Með­ganga og vinnu­vernd

Barnshafandi starfsmaður á rétt á fjarvistum vegna mæðraskoðunar án launaskerðingar. Vinnuveitandi ber jafnframt ábyrgð á að meta áhættu í starfi og gera ráðstafanir til að vernda öryggi og heilsu á meðgöngu og meðan barn er á brjósti.

Mæðraskoðun á launum

Barnshafandi starfsmaður á rétt á nauðsynlegum fjarvistum frá vinnu vegna mæðraskoðunar, án frádráttar á föstum launum, ef skoðunin þarf að fara fram í vinnutíma. Rétturinn byggist á eftirfarandi:

Rétturinn á rætur í 9. gr. tilskipunar 92/85/EBE um öryggi og heilbrigði þungaðra starfsmanna.

Áhættumat og ráðstafanir á vinnustað

Samkvæmt reglugerð nr. 931/2000, sem sett er á grundvelli laga nr. 46/1980, ber vinnuveitanda að meta áhættu fyrir öryggi og heilbrigði starfsmanns sem er þunguð, hefur nýlega fætt barn eða hefur barn á brjósti. Reglurnar eiga við þegar starfsmaður hefur greint vinnuveitanda frá aðstæðum sínum.

Ef öryggi eða heilsu er stefnt í hættu skal vinnuveitandi gera nauðsynlegar ráðstafanir, til dæmis:

  1. breyta vinnuskilyrðum eða vinnutíma tímabundið,
  2. fela starfsmanni önnur verkefni ef ekki er unnt að breyta vinnuskilyrðum,
  3. veita starfsmanni leyfi frá störfum ef hvorugt er unnt.

Leyfi á meðgöngu og greiðslur

  • Áhætta í starfi: Þurfi að veita barnshafandi starfsmanni leyfi frá störfum af öryggis- eða heilsufarsástæðum, sem tengjast starfinu, á hann rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og lengingu fæðingarorlofs. Laun og starfstengd réttindi mega ekki skerðast vegna breytinga á starfi, sbr. 16. gr. laga nr. 144/2020.
  • Veikindi tengd meðgöngu: Ef barnshafandi konu er nauðsynlegt af heilsufarsástæðum, sem tengjast meðgöngunni, að fá leyfi frá störfum meira en mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag á hún rétt á lengingu fæðingarorlofs með greiðslum, þó aldrei lengur en í tvo mánuði. Vottorð sérfræðilæknis þarf að liggja fyrir, sbr. 17. gr.

Vernd gegn uppsögn

Óheimilt er að segja barnshafandi starfsmanni upp nema gildar ástæður séu fyrir hendi. Þá skal skriflegur rökstuðningur fylgja, sbr. 50. gr. laga nr. 144/2020. Sjá Uppsagnarvernd.

Mæðravernd heilsugæslunnar

Mæðravernd er barnshafandi konum að kostnaðarlausu ef þær eru sjúkratryggðar á Íslandi. Sjá upplýsingar um meðgöngu og mæðravernd á Ísland.is.

Sjá einnig: Ég á von á barni – minnislisti og Fæðingarorlof.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt