Kjara­samn­ingar og samn­ings­rétt­ur

Hvað er kjarasamningur?

Kjarasamningur er skriflegur samningur stéttarfélags eða samtaka stéttarfélaga annars vegar og atvinnurekanda eða samtaka atvinnurekenda hins vegar um laun og önnur starfskjör. Lögin gera bæði kröfu um að kjarasamningar séu skriflegir, sbr. 6. gr. laga nr. 80/1938 og 1. mgr. 10. gr. laga nr. 94/1986.

Í kjarasamningum er meðal annars samið um:

  • laun, launatöflur og launahækkanir;
  • vinnutíma, yfirvinnu og vaktaálag;
  • orlof, veikindarétt og önnur launuð leyfi;
  • lífeyrisréttindi og tryggingar;
  • starfsmenntun, endurmenntun og starfsþróun;
  • ferðakostnað, fæðisaðstöðu og önnur starfstengd réttindi.

Á opinberum vinnumarkaði mælir 9. gr. laga nr. 94/1986 fyrir um að í kjarasamningi skuli kveðið á um föst laun, vinnutíma, laun fyrir yfirvinnu, orlof, ferðakostnað, fæðisaðstöðu, tryggingar, starfsmenntun og önnur atriði sem aðilar verða sammála um.

Kjarasamningar geta jafnframt kveðið á um sameiginleg réttindi starfsfólks, svo sem störf trúnaðarmanna, framkvæmd launamyndunar og samstarf stéttarfélaga og atvinnurekenda.

Hverjir eiga rétt til að gera kjarasamninga?

Stéttarfélög fara með samningsrétt fyrir hönd félagsfólks síns. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 80/1938 eru stéttarfélög lögformlegir samningsaðilar um kaup og kjör félagsmanna sinna, enda taki starfsemi þeirra samkvæmt samþykktum til slíkra málefna. Einstakir starfsmenn geta samið um eigin ráðningarkjör en fara ekki með umboð til að gera kjarasamninga.

Á opinberum vinnumarkaði ræðst samningsaðild af 4.–7. gr. laga nr. 94/1986, sem setja stéttarfélögum sérstök skilyrði fyrir því að öðlast samningsrétt (sjá Kjarasamningar á opinberum vinnumarkaði).

Stéttarfélög geta sameinast um gerð kjarasamninga eða falið sameiginlegri samninganefnd að fara með samningsumboð sitt, sbr. 2. mgr. 5. gr. laga nr. 80/1938 og 3. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 8. gr. laga nr. 94/1986. Slík samvinna getur styrkt stöðu stéttarfélaga í viðræðum við atvinnurekendur.

Gildissvið og réttaráhrif kjarasamninga

Kjarasamningur tekur til þeirra starfa, starfsmannahópa og atvinnurekenda sem falla undir gildissvið hans samkvæmt lögum og samningsákvæðum.

Kjarasamningar binda samningsaðila og hafa jafnframt bein réttaráhrif á starfskjör þess starfsfólks sem undir þá fellur. Áhrif þeirra eru því víðtækari en almennra samninga milli tveggja aðila. Samkvæmt 2. mgr. 3. gr. laga nr. 80/1938 er félagsmaður sem segir sig úr stéttarfélagi áfram bundinn af þeim kjarasamningum sem hann var bundinn af meðan hann var í félaginu, á meðan hann gegnir þeim störfum sem samningurinn tekur til og þar til samningurinn gæti fyrst fallið úr gildi við uppsögn.

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 55/1980 um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda eru laun og önnur starfskjör sem samið er um í kjarasamningum lágmarkskjör fyrir allt launafólk í viðkomandi starfsgrein á því svæði sem samningurinn tekur til, óháð stéttarfélagsaðild.

Kjarasamningar og ráðningarsamningar

Ráðningarsamningur er samningur einstaks starfsmanns og atvinnurekanda. Í honum er meðal annars kveðið á um starf, starfshlutfall, laun og önnur ráðningarkjör.

Ráðningarsamningur verður að samrýmast þeim kjarasamningi og þeim lögum sem gilda um starfið. Samkvæmt 7. gr. laga nr. 80/1938 eru samningar einstakra starfsmanna við atvinnurekendur ógildir að því marki sem þeir fara í bága við kjarasamning stéttarfélags við atvinnurekandann. Sambærileg regla gildir á opinberum vinnumarkaði, en samkvæmt 24. gr. laga nr. 94/1986 er ákvæði í ráðningarsamningi ógilt ef það brýtur í bága við kjarasamning starfsmanni í óhag. Þá eru samningar um lakari kjör en kjarasamningar ákveða ógildir samkvæmt 1. gr. laga nr. 55/1980.

Heimilt er að semja um betri kjör en kjarasamningur mælir fyrir um, nema lög eða viðeigandi samningsreglur takmarki það sérstaklega.

Gildistími, uppsögn og framlenging

Í kjarasamningum er kveðið á um gildistíma þeirra og hvernig þeim verði sagt upp. Reglur um uppsögn og framlengingu eru þó ekki að öllu leyti þær sömu á opinberum og almennum vinnumarkaði.

Samkvæmt 10. gr. laga nr. 94/1986 skal kveðið á um lengd samningstímabils og uppsagnarfrest í kjarasamningi, og uppsögn skal vera skrifleg og kynnt viðtakanda með sannanlegum hætti. Samkvæmt 11. gr. laganna framlengist kjarasamningur um sex mánuði í senn, með óbreyttum uppsagnarfresti, hafi honum ekki verið sagt upp með réttum hætti. Samkvæmt 12. gr. skal senda ríkissáttasemjara tilkynningu um uppsögn samtímis gagnaðila, og fara skal eftir útrunnum kjarasamningi, sem sagt hefur verið upp, þar til nýr samningur hefur verið gerður.

Á almennum vinnumarkaði skal samkvæmt 6. gr. laga nr. 80/1938 tilgreina samningstíma og uppsagnarfrest í kjarasamningi. Sé það ekki gert telst samningstími eitt ár og uppsagnarfrestur þrír mánuðir. Sé samningi ekki sagt upp innan uppsagnarfrests framlengist hann um eitt ár, nema annað sé ákveðið í samningnum sjálfum. Uppsögn skal vera skrifleg. Samkvæmt 4. mgr. 22. gr. laganna skal senda ríkissáttasemjara afrit af uppsögn kjarasamnings.

Helstu lagaheimildir: 1.–13. og 23.–24. gr. laga nr. 94/1986, 1.–7. gr. og 22. gr. laga nr. 80/1938 og 1. gr. laga nr. 55/1980 um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt