Kjara­samn­ingar og stétt­ar­fé­lög

Kjarasamningar eru ein helsta undirstaða réttinda launafólks á íslenskum vinnumarkaði. Í þeim semja stéttarfélög og atvinnurekendur um laun, vinnutíma og önnur starfskjör. Kjarasamningar tryggja starfsfólki sameiginleg réttindi og gera því kleift að hafa áhrif á eigin starfskjör.

Réttur til að stofna stéttarfélög, gera kjarasamninga og grípa til sameiginlegra aðgerða nýtur verndar 74. gr. stjórnarskrárinnar, 11. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og samþykkta Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO).

Um kjarasamninga á opinberum og almennum vinnumarkaði gilda að hluta ólíkar reglur. Lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna taka til starfsfólks ríkis og sveitarfélaga sem á aðild að stéttarfélögum með samningsrétt samkvæmt lögunum. Um aðra hópa gilda lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Ákvæði III. kafla laga nr. 80/1938 um sáttastörf í vinnudeilum gilda þó einnig, eftir því sem við á, um opinbera starfsmenn, og Félagsdómur fer með tiltekin mál samkvæmt báðum lögunum.

Í þessum kafla er fjallað um hvernig kjarasamningar verða til, hverjir eiga rétt til að semja, hvernig félagsfólk tekur þátt í ákvörðunum um kjaramál og hvaða reglur gilda um vinnudeilur, verkföll og úrlausn ágreinings. Þar sem dómar Félagsdóms varpa ljósi á inntak reglnanna er til þeirra vísað. Dómana má nálgast á vef dómsins, felagsdomur.is.

Efni kaflans

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt