingartíðni hefur dregist saman en þörf fyrir vinnuafl vaxið á sama tíma. Starfandi fólki hefur fjölgað um 37% á síðustu 20 árum, að stærstum hluta er um að ræða aðflutt vinnuafl. Án innflytjenda hefði fjölgunin að líkindum aðeins verið um 10%. Hlutfall innlends vinnuafls á vinnumarkaði hefur farið úr 94% í 75% á þessum árum.
Einnig kynnti Vinnumálastofnun þróun atvinnuþátttöku og sviðsmyndir, hvar störf skapast og hvar þau tapast m.t.t. menntunar.

Stjórnvöld marka heildarstefnu gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði
Stjórnvöld hafa í fyrsta sinn sett fram heildstæða stefnu til að sporna gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Með stefnunni fylgir ítarleg aðgerðaáætlun í 13 liðum sem mótuð var í samstarfi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins.
Aðgerðirnar miða að því að efla samstarf eftirlitsstofnana, bæta greiningu gagna, styrkja útgáfu dvalar- og atvinnuleyfa, herða viðurlög við brotum og auka fræðslu til atvinnurekenda og launafólks.
Fulltrúar BHM í samstarfsnefndinni, Andri Valur Ívarsson og Ingvar Sverrisson, komu að vinnunni fyrir hönd bandalagsins og leggja áherslu á mikilvægi sameiginlegrar ábyrgðar á heilbrigðum vinnumarkaði. Stefnan var unnin í breiðum hópi og komu fulltrúar frá stjórnvöldum, samtökum launafólks og atvinnulífs og stofnunum.
Stefnan og aðgerðaáætlunin gilda til 2028.
Sjá nánar á vef stjórnarráðsins.

Norrænt samstarf um aukinn viðbúnað á óvissutímum

Hagstofan undirbýr samræmda gagnaöflun um veikindafjarvistir
Hagstofan hefur hafið undirbúning að nýrri, samræmdri gagnaöflun um veikindafjarvistir á íslenskum vinnumarkaði. Markmiðið er að bæta yfirsýn, tryggja samanburðarhæfni og styrkja þekkingu á umfangi og þróun veikinda meðal launafólks.
Í tengslum við verkefnið boðar Hagstofan til vinnustofu 18. mars 2026 kl. 9:30–12:00 í húsakynnum sínum. Þar munu fulltrúar aðila vinnumarkaðarins, ásamt VIRK, fara yfir fyrstu drög að gagnalýsingu og leggja mat á fyrirhugaða gagnasöfnun.
Tilgangur vinnustofunnar er tvíþættur:
- Að tryggja sameiginlegan skilning á þeim gögnum sem á að safna og meta drög að gagnalýsingu.
- Að kortleggja þarfir notenda og bera þær saman við áform Hagstofunnar um gagnaöflun.
Ingvar Freyr Ingvarsson hagfræðingur BHM mun taka þátt í vinnustofunni og upplýsa aðildarfélög BHM um framvindu verkefnisins og næstu skref.

Starfshópur um húsnæðislánakerfið
Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað starfshóp sem fjalla á um nýtt húsnæðislánakerfi á Íslandi. Starfshópurinn er skipaður fulltrúum frá stjórnvöldum, samtökum launafólks og atvinnulífs, fjármálageiranum og stofnunum. Fulltrúi BHM í hópnum er Sigrún Brynjarsdóttir hagfræðingur.
Hópurinn hefur tvö meginverkefni:
- Að greina áhrif svokallaðra vaxtadóma á lánaframboð og stöðu neytenda og meta hvort þörf sé á breytingum á lögum um fasteignalán til neytenda. Tillögum um þetta verkefni skal skila eigi síðar en 12. júní 2026.
- Að greina hvort, og hvernig, taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi til lengri tíma, með hliðsjón af erlendum fyrirmyndum, og leggja fram tillögur að kerfi sem eykur gagnsæi og fyrirsjáanleika fyrir lántakendur. Niðurstöður um það verkefni skulu liggja fyrir 12. mars 2027.
BHM tekur virkan þátt í vinnunni með það að markmiði að tryggja sterkari neytendavernd og sanngjarnt fyrirkomulag húsnæðislána fyrir félagsfólk aðildarfélaga BHM.

Breytingar á örorkubótarétti á vinnumarkaði
Fræðsluerindi BHM 24. mars næstkomandi á 3. hæð í Borgartúni 27. Gylfi Jónu Arnbjarnarson mun fara yfir hugmyndir að kerfisbreytingum sem eru til skoðunar, útskýra helstu áherslur og svara spurningum.
Í fjárlagafrumvarpi 2026 var upphaflega gert ráð fyrir að jöfnunarframlag ríkisins vegna örorkubyrði lífeyrissjóða yrði fellt niður. Því var mótmælt af aðilum vinnumarkaðarins, bæði samtökum launafólks og atvinnurekenda, sem varð til þess að í meðförum þingsins var málinu breytt og tímabundið jöfnunarframlag sett inn í lögin, sambærilegt við það sem gilti árin á undan. Í framhaldinu var sett af stað vinna við að skoða málið heildstætt, m.a. með hliðsjón af gagnvirkni víxlverkunar milli greiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða.
Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa átt hlutdeild í vinnunni en af hálfu stjórnvalda þeir Gylfi Jónu Arnbjarnarson og Benedikt Jóhannesson. Fyrst um sinn varðar málið endurskoðun á þeim þætti kjarasamnings SA og ASÍ sem snýr að lífeyrismálum, afkomutryggingu launafólks sem missir starfsorku vegna veikinda og slysa, með áherslu á aukið vægi starfsendurhæfingar og endurkomu til vinnu. Fyrir skemmstu var fulltrúum annarra heildarsamtaka launafólks kynnt staða vinnunnar og þær hugmyndir sem eru til skoðunar.
Á fundinum gefst tækifæri til að afla frekari upplýsinga um hugmyndirnar sem að baki liggja og fá skýringar á framvindu málsins.

BHM styður hert viðurlög við höfundarlagabrotum
BHM hefur sent frá sér umsögn um drög að frumvarpi til breytinga á refsiramma höfundalaga (mál nr. S-54/2026) í samráðsgátt stjórnvalda. Bandalagið fagnar áformum um að herða eigi viðurlög við stórfelldum eða ítrekuðum brotum og telur breytingarnar nauðsynlegar til að verja hagsmuni háskólamenntaðs fagfólks í listum og skapandi greinum.
Málið snertir fjölmargt félagsfólk innan aðildarfélaga bandalagsins sem starfa við sköpun og framleiðslu menningarefnis. Í umsögn sinni lýsir BHM áhyggjum af vaxandi ólögmætri miðlun efnis, meðal annars í gegnum IP-sjónvarp og myndþjóna, enda grafi slík starfsemi undan starfskjörum og lífsviðurværi listafólks og sérfræðinga.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að hámarksrefsing vegna alvarlegra brota hækki úr tveimur árum í sex ár. BHM telur þetta nauðsynlegt skref þar sem það veitir lögreglu rýmri og skilvirkari heimildir til rannsókna, sendir skýr skilaboð um alvarleika brotanna, auk þess sem það samræmir íslenska löggjöf því sem gerist á öðrum Norðurlöndum og innan ESB.
BHM styður því frumvarpið og hvetur til þess að það nái fram að ganga á Alþingi til að tryggja að höfundar njóti sanngjarns arðs af verkum sínum.

Landsþing LÍS 2026
Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) halda sitt árlega Landsþing 20. - 22. mars næstkomandi í Háskólanum á Akureyri. Landsþingið er stærsti samráðsvettvangur íslenskra háskólanema og verður helgin nýtt í að meitla áherslur stúdenta allra háskólanna varðandi fyrirhugaða háskólastefnu Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Afurð þingsins verður formlega afhent ráðuneytinu og mun nýtast LÍS og BHM í hagsmunabaráttu fyrir háskólasamfélagið.

Fréttir frá þjónustuveri BHM
Páskaúthlutun orlofskosta fór fram þann 10. febrúar. Skemmst er frá því að segja að umsóknarfjöldi var mikill. Alls bárust 2550 umsóknir um 48 orlofskosti í páskavikunni. Flestar umsóknir vegna Hálanda á Akureyri, alls 360. Það má því með sanni segja að færri hafi komist að en vildu.
Nú stendur yfir umsóknartímabil vegna úthlutunar orlofskosta í sumar. Lokafrestur til að setja inn umsókn er 15. mars kl. 23:59. Ekki skiptir máli hvenær umsókn berst fram að því. Slembiúthlutun er keyrð út 17. mars og verður sendur tölvupóstur seinnipartinn þann dag á öll sem sóttu um.
Gjafabréf hjá Íslandshótelum
Orlofssjóður BHM býður nú sjóðfélögum upp á gjafabréf með afslætti á gistingu hjá hótelkeðjunni Íslandshótel, sem eru 17 talsins vítt og breitt um landið.
Sjóðfélagi getur keypt 2 stk. af Íslandshótel gjafabréfum á almannaksári.
Hvert bréf er að andvirði kr. 25.000 kr. og kostar 18.000 kr. fyrir sjóðfélaga.
Liðsauki í þjónustuver
Þjónustuveri BHM barst liðsauki nú í upphafi vikunnar þegar Arndís Hrund Árnadóttir tók við starfi þjónustufulltrúa. Við bjóðum Arndísi velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins.

