Hvaða reglur gilda?
Samkvæmt lögum nr. 151/2006 um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum eiga fulltrúar starfsfólks rétt á upplýsingum og samráði í fyrirtækjum þar sem að jafnaði starfa a.m.k. 50 starfsmenn á innlendum vinnumarkaði (1. gr.). Lögin byggjast á tilskipun 2002/14/EB og fela í sér lágmarksréttindi.
Til viðbótar gilda sérstakar og ríkari reglur um upplýsingar og samráð við hópuppsagnir og aðilaskipti.
Hvaða vinnustaðir falla undir lögin?
Lögin gilda um „fyrirtæki“, sem samkvæmt 3. gr. eru félög, einstaklingar og opinber fyrirtæki sem stunda atvinnurekstur, án tillits til þess hvort hann er rekinn í hagnaðarskyni.
- Fyrirtæki á almennum vinnumarkaði með a.m.k. 50 starfsmenn falla undir lögin.
- Opinber hlutafélög og önnur fyrirtæki í opinberri eigu sem stunda atvinnurekstur falla undir lögin, að uppfylltu skilyrðinu um fjölda starfsmanna.
- Ríkisstofnanir og stofnanir sveitarfélaga sem sinna stjórnsýslu eða opinberri þjónustu án atvinnurekstrar falla að öllum líkindum utan laganna.
Starfsfólk ríkisstofnana nýtur þó verndar annarra reglna, svo sem laga um hópuppsagnir, andmælaréttar og rannsóknarreglu stjórnsýslulaga við ákvarðanir sem varða það sjálft, og eftir atvikum ákvæða kjarasamninga.
Hverjir eru fulltrúar starfsfólks?
Fulltrúar starfsfólks eru trúnaðarmenn stéttarfélaga. Á vinnustöðum þar sem enginn trúnaðarmaður er getur starfsfólk valið sér fulltrúa, nema annað sé ákveðið í kjarasamningi eða samkomulag sé um aðra framkvæmd (3. gr.).
Um hvað á atvinnurekandi að upplýsa?
Atvinnurekandi skal veita fulltrúum starfsfólks upplýsingar um (4. gr.):
- nýliðna þróun og horfur varðandi starfsemi og fjárhagsstöðu fyrirtækisins,
- stöðu, skipulag og horfur í atvinnumálum innan fyrirtækisins og fyrirsjáanlegar ráðstafanir, einkum ef atvinnuöryggi er ógnað,
- ákvarðanir sem líklegt er að leiði til verulegra breytinga á skipulagi vinnunnar eða á ráðningarsamningum, þar á meðal ákvarðanir vegna aðilaskipta og hópuppsagna.
Upplýsingarnar skal veita á þeim tíma, á þann hátt og þess efnis að fulltrúarnir geti kynnt sér málið og undirbúið samráð.
Hvað felst í samráði?
Samráð eru viðræður og skoðanaskipti fulltrúa starfsfólks og atvinnurekanda (3. gr.). Fulltrúum skal gefinn kostur á að eiga fund með atvinnurekanda og fá viðbrögð hans við áliti sínu (5. gr.). Atvinnurekandi skal gera grein fyrir ástæðum viðbragða sinna.
Þegar um er að ræða ákvarðanir sem geta leitt til verulegra breytinga á skipulagi vinnu eða á ráðningarsamningum skal samráðið fara fram með það að markmiði að ná samkomulagi um ákvarðanirnar.
Trúnaður og undanþágur
- Atvinnurekanda er heimilt að binda upplýsingar trúnaði á grundvelli lögmætra hagsmuna fyrirtækisins. Fulltrúar starfsfólks og sérfræðingar sem aðstoða þá mega þá ekki miðla upplýsingunum áfram, og þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi (8. gr.).
- Atvinnurekanda er ekki skylt að veita upplýsingar eða hafa samráð ef upplýsingarnar eru samkvæmt hlutlægum viðmiðum þess eðlis að það geti valdið fyrirtækinu alvarlegu tjóni eða röskun á starfsemi þess (7. gr.).
Vernd fulltrúa og viðurlög
- Fulltrúar starfsfólks njóta sömu réttarverndar og trúnaðarmenn samkvæmt lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur (9. gr.).
- Brot gegn upplýsinga- og samráðsskyldunni og ákvæðum um vernd fulltrúa varða fésektum (10. gr.).
Ráð til trúnaðarmanna
- Óskaðu skriflega eftir upplýsingum um fyrirhugaðar breytingar um leið og þú færð vitneskju um þær.
- Óskaðu eftir fundi og settu fram skriflegt álit fyrir hönd starfsfólks.
- Óskaðu eftir rökstuddum viðbrögðum atvinnurekanda við álitinu.
- Leitaðu stuðnings hjá aðildarfélagi þínu ef vafi leikur á réttarstöðunni.
Rannsóknarstofnun evrópsku verkalýðshreyfingarinnar (ETUI) heldur úti upplýsingasíðu um regluverk á þessu sviði.