Fram­kvæmd kjara­samn­inga og úr­lausn ágrein­ings

Bindandi áhrif kjarasamninga

Kjarasamningar binda samningsaðila og atvinnurekendum ber að virða þau réttindi sem af þeim leiða. Samningsaðilum er jafnframt skylt að stuðla að því að félagsmenn þeirra virði gerða kjarasamninga, sbr. 5. mgr. 5. gr. laga nr. 80/1938.

Ágreiningur getur risið um það hvernig túlka beri tiltekið ákvæði kjarasamnings eða hvort atvinnurekandi hafi staðið við skyldur sínar samkvæmt honum. Slíkur ágreiningur getur meðal annars varðað launagreiðslur, röðun starfa, vinnutíma, orlof eða önnur samningsbundin réttindi.

Túlkun kjarasamninga

Við túlkun kjarasamninga er einkum litið til orðalags ákvæðis, samhengis þess innan samningsins og tilgangs, og eftir atvikum til samningsforsögu og framkvæmdar samningsaðila. Í dómi Félagsdóms 13. júní 2022 í máli nr. 22/2021 byggði meiri hluti dómsins niðurstöðu sína þannig fyrst og fremst á orðalagi kjarasamningsákvæðis og framkvæmd þess.

Dómar Félagsdóms hafa verulega þýðingu fyrir túlkun kjarasamninga.

Samningsaðilar geta jafnframt skýrt sameiginlegan skilning sinn á einstökum ákvæðum með bókunum eða öðrum samkomulögum, eftir því sem við á.

Brot á kjarasamningi

Brot á kjarasamningi getur falist í því að atvinnurekandi greiðir lægri laun en samningurinn mælir fyrir um, virðir ekki ákvæði um vinnutíma eða uppfyllir ekki aðrar samningsbundnar skyldur.

Stéttarfélag eða fulltrúar þess geta einnig brotið gegn skyldum sínum samkvæmt kjarasamningi. Samkvæmt 8. gr. laga nr. 80/1938 og 13. gr. laga nr. 94/1986 bera samningsaðilar ábyrgð á samningsrofum sem þeir sjálfir eða fulltrúar þeirra gerast sekir um í störfum sínum fyrir þá.

Viðbrögð við broti ráðast af eðli þess, þeirri kröfu sem gerð er og þeim lögum sem gilda um viðkomandi réttarsamband.

Hlutverk Félagsdóms

Félagsdómur er sérdómstóll sem dæmir í tilteknum réttarágreiningsmálum á vinnumarkaði.

Samkvæmt 44. gr. laga nr. 80/1938 dæmir Félagsdómur meðal annars í málum vegna brota á lögunum og tjóns af völdum ólögmætra vinnustöðvana, vegna brota á kjarasamningi og vegna ágreinings um skilning á kjarasamningi eða gildi hans. Mál sem höfða má fyrir Félagsdómi verða ekki rekin fyrir almennum dómstólum, sbr. 47. gr. laganna.

Samkvæmt 26. gr. laga nr. 94/1986 dæmir Félagsdómur einnig í málum sem rísa milli samningsaðila á opinberum vinnumarkaði um samningsaðild einstakra stéttarfélaga, lögmæti boðaðra eða hafinna vinnustöðvana, skilning á kjarasamningi eða gildi hans og það hverjir falli undir 5.–8. tölul. 1. mgr. 19. gr. laganna, auk ágreinings um félagsaðild.

Lögsaga Félagsdóms er afmörkuð í lögum og hefur dómurinn túlkað hana þröngt. Í máli nr. 9/2023 var þannig kröfum um framtíðarsamningsumboð og endurgreiðslu launa vísað frá dómi, þar sem þær féllu utan lögsögu hans samkvæmt 44. gr. laga nr. 80/1938.

Stéttarfélög og samtök þeirra reka mál fyrir hönd félagsfólks síns fyrir Félagsdómi. Neiti félag að höfða mál getur félagsmaður höfðað það sjálfur, enda leggi hann fram sönnun um synjun félagsins, sbr. 45. gr. laga nr. 80/1938 og 4. og 5. mgr. 27. gr. laga nr. 94/1986.

Hafi mál verið höfðað til að fá skorið úr um lögmæti boðaðrar vinnustöðvunar skal dómur kveðinn upp áður en vinnustöðvunin á að hefjast, sbr. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 80/1938. Dómar Félagsdóms eru endanlegir og verður ekki áfrýjað, en tilteknar dómsathafnir, svo sem frávísun, má kæra til Hæstaréttar, sbr. 67. gr. laganna.

Hlutverk Félagsdóms er að skera úr réttarágreiningi. Dómurinn ákveður ekki efni nýrra kjarasamninga í stað samningsaðila.

Almennir dómstólar og einstaklingsbundnar kröfur

Ekki heyrir allur ágreiningur um starfskjör undir Félagsdóm.

Einstaklingsbundnar kröfur starfsmanna, til dæmis um vangoldin laun eða skaðabætur, geta heyrt undir almenna dómstóla.

Við mat á því hvort mál eigi undir Félagsdóm eða almenna dómstóla þarf að líta til eðlis ágreiningsins, málsástæðna og þeirra krafna sem gerðar eru.

Stéttarfélög geta eftir atvikum gætt hagsmuna félagsfólks síns við úrlausn slíkra mála.

Hlutverk trúnaðarmanna

Trúnaðarmenn eru fulltrúar stéttarfélaga á vinnustöðum og gegna mikilvægu hlutverki við eftirlit með framkvæmd kjarasamninga.

Þeir taka við umkvörtunum starfsfólks, rannsaka málin, krefja atvinnurekanda um úrbætur ef tilefni er til og upplýsa stéttarfélagið.

Á almennum vinnumarkaði gilda um trúnaðarmenn 9.–12. gr. laga nr. 80/1938. Samkvæmt 9. gr. tilnefnir stjórn stéttarfélags trúnaðarmenn á vinnustöðum þar sem að minnsta kosti fimm starfa. Á opinberum vinnumarkaði gilda 28.–30. gr. laga nr. 94/1986, en samkvæmt 28. gr. kýs starfsfólk trúnaðarmann úr sínum hópi á vinnustöðum þar sem að minnsta kosti fimm starfa, og tvo þar sem fimmtíu eða fleiri starfa.

Trúnaðarmenn njóta sérstakrar verndar gegn því að gjalda starfa sinna fyrir stéttarfélagið. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 80/1938 er óheimilt að segja trúnaðarmanni upp vegna starfa hans sem trúnaðarmanns, og þurfi atvinnurekandi að fækka starfsfólki skal trúnaðarmaður að öðru jöfnu sitja fyrir um að halda starfi sínu. Sambærileg vernd er í 30. gr. laga nr. 94/1986.

Hvert á starfsmaður að leita?

Starfsmaður sem telur að atvinnurekandi hafi brotið gegn kjarasamningi ætti fyrst að kynna sér viðeigandi samningsákvæði og afla gagna sem málið varða, svo sem ráðningarsamnings, launaseðla eða vinnutímaskráningar.

Jafnframt er rétt að leita til trúnaðarmanns eða viðkomandi stéttarfélags.

Stéttarfélagið getur metið hvort leysa megi ágreininginn með viðræðum við atvinnurekanda eða hvort þörf sé á frekari lögfræðilegri úrlausn.

Helstu lagaheimildir: 5. mgr. 5. gr., 8.–12. gr. og IV. kafli laga nr. 80/1938 og 13. og 26.–30. gr. laga nr. 94/1986.

Dómar Félagsdóms: nr. 9/2023 og nr. 22/2021.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt