- Kjarasamningar og stéttarfélög
- Kjarasamningar og samningsréttur
- Kjarasamningar á opinberum vinnumarkaði
- Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði
- Gerð og samþykkt kjarasamninga
- Vinnudeilur og verkfallsréttur
- Ríkissáttasemjari og lausn vinnudeilna
- Félagafrelsi og réttindi stéttarfélaga
- Framkvæmd kjarasamninga og úrlausn ágreinings
Hvað er félagafrelsi?
Félagafrelsi eru grundvallarmannréttindi sem fela í sér rétt einstaklinga til að stofna félög og taka þátt í starfsemi þeirra.
Í vinnurétti hefur félagafrelsi sérstaka þýðingu, þar sem það tryggir launafólki rétt til að stofna og starfrækja stéttarfélög til að gæta sameiginlegra hagsmuna sinna, sbr. 1. gr. laga nr. 80/1938.
Félagafrelsi nýtur verndar 74. gr. stjórnarskrárinnar og 11. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Það er jafnframt verndað í samþykktum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, einkum samþykkt nr. 87 um félagafrelsi og verndun þess og samþykkt nr. 98 um beitingu grundvallarreglna um réttinn til að stofna félög og semja sameiginlega.
Jákvætt og neikvætt félagafrelsi
Jákvætt félagafrelsi felur í sér rétt einstaklings til að stofna félag, ganga í stéttarfélag og taka þátt í starfsemi þess.
Neikvætt félagafrelsi felur í sér rétt einstaklings til að standa utan félaga, sbr. 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar, þar sem segir að engan megi skylda til aðildar að félagi.
Þessi réttindi geta kallað á sérstakt mat þegar lögbundinn samningsréttur stéttarfélaga og skylda til greiðslu gjalda koma til álita.
Réttur til að stofna og starfrækja stéttarfélög
Stéttarfélög ráða sjálf málefnum sínum innan þeirra marka sem lög setja, sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 80/1938. Þau hafa rétt til að setja sér samþykktir, kjósa fulltrúa sína og skipuleggja starfsemi sína sjálfstætt.
Sjálfstæði stéttarfélaga gagnvart atvinnurekendum og stjórnvöldum er grundvallarforsenda raunhæfs samningsréttar.
Samkvæmt 4. gr. laga nr. 80/1938 er atvinnurekendum og fulltrúum þeirra óheimilt að reyna að hafa áhrif á afstöðu starfsfólks til stéttarfélaga eða vinnudeilna með uppsögn eða hótun um uppsögn, fjárgreiðslum eða loforðum um hagnað. Þá er atvinnurekendum óheimilt að láta starfsfólk gjalda þess að stéttarfélög hafi gert með sér samning um gagnkvæman stuðning, sbr. 13. gr. laganna.
Félagsaðild og val á stéttarfélagi
Réttur einstaklings til að velja sér stéttarfélag getur ráðist af samþykktum viðkomandi félags og þeim lagareglum sem gilda um samningsrétt.
Stéttarfélög geta í samþykktum sínum takmarkað rétt félagsmanna til úrsagnar, en slíkar takmarkanir verða að vera málefnalegar og mega ekki ganga lengra en nauðsynlegt er. Í dómi Félagsdóms 4. október 2023 í máli nr. 8/2023 var, með hliðsjón af 74. gr. stjórnarskrárinnar, talið heimilt að takmarka úrsögn tímabundið á meðan vinnudeila stæði yfir, en að túlka bæri slíkt ákvæði þröngt. Starfsfólk sem sagði sig úr félaginu eftir að ágreiningur var kominn upp í kjaraviðræðum var því talið bundið af þeim kjarasamningi sem síðar komst á.
Á opinberum vinnumarkaði hafa ákvæði laga nr. 94/1986 sérstaka þýðingu. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laganna á starfsmaður rétt til þátttöku í stéttarfélagi sem fer með samningsumboð samkvæmt lögunum, eftir því sem samþykktir félagsins segja, en aðeins eitt félag fer með samningsumboð fyrir hann. Samningsumboð og félagsaðild eru þó ekki í öllum tilvikum sama álitaefnið. Félagsdómur dæmir í ágreiningi um félagsaðild þeirra sem falla undir lögin, sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.
Félagsgjöld og gjöld til stéttarfélaga
Félagsfólk greiðir almennt félagsgjöld samkvæmt samþykktum stéttarfélags síns.
Samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laga nr. 94/1986 skal starfsmaður sem fellur undir lögin, en er ekki í stéttarfélagi samkvæmt þeim, greiða gjald til þess félags sem hann ætti að tilheyra, jafnhátt því sem hann greiddi væri hann í félaginu, enda fari um laun hans og önnur starfskjör samkvæmt samningum þess.
Á almennum vinnumarkaði þarf að greina á milli eiginlegra félagsgjalda og þeirra gjalda sem atvinnurekendum ber samkvæmt lögum eða kjarasamningum að greiða til sjóða og starfsemi stéttarfélaga.
Greiðsla gjalda til stéttarfélags felur ekki ein og sér í sér að viðkomandi hafi gerst félagsmaður þess.
Réttur til sameiginlegra kjaraviðræðna
Rétturinn til að gera kjarasamninga er mikilvægur þáttur í vernd félagafrelsis.
Án raunhæfs réttar til sameiginlegra kjaraviðræðna væri staða einstakra starfsmanna almennt veikari gagnvart atvinnurekendum.
Samningsréttur stéttarfélaga er því ekki aðeins leið til að ákveða laun heldur einnig mikilvægt tæki til að tryggja jafnvægi í samskiptum aðila vinnumarkaðarins.
Alþjóðleg vernd félagafrelsis
Félagafrelsi og samningsréttur njóta verndar samkvæmt ýmsum alþjóðlegum reglum. Þar skipta einkum máli:
- 11. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu;
- samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87;
- samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 98;
- Félagsmálasáttmáli Evrópu, að því marki sem viðeigandi ákvæði hans skuldbinda Ísland.
Alþjóðlegar mannréttindareglur hafa meðal annars þýðingu við túlkun innlendra laga um félagafrelsi, samningsrétt og takmarkanir á verkfallsrétti.
Helstu lagaheimildir: 74. gr. stjórnarskrárinnar, lög nr. 62/1994 um Mannréttindasáttmála Evrópu, 1.–4. og 13. gr. laga nr. 80/1938 og 4.–7. og 26. gr. laga nr. 94/1986.
Dómar Félagsdóms: nr. 8/2023.