Upp­sagn­ar­vernd

Tilteknir hópar launafólks njóta sérstakrar verndar gegn uppsögn samkvæmt lögum. Verndin gildir jafnt hjá ríki, sveitarfélögum og á almennum vinnumarkaði.

Sérstök uppsagnarvernd byggist meðal annars á þörf fyrir að trúnaðarmenn geti sinnt störfum sínum án ótta við uppsögn, á jafnrétti á vinnumarkaði og á vernd gegn ómálefnalegum uppsögnum. Hún kemur til viðbótar þeirri vernd sem starfsfólk ríkisins og sveitarfélaga nýtur almennt.

Ólögmæt uppsögn leiðir að jafnaði til bótaréttar en ekki til endurráðningar. Þegar lögbundin vernd á við skal atvinnurekandi á almennum vinnumarkaði rökstyðja uppsögn skriflega samkvæmt kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM.

Trúnaðarmenn

Óheimilt er að segja trúnaðarmanni upp vegna starfa hans sem trúnaðarmanns eða láta hann gjalda þess á annan hátt. Þurfi atvinnurekandi að fækka starfsfólki skal trúnaðarmaður að öðru jöfnu sitja fyrir um að halda vinnunni, sbr. 11. gr. laga nr. 80/1938 og 30. gr. laga nr. 94/1986.

Öryggistrúnaðarmenn og fulltrúar starfsmanna í öryggisnefnd njóta einnig verndar gegn uppsögn, sbr. 9. gr. laga nr. 46/1980.

Barnshafandi starfsfólk og fæðingar- og foreldraorlof

Óheimilt er að segja starfsmanni upp vegna þess að hann hefur tilkynnt um fyrirhugaða töku fæðingar- eða foreldraorlofs eða er í slíku orlofi, nema gildar ástæður séu fyrir hendi. Skal þá skriflegur rökstuðningur fylgja. Sama gildir um barnshafandi starfsmann og starfsmann sem nýlega hefur fætt barn, sbr. 50. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof.

Um mat á gildum ástæðum má vísa til dóma Hæstaréttar í málum nr. 61/2004 og nr. 257/2011, sem gengu í tíð eldri laga nr. 95/2000 um sama efni. Í fyrra málinu var vinnuveitandi dæmdur bótaskyldur vegna uppsagnar barnshafandi konu á reynslutíma. Í síðara málinu var uppsögn ekki talin tengjast tilkynningu um fæðingarorlof.

Kyn

Óheimilt er að mismuna starfsfólki á grundvelli kyns við uppsögn, sbr. 19. gr. laga nr. 150/2020. Einnig er óheimilt að segja starfsmanni upp vegna þess að hann hefur krafist leiðréttingar á grundvelli laganna. Séu leiddar líkur að mismunun skal atvinnurekandi sýna fram á að aðrar ástæður hafi ráðið. Mál má bera undir kærunefnd jafnréttismála.

Fjölskylduábyrgð

Óheimilt er að segja starfsmanni upp eingöngu vegna fjölskylduábyrgðar, það er skyldna gagnvart börnum, maka eða nánum skyldmennum á heimili sem þarfnast umönnunar hans. Sjá Fjölskylduábyrgð – bann við uppsögn.

Jöfn meðferð

Lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði banna mismunun við uppsögn á grundvelli kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, skertrar starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar. Séu leiddar líkur að mismunun skal atvinnurekandi sýna fram á að aðrar ástæður hafi ráðið. Mismunandi meðferð vegna aldurs getur verið heimil ef hún byggist á málefnalegum og lögmætum markmiðum og gengur ekki lengra en nauðsynlegt er. Sjá Bann við mismunun.

Samkvæmt 22. gr. laga nr. 38/2018 skal fatlað fólk njóta forgangs að störfum hjá ríki og sveitarfélögum ef hæfni þess er jöfn eða meiri en annarra umsækjenda. Ákvæðið varðar fyrst og fremst ráðningar.

Aðilaskipti að fyrirtækjum

Aðilaskipti ein og sér eru ekki gild ástæða uppsagnar. Uppsögn er þó heimil vegna efnahagslegra, tæknilegra eða skipulagslegra ástæðna sem hafa í för með sér breytingar á starfsmannahaldi, sbr. 4. gr. laga nr. 72/2002. Sjá Skipulagsbreytingar.

Persónuverndarfulltrúar

Persónuverndarfulltrúa má hvorki víkja úr starfi né refsa fyrir framkvæmd verkefna sinna, sbr. 35. gr. laga nr. 90/2018 og 38. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679. Verndin tekur til starfa viðkomandi sem persónuverndarfulltrúa. Sjá einnig upplýsingar um persónuverndarfulltrúa.

Félagafrelsi og tjáningarfrelsi

Atvinnurekanda er óheimilt að reyna að hafa áhrif á stjórnmálaskoðanir starfsmanna eða afskipti þeirra af stéttarfélögum, stjórnmálafélögum eða vinnudeilum með uppsögn eða hótun um uppsögn, sbr. 4. gr. laga nr. 80/1938.

Starfsfólk ríkis og sveitarfélaga hefur frelsi til að tjá sig opinberlega um atriði sem tengjast starfi þess, nema þagnarskylda eða trúnaðarskyldur standi því í vegi, sbr. 41. gr. stjórnsýslulaga. Takmarkanir á tjáningarfrelsi verða að fullnægja skilyrðum 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Uppljóstrarar

Samkvæmt lögum nr. 40/2020 um vernd uppljóstrara má ekki láta starfsmann sæta íþyngjandi úrræðum, svo sem uppsögn, vegna þess að hann hefur í góðri trú miðlað upplýsingum eða gögnum um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitanda. Lögin gilda á öllum vinnumarkaðinum. Almennt skal starfsmaður fyrst miðla upplýsingum innan vinnustaðar. Sjá einnig upplýsingar Ríkisendurskoðunar.

Veikindi

Veikindi koma ekki í veg fyrir uppsögn, til dæmis vegna rekstrarlegra ástæðna. Hafi starfsmaður veikst áður en honum var sagt upp heldur hann þó veikindarétti sínum þar til hann verður vinnufær eða rétturinn er tæmdur. Sjá Veikindaréttur – sameiginlegar reglur.

Hlutastörf

Það telst ekki eitt og sér gild ástæða uppsagnar að starfsmaður neiti að fara úr fullu starfi í hlutastarf eða öfugt, sbr. 4. gr. laga nr. 10/2004. Uppsögn getur þó verið heimil af öðrum ástæðum, svo sem vegna rekstrarþarfa.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt