Ég á von á barni – minn­is­listi

Yfirlit yfir helstu skref og fresti frá meðgöngu til endurkomu til starfa. Nánari umfjöllun er á undirsíðum um meðgöngu, fæðingarorlof og foreldraorlof.

Á meðgöngu

  • Láttu vinnuveitanda vita þegar þér hentar. Reglur um vernd þungaðra kvenna á vinnustað eiga við þegar starfsmaður hefur greint vinnuveitanda frá þunguninni, sbr. reglugerð nr. 931/2000.
  • Mæðraskoðun: Barnshafandi starfsmaður á rétt á nauðsynlegum fjarvistum vegna mæðraskoðunar án frádráttar á föstum launum ef skoðunin þarf að fara fram í vinnutíma. Sjá Meðganga og vinnuvernd.
  • Áhættumat: Ef starfið getur stefnt öryggi eða heilsu í hættu ber vinnuveitanda að gera ráðstafanir, svo sem að breyta vinnuskilyrðum eða vinnutíma.

Að minnsta kosti átta vikum fyrir áætlaðan fæðingardag

  • Tilkynntu vinnuveitanda um fyrirhugaða töku fæðingarorlofs, upphafsdag og tilhögun, sbr. 12. gr. laga nr. 144/2020.

Sex vikum fyrir áætlaðan fæðingardag

  • Sæktu um greiðslur hjá Fæðingarorlofssjóði. Þegar sótt er um á Ísland.is fær vinnuveitandi tilkynningu um fyrirhugaða töku fæðingarorlofs.

Í kringum fæðingu

  • Heimilt er að hefja fæðingarorlof allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag.
  • Foreldri sem fætt hefur barn skal vera í fæðingarorlofi að minnsta kosti fyrsta hálfa mánuðinn eftir fæðingu.
  • Viljir þú breyta tilhögun þarf að tilkynna það a.m.k. þremur vikum fyrir nýjan upphafsdag.

Á fyrstu tveimur árunum

  • Réttur til fæðingarorlofs fellur niður þegar barnið nær 24 mánaða aldri.
  • Hvort foreldri á sjálfstæðan rétt til allt að sex mánaða og getur framselt sex vikur til hins. Sjá Fæðingarorlof.

Fram að átta ára aldri barns

  • Hvort foreldri á rétt til fjögurra mánaða ólaunaðs foreldraorlofs. Tilkynna þarf vinnuveitanda í síðasta lagi sex vikum fyrir upphaf. Sjá Foreldraorlof.

Endurkoma til starfa

  • Að loknu fæðingar- eða foreldraorlofi á starfsmaður rétt á að snúa aftur í sama starf eða sambærilegt, sbr. 49. gr. laga nr. 144/2020.
  • Óheimilt er að segja starfsmanni upp vegna þess að hann hefur tilkynnt um töku fæðingar- eða foreldraorlofs eða er í slíku orlofi, nema gildar ástæður séu fyrir hendi. Þá skal skriflegur rökstuðningur fylgja. Sama gildir um barnshafandi starfsmann og starfsmann sem nýlega hefur fætt barn, sbr. 50. gr. Sjá Uppsagnarvernd.
  • Fæðingarorlof reiknast til starfstíma, til dæmis við ávinnslu orlofsréttar. Sjá einnig Orlofsrétt.

Hvert get ég leitað?

Leitaðu til aðildarfélagsins þíns og kynntu þér fæðingarstyrki úr sjóðum BHM.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt