I. kafli: HLUTVERK
1.0. Heiti
BHM er bandalag háskólamenntaðra og heildarsamtök stéttar- og fagfélaga háskólamenntaðra á vinnumarkaði.
Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
1.1. Hlutverk BHM er að:
- efla aðildarfélög bandalagsins og starf þeirra í því skyni að stuðla að gagnkvæmum stuðningi og samstöðu um hagsmuni háskólamenntaðra á vinnumarkaði og efla þekkingu þeirra á réttinda- og kjaramálum
- móta sameiginlega stefnu aðildarfélaga í hagsmunamálum þeirra
- semja um sameiginleg hagsmuna- og réttindamál félagsfólks aðildarfélaga samkvæmt umboði og vera aðildarfélögum til fulltingis við gerð kjarasamninga og standa vörð um hagsmuni félagsfólks gagnvart stjórnvöldum og löggjafarvaldi
- vinna reglubundna greiningu á launaþróun á vinnumarkaði til undirbúnings kjaraviðræðna og upplýsa aðildarfélög þar um
- hafa frumkvæði að umræðu um háskólamenntun og stöðu háskólamenntaðra á vinnumarkaði og gæta hagsmuna þeirra alla starfsævina, námsárin meðtalin
- eiga samstarf við systursamtök háskólamenntaðra og önnur sambærileg samtök erlendis
- hafa áhrif á umræðu um efnahags- og þjóðfélagsmál í þágu félagsfólks
- hvetja til atvinnusköpunar á sviði hugvits og sérfræðiþekkingar
II. kafli: AÐILD
2.0. Aðildarskilyrði
Öll hagsmunatengd félög og/eða stéttarfélög háskólamenntaðra, sem uppfylla skilyrði þessara laga, geta átt aðild að BHM.
Meirihluti félagsfólks aðildarfélags skal hafa lokið bakkalár-gráðu eða sambærilegu námi. Heimilt er að víkja frá fyrrgreindu skilyrði ef öll nýliðun í hlutaðeigandi fagstétt uppfyllir nefnd skilyrði. Að jafnaði skal stefnt að því að aðeins eitt félag sömu fagstéttar eigi aðild að BHM.
2.1. Umsókn um aðild
Umsókn um aðild skal berast stjórn BHM minnst tveimur mánuðum fyrir aðalfund BHM. Umsókninni skulu fylgja lög viðkomandi félags, upplýsingar um félagatal, menntun félagsfólks og skilyrði fyrir aðild að félaginu.
Umsókn félags um aðild að BHM skal hafa hlotið samþykki aðalfundar þess félags áður en umsóknin er send til BHM.
Stjórn BHM kannar hvort umsóknin uppfyllir skilyrði til aðildar að BHM.
Sé umsóknin fullnægjandi, getur stjórn veitt bráðabirgðaaðild fram að næsta aðalfundi en slík aðild veitir ekki atkvæðis-, kosningarétt né kjörgengi á þeim aðalfundi.
Aðildarumsókn skal lögð fyrir aðalfund og telst aðild fullgild að fengnu samþykki fundarins.
2.2. Skyldur aðildarfélaga
Aðildarfélög hafa fullt frelsi um sín innri mál, þannig að samrýmist lögum BHM og samþykktum aðalfundar.
Hvert aðildarfélag skal annast þjónustu við félagsfólk sitt meðal annars hvað varðar kjara- og réttindamál.
Aðildarfélögum ber skylda til að upplýsa BHM um starfsemi sína reglulega, s.s. um gerð nýrra kjarasamninga og stofnanasamninga. Aðildarfélag skal árlega senda bandalaginu skýrslu stjórnar að loknum aðalfundi félagsins.
III. kafli: AÐALFUNDUR
3.0. Aðalfundur
Aðalfundur BHM fer með æðsta vald í þeim málefnum bandalagsins sem ekki falla undir BHM þing. Hann skal halda fyrir lok maímánaðar ár hvert.
Formannaráð ákveður dagsetningu aðalfundar eigi síðar en í októbermánuði árið á undan. Aðalfundur fer fram samhliða BHM þingi þriðja hvert ár.
Stjórn BHM undirbýr aðalfund og ber ábyrgð á framkvæmd aðalfundar sem er að jafnaði staðfundur. Stjórn BHM getur ákveðið að fundurinn verði rafrænn eða staðfundur og rafrænn. Heimilt er að atkvæðagreiðslur fari fram rafrænt.
3.1. Fulltrúar á aðalfundi
Hvert aðildarfélag BHM tilnefnir einn eða tvo fulltrúa sem hafa full réttindi á aðalfundi. Aðalfundarfulltrúar hafa atkvæðisrétt sem tekur mið af meðaltalsfjölda félagsmanna mánuðina ágúst, september og október næstliðins árs. Séu fulltrúar aðildarfélags tveir fara þeir með hvorn sinn helming atkvæða síns félags. Seturétt á aðalfundi á stjórnarfólk og starfsfólk BHM og aðildarfélaga.
Listi yfir fulltrúa á aðalfundi BHM, staðfestur af viðkomandi félagi, skal hafa borist skrifstofu BHM eigi síðar en viku fyrir aðalfund.
3.2. BHM þing
BHM þing skal haldið á þriggja ára fresti. Þingið fer með æðsta vald í stefnumótun bandalagsins, lögum þess og kosningu til trúnaðarstarfa. Þingið er vettvangur samráðs og stefnumótunar aðildarfélaga bandalagsins. Þar skal taka til umfjöllunar öll veigamikil málefni og setja stefnu BHM. Á þinginu fara jafnframt fram kosningar til trúnaðarstarfa innan BHM. Formannaráð undirbýr þing og ákveður dagsetningu þess í síðasta lagi í október árið á undan.
Formannaráð ákveður hvaða þingnefndir starfa á BHM þingi.
Stjórn BHM ber ábyrgð á framkvæmd þingsins sem er að jafnaði staðfundur. Heimilt er að atkvæðagreiðslur fari fram rafrænt.
3.3. Fulltrúar á BHM þingi
Atkvæðisrétt á BHM þingi eiga samtals 200 fulltrúar og skal þeim skipt á milli aðildarfélaga í hlutfalli við fjölda félagsmanna þeirra. Komi sú staða upp að eitthvert aðildarfélag fái engan þingfulltrúa skal fjölga þingfulltrúum og úthluta því félagi 1 fulltrúa með fullum réttindum á þinginu.
Listi yfir fulltrúa á BHM þingi, staðfestur af viðkomandi félagi, skal hafa borist skrifstofu BHM eigi síðar en þremur vikum fyrir þing. Hver fulltrúi með kjörbréf hefur eitt atkvæði á þinginu og í rafrænni kosningu fyrir þing.
Tala fulltrúa miðast við meðaltalsfjölda félagsmanna mánuðina ágúst, september og október næstliðins árs.
3.4. Boðun
Boðun á aðalfund skal send með rafrænum hætti til aðildarfélaga með minnst þriggja vikna fyrirvara. Í fundarboði skal geta dagskrár. Þá skulu tillögur að breyttum aðildargjöldum fylgja fundarboði. Önnur fundargögn skulu gerð aðgengileg aðalfundarfulltrúum eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Boðun á BHM þing skal send með rafrænum hætti til aðildarfélaga með minnst tveggja mánaða fyrirvara og skal þar getið dagskrár þingsins.
Eigi síðar en þremur vikum fyrir þing skal gera aðgengileg þingfulltrúum eftirtalin fundargögn: skýrsla stjórnar, tillögur að breytingum á stefnu BHM, aðrar tillögur eða mál sem aðildarfélög, stjórn eða formannaráð óska eftir að verði tekin fyrir á þinginu, framboð til trúnaðarstarfa og fram komnar tillögur að breytingum á lögum BHM. Aðrar lagabreytingatillögur verða ekki teknar fyrir.
Önnur fundargögn skulu gerð aðgengileg þingfulltrúum eigi síðar en 7 dögum fyrir þing.
3.5. Dagskrá aðalfundar
Á dagskrá aðalfunda skulu vera eftirtaldir liðir:
- Kosning fundarstjóra og tveggja ritara
- Skýrsla stjórnar BHM til aðalfundar, til kynningar
- Reikningar BHM
- Starfsáætlun og fjárhagsáætlun, til kynningar
- Ákvörðun aðildargjalda
- Aðildarumsóknir
- Tilkynningar um breytingar á skipulagsskrám og reglugerðum sjóða og staðfesting þeirra
- Ályktanir aðalfundar
- Önnur mál
Atkvæðagreiðsla skal fara fram um dagskrárliði sem eru ekki aðeins til kynningar. Atkvæðagreiðsla um mál sem lögð eru fram undir öðrum málum fer eftir atvikum hverju sinni.
3.6. Dagskrá BHM þings
Á dagskrá BHM þings skulu vera eftirtaldir liðir í þeirri röð sem þing ákveður. Þing ákveður aðra dagskrárliði.
- Kosning þingforseta og tveggja ritara
- Lýst kjöri formanns og varaformanns
- Skýrsla stjórnar BHM til þings
- Lagabreytingar
- Kjör meðstjórnenda í stjórn BHM og fulltrúa í nefndir
- Umræða og afgreiðsla á tillögum þingnefnda
- Ályktanir BHM þings
Atkvæðagreiðsla skal fara fram um liði 1, 4, 5, 6 og 7. Atkvæðagreiðsla um önnur mál sem lögð eru fram á þingi fer eftir atvikum hverju sinni.
3.7. Aukaþing og aukaaðalfundur
Ef brýna nauðsyn ber til getur formannaráð boðað til aukaþings eða aukaaðalfundar með a.m.k. 2/3 hlutum greiddra atkvæða enda sé tillögu um slíkt getið í fundarboði til formannaráðs.
Formannaráð ákveður dagskrá aukaþings eða aukaaðalfundar og skal kynna aðildarfélögum dagskrána með fundarboði með minnst þriggja vikna fyrirvara.
IV. kafli: FORMANNARÁÐ
4.0. Hlutverk
Formannaráð fer með æðsta vald í málefnum BHM á milli þinga og aðalfunda og er samráðsvettvangur aðildarfélaga bandalagsins. Formaður BHM er formaður ráðsins.
Formannaráð mótar stefnu og megináherslur BHM í málum sem kunna að koma upp milli þinga. Það fylgir jafnframt eftir framkvæmd mála sem vísað er til þess af aðalfundi, þingi eða stjórn BHM.
Formannaráð fjallar um og samþykkir árlegar tillögur stjórnar að fjárhagsáætlun og starfsáætlun BHM.
Formannaráð setur sér starfsreglur og reglur um fundasköp á fyrsta fundi eftir aðalfund BHM
4.1. Skipan
Í formannaráði eiga sæti formenn allra aðildarfélaga BHM. Stjórn BHM situr fundi formannaráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt. Forfallist formaður tekur varaformaður hans sæti eða annar tilnefndur fulltrúi úr stjórn viðkomandi félags.
4.2. Atkvæðavægi
Við atkvæðagreiðslu í formannaráði gildir að jafnaði einfaldur meirihluti við afgreiðslu mála.
Krefjist fjórðungur viðstaddra formanna þess, skal niðurstaða ráðast ef saman fer meirihluti aðildarfélaga og fjöldi félagsfólks þeirra.
4.3. Fundir
Formaður BHM boðar fundi formannaráðs og stýrir þeim. Reglulegir fundir ráðsins skulu boðaðir með dagskrá sem að jafnaði skal send út með einnar viku fyrirvara. Formaður skal með hæfilegum fyrirvara óska eftir tillögum frá formönnum aðildarfélaga að dagskrárliðum hvers formannaráðsfundar.
Formannaráð skal á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund setja niður fundartíma sína á starfsárinu. Það skal funda fjórum sinnum á ári hið minnsta. Formannaráð getur fundað án stjórnar að eigin ákvörðun.
Til aukafunda formannaráðs skal boða ef þriðjungur þeirra sem sæti eiga í formannaráði eða meirihluti stjórnar krefst fundar. Slíkir aukafundir skulu boðaðir öllum fulltrúum í formannaráði með dagskrá og ályktunartillögum ef fyrir liggja.
Fundur formannaráðs telst löglegur ef boðað er til hans með sólarhrings fyrirvara.
4.4. Tilnefningar
Formannaráð tilnefnir fulltrúa í ráð, stjórnir, sjóði og nefndir sem BHM hefur tilnefningarrétt til samkvæmt landslögum eða reglugerðum. Ef tilnefning er bundin starfi hjá tilteknum vinnuveitanda og nefndarfulltrúi lætur af þeim störfum skal formannaráð tilnefna annan í embættið í hans stað. Láti fulltrúi í nefnd af störfum tilnefnir formannaráð nýjan í hans stað.
V. kafli: STJÓRN
5.0. Hlutverk
Stjórn starfar í umboði BHM þings og tekur til varna fyrir hönd bandalagsins. Hlutverk stjórnar er að sjá til þess að stefnumarkandi ákvörðunum þinga BHM og aðalfunda sé framfylgt auk þess að bera ábyrgð á fjármálum og rekstri bandalagsins. Þá er stjórn formanni til fulltingis og ráðgjafar í störfum hans.
Stjórn tekur ekki þátt í eða tekur afstöðu í félagspólitískum málum eða pólitískri stefnumörkun á vegum BHM. Fulltrúar í stjórn BHM starfa þar fyrir hönd félagsfólks allra aðildarfélaga BHM, hafa hagsmuni bandalagsins í heild að leiðarljósi og eru bundnir trúnaði í störfum sínum.
Stjórn ræður sér framkvæmdastjóra og gerir um starf hans starfslýsingu. Framkvæmdastjóri situr fundi stjórnar að jafnaði og sér um rekstur skrifstofu og fjár- og mannaforráð fyrir hennar hönd.
Stjórn gerir starfslýsingu og ákveður starfskjör formanns bandalagsins.
Formaður BHM er formaður stjórnar og talsmaður BHM. Stjórn er málsvari BHM.
Stjórn setur sér starfsreglur á fyrsta fundi eftir BHM þing.
5.1. Skipan og kosning
Stjórn BHM skipa formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri, þrír meðstjórnendur og þrír varafulltrúar.
Formaður og varaformaður eru kjörnir sérstaklega í rafrænni kosningu í aðdraganda BHM þings. Meðstjórnendur og varafulltrúar eru kosnir á þingi. Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum.
Ef aðeins einn býður sig fram til embættis á vettvangi BHM skoðast viðkomandi sjálfkjörinn.
Framboðsfrestur til embættis formanns, varaformanns og stjórnar er ákveðinn af framboðsnefnd. Skal fresturinn tiltekinn í auglýsingu nefndarinnar eftir frambjóðendum.
Rafræn atkvæðagreiðsla vegna kjörs formanns og varaformanns skal standa yfir í minnst þrjá sólarhringa og skal henni lokið eigi síðar en degi áður en þing hefst.
5.2. Kjörgengi
Kjörgengir í stjórn BHM eru allir þeir félagar sem sitja í stjórnum aðildarfélaga BHM. Þó má aldrei sitja í stjórn BHM fleiri en einn fulltrúi hvers félags, að frátöldum formanni. Fulltrúar í stjórn BHM skulu vera félagar í aðildarfélagi BHM.
Formaður BHM skal ekki sitja í stjórn aðildarfélags BHM eða gegna öðrum trúnaðarstörfum fyrir aðildarfélag. Hið sama gildir um varaformann ef hann tekur við embætti formanns. Enginn stjórnarfulltrúi skal sitja lengur í stjórn en níu ár í senn, fyrri stjórnarstörf formanns í stjórn BHM skulu þó undanskilin.
5.3. Kjörtímabil
Kjörtímabil stjórnarfulltrúa er á milli BHM þinga.
Ef formaður hættir tekur varaformaður sæti hans fram að næsta þingi sem skal þá boða við fyrsta tækifæri, samkvæmt ákvörðun formannaráðs. Skal þar kjósa nýjan formann til næsta reglulega þings.
Ef varaformaður hættir skal á næsta fundi formannaráðs kjósa nýjan varaformann úr hópi meðstjórnenda í stjórn BHM fram að næsta BHM þingi. Sá varafulltrúi sem flest atkvæði hlaut tekur þá fast sæti sem meðstjórnandi.
5.4. Fundir
Formaður boðar fundi stjórnar að jafnaði einu sinni í mánuði og stýrir þeim. Fund skal boða ef tveir stjórnarfulltrúar óska og skal hann haldinn innan tveggja virkra daga frá því að ósk þess efnis er sett fram. Formaður getur jafnframt boðað aukafundi ef nauðsyn krefur.
Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti sækir fund og ræður einfaldur meirihluti úrslitum mála. Ef atkvæði eru jöfn ræður atkvæði formanns úrslitum.
Við langvarandi eða varanleg forföll stjórnarmanns skal sá varafulltrúi sem flest atkvæði hlaut taka sæti hans til næsta BHM þings. Það sama gildir víki stjórnarmaður úr stjórn.
VI. kafli: NEFNDIR OG KOSNINGAR
6.0. Kosningar
Um kjör í nefndir og fastanefndir gildir eftirfarandi, nema að annað sé tekið fram:
Nefndir eru skipaðar fimm fulltrúum og þremur varafulltrúum, kosnum á BHM þingi. Kjörtímabil nefndarfulltrúa og varafulltrúa er á milli þinga. Fulltrúar í nefndum skulu vera fullgildir félagar í aðildarfélagi BHM. Sá varafulltrúi sem flest atkvæði hlýtur verður fyrsti varafulltrúi. Skal enginn fulltrúi sitja samtímis í fleiri en einni fastanefnd. Enginn skal sitja í sömu nefnd lengur en níu ár samfellt.
Stjórn skipar að auki einn fulltrúa í kjaranefnd, einn fulltrúa í jafnréttisnefnd og einn í lífeyris- og lánanefnd.
6.1. Fastanefndir
Innan BHM starfa eftirfarandi fastanefndir:
- Kjaranefnd
- Jafnréttisnefnd
- Lífeyris- og lánanefnd
Formannaráð setur fastanefndum erindisbréf. Um tilgang og starfsvið nefnda skal fjalla um í erindisbréfi þeirra. Stjórn, formannaráð auk meirihluta nefndarfulltrúa geta kallað eftir breytingum á erindisbréfi viðkomandi nefndar gefi aðstæður tilefni til þess.
Framkvæmdastjóri BHM kallar fastanefndir saman til fyrsta fundar eftir BHM þing þar sem nefndarfulltrúar skipta með sér verkum. Fastanefndir skulu halda fundargerðir.
6.1.1. Kjaranefnd
Kjaranefnd sinnir samhæfingu og samræmingu kjaramála og styður undirbúning kjaraviðræðna.
Sérfræðingur BHM situr fundi nefndarinnar og er ritari hennar. Nánar segir um störf nefndarinnar hverju sinni í erindisbréfi sbr. gr. 6.1.
Nefndin setur sér starfsreglur á fyrsta fundi eftir BHM þing.
6.1.2. Jafnréttisnefnd
Jafnréttisnefnd fylgir eftir jafnréttisstefnu BHM.
Sérfræðingur BHM situr fundi nefndarinnar og er ritari hennar. Nánar segir um störf nefndarinnar hverju sinni í erindisbréfi sbr. gr. 6.1.
Jafnréttisnefnd setur sér starfsreglur á fyrsta fundi eftir BHM þing.
6.1.3. Lífeyris- og lánanefnd
Lífeyris- og lánanefnd sinnir hagsmunagæslu og hefur frumkvæði að umræðu, fræðslu og greiningum um allt sem tengist lífeyrismálum, lána- og námsstyrkjamálum.
Sérfræðingur BHM situr fundi nefndarinnar og er ritari hennar. Fulltrúar BHM í stjórnum LSR, Brúar og Menntasjóðs námsmanna er heimilt að sitja fundi nefndarinnar með tillögu- og málfrelsisrétt. Um störf og skipun nefndarinnar gilda ákvæði greinar 6.1.
Nefndin setur sér starfsreglur á fyrsta fundi eftir BHM þing.
6.1.4. Starfsemi fastanefnda
Formenn fastanefnda kalla nefndir saman, stjórna fundum og skila skýrslu um störf nefndarinnar til stjórnar í það minnsta einu sinni á ári í tengslum við aðalfund og þing. Formaður fastanefndar skal gera stjórn BHM grein fyrir fundaáætlun og leita samþykkis ef upp koma aðstæður í starfi nefndar sem kalla á ófyrirséð útgjöld af hálfu BHM.
Auk kjörinna nefndarfulltrúa á formaður BHM sem og það starfsfólk bandalagsins sem koma að málum hverju sinni rétt til setu á fundum fastanefnda.
Fastanefndir skulu reglulega halda opna fundi sem fulltrúar allra aðildarfélaga BHM mega sækja, og eigi sjaldnar en árlega. Markmið slíkra funda er að gefa félagsfólki kost á að láta úrlausnarefni nefndarinnar til sín taka og koma sjónarmiðum á framfæri við nefndarfulltrúa.
6.2. Framboðsnefnd
Framboðsnefnd er skipuð fimm fulltrúum og þremur til vara kosnum á BHM þingi.
Hlutverk framboðsnefndar er að auglýsa eftir frambjóðendum í trúnaðarstörf, skv. lögum þessum, m.a. til formanns, varaformanns og stjórnar BHM, nefndarfulltrúa auk varafulltrúa. Nefndin skal tryggja að framboð séu í samræmi við lög þessi. Komi ekki fram framboð í öll trúnaðarstörf skal nefndin kalla eftir viðkomandi framboðum að nýju og/eða leita til aðildarfélaga eftir framboðum.
Framboðsnefnd auglýsir eftir frambjóðendum til trúnaðarstarfa í sjóðum BHM að beiðni stjórna sjóðanna.
Framboðsnefnd skilar kjörstjórn BHM lista með nöfnum frambjóðenda í kjöri eigi síðar en þremur vikum fyrir BHM þing. Framboðsnefnd skilar listum til stjórna sjóða BHM þegar framboðsfrestur er liðinn.
Framboðsnefnd starfar eftir reglum sem formannaráð setur.
6.3. Kjörstjórn
Kjörstjórn er skipuð þremur fulltrúum og tveimur til vara. Lögmaður starfandi hjá BHM skal taka sæti í kjörstjórn og vera formaður nefndarinnar. Kjósa skal tvo fulltrúa og tvo til vara á BHM þingi og er kjörtímabil þeirra á milli þinga.
Hlutverk kjörstjórnar er:
- Að stýra rafrænni kosningu formanns og varaformanns.
- Að stýra kosningum til trúnaðarstarfa og öðrum kosningum á BHM þingi.
- Að undirbúa og stjórna atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun og kjarasamninga í samræmi við umboð viðkomandi aðildarfélags BHM.
- Að undirbúa og stjórna öðrum atkvæðagreiðslum sem kveðið er á um í lögum BHM.
- Að undirbúa og stjórna öðrum atkvæðagreiðslum sem formannaráð BHM felur kjörstjórn sérstaklega.
Kjörstjórn úrskurðar um úrslit í atkvæðagreiðslu, kjörskrárkærur, vafaatkvæði og önnur ágreiningsatriði sem upp kunna að koma í atkvæðagreiðslum sem hún sér um.
Fulltrúar í kjörstjórn skulu víkja sæti við meðferð máls teljist þeir vanhæfir til meðferðar þess.
6.4. Tímabundnar nefndir
Formannaráði er heimilt að skipa tímabundið nefndir um einstök málefni eða málaflokka. Formannaráð gefur út skipunarbréf til fulltrúa í slíkum nefndum, þar sem meðal annars koma fram starfsskyldur, skipunartími og umboð til nefndarstarfa.
6.5. Almennt um nefndir
Fastanefndir sem og tímabundnar nefndir skulu leiða viðkomandi málaflokk á milli BHM þinga, í samráði við formannaráð. Á BHM þingum sæki nefndirnar sér veganesti frá þingnefndum til áframhaldandi þróunar viðkomandi málaflokks.
VII. kafli: FJÁRMÁL
7.0. Aðildargjald
Öll aðildarfélög greiða aðildargjald til bandalagsins sem aðalfundur ákveður.
Aðalfundur getur ákveðið að hvert aðildarfélag greiði að lágmarki tiltekna fjárhæð aðildargjalds.
Ákvörðun um aðildargjald tekur gildi fyrsta dag reikningsárs eftir aðalfund BHM.
7.1. Gjalddagar
Aðildargjöld skulu greidd eigi síðar en 15. dag hvers mánaðar
7.2. Kynning starfs- og fjárhagsáætlunar
Fyrir síðasta fund formannaráðs á hverju ári skal stjórn kynna drög að starfs- og fjárhagsáætlun.
Drögin skulu borin upp til samþykktar á fyrsta fundi formannaráðs á nýju ári.
Starfs- og fjárhagsáætlun skal kynnt á aðalfundi.
7.3. Reikningsár
Reikningsár er almanaksárið. Endurskoðaðir reikningar skulu lagðir fram til staðfestingar á aðalfundi.
VIII. kafli: LAGABREYTINGAR
8.0. Samþykki
Lögum þessum má aðeins breyta á BHM þingi. Tillögur að lagabreytingum geta lagt fram stjórn BHM, stjórnir aðildarfélaga BHM, formannaráð eða sérstaklega skipuð nefnd. Til að lagabreytingartillaga teljist samþykkt þarf hún að hljóta meirihluta greiddra atkvæða. Tillögur um lagabreytingar skal leggja fram og kynna á næstsíðasta fundi formannaráðs fyrir BHM þing.
IX. kafli: BROTTHVARF FÉLAGS
9.0. Úrsögn
Félag sem hyggur á úrsögn úr BHM skal tilkynna það stjórn bandalagsins skriflega og tekur úrsögn gildi frá og með næstu áramótum. Árgjald skal greiða til BHM út árið. Stjórn BHM skal gefinn kostur á að eiga áheyrnarfulltrúa með málfrelsi á félagsfundum aðildarfélaga þar sem tillaga um úrsögn úr BHM er til afgreiðslu.
9.1. Brottvikning
Aðalfundur BHM getur vikið félagi úr bandalaginu hafi það vísvitandi brotið gegn lögum þessum, stefnu BHM, skaðað bandalagið á einhvern hátt eða liggi fyrir á annan máta að forsendur fyrir aðild þess séu brostnar.
Koma skal fram í fundarboði aðalfundar að á dagskrá verði tillaga um brottvikningu aðildarfélags og skal hún vera hluti af fundargögnum aðalfundar sem eru aðgengileg fulltrúum fyrir aðalfund. Að öðrum kosti verður hún ekki tekin fyrir. Tillaga um brottvikningu þarf samþykki 2/3 greiddra atkvæða svo hún teljist samþykkt.
9.2. Réttaráhrif brotthvarfs
Félag sem segir sig úr BHM eða er vikið úr bandalaginu missir öll réttindi í bandalaginu þegar brotthvarf tekur gildi. Fulltrúar þess félags missa og um leið umboð sitt til trúnaðarstarfa í þágu bandalagsins.
Félag sem hefur sagt sig úr BHM eða verið vísað úr bandalaginu á ekki fjárkröfu á hendur BHM.
X. kafli: ÁKVÆÐI TIL BRÁÐABIRGÐA
10.1.
Fyrsta BHM þing skal haldið árið 2027. Á því þingi skal kjósa til þriggja ára formann BHM, tvo meðstjórnendur og einn varamann. Einnig skal kjósa til þriggja ára fulltrúa í nefndir sbr. VI. kafla í þau embætti sem þá eru laus.
Í rafrænni kosningu fyrir aðalfund BHM árið 2028 skal kjósa til tveggja ára varaformann BHM, þrjá meðstjórnendur og einn varamann. Að auki skal á fundinum kjósa til tveggja ára fulltrúa í þau embætti í nefndum sbr. VI. kafla sem þá eru laus.
10.2.
Verði lagabreytingatillögur um stofnun BHM þings samþykktar á aðalfundi BHM 2026 verður formannaráði falið að skipa starfshóp til að ákveða og skrifa þingsköp BHM þings sem fylgt verður á þingi 2027 og framvegis.
Nefndin skal afhenda skrifstofu BHM niðurstöðu sína í síðasta lagi í febrúar 2027. Skal kynna niðurstöðuna á næsta formannaráðsfundi.
Lögmaður starfandi hjá BHM skal vera starfsmaður hópsins.
10.3.
Verði lagabreytingatillögur um stofnun BHM þings samþykktar á aðalfundi BHM 2026 verður formannaráði falið að skipa lagabreytinganefnd til að skoða lög BHM í heild sinni með tilliti til þessara breytinga og leggja fram tillögur að breytingum ef nefndin telur þörf á.
Nefndin skal afhenda skrifstofu BHM niðurstöðu sína í síðasta lagi í febrúar 2027. Skal niðurstaðan kynnt á næsta formannaráðsfundi og vera lögð fram sem tillaga stjórnar BHM til BHM þings 2027.
Nefndina skipa 3-5 fulltrúar tilnefndir af formannaráði. Lögmaður BHM skal vera formaður nefndarinnar.
Samþykkt á aðalfundi 21. maí 2026