Gerð og sam­þykkt kjara­samn­inga

Undirbúningur kjarasamninga

Gerð kjarasamninga hefst yfirleitt á því að stéttarfélög undirbúa viðræður og móta kröfugerð.

Kröfugerð getur byggst á launarannsóknum, þróun kaupmáttar, stöðu einstakra starfsstétta, breytingum á vinnuumhverfi og ábendingum félagsfólks.

Stéttarfélög ákveða samkvæmt eigin samþykktum hvernig félagsfólk tekur þátt í mótun krafna og hvernig skipað er í samninganefndir. Þátttaka félagsfólks er mikilvægur þáttur í lýðræðislegri starfsemi stéttarfélaga.

Samningaviðræður og viðræðuáætlanir

Samninganefndir stéttarfélaga og atvinnurekenda annast samningaviðræður.

Samkvæmt 23. gr. laga nr. 80/1938 skulu samningsaðilar gera áætlun um skipulag viðræðna um endurnýjun kjarasamnings, viðræðuáætlun, í síðasta lagi tíu vikum áður en gildandi kjarasamningur rennur út, og senda hana ríkissáttasemjara. Hafi samningsaðilar ekki gert viðræðuáætlun innan þess frests gefur ríkissáttasemjari út viðræðuáætlun fyrir þá í síðasta lagi átta vikum áður en samningurinn rennur út. Markmið viðræðuáætlunar er að stuðla að skipulegum og markvissum viðræðum um nýjan kjarasamning.

Skili samningaviðræður ekki árangri geta samningsaðilar óskað milligöngu ríkissáttasemjara eða vísað deilunni til hans, sbr. 24. gr. laganna. Ákvæðin gilda einnig, eftir því sem við á, á opinberum vinnumarkaði (sjá Ríkissáttasemjari og lausn vinnudeilna).

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning

Þegar samninganefndir hafa náð samkomulagi um nýjan kjarasamning undirrita til þess bærir fulltrúar samningsaðila hann.

Um afgreiðslu samningsins gilda ólíkar reglur eftir því hvort hann fellur undir lög nr. 94/1986 eða lög nr. 80/1938.

Opinber vinnumarkaður

Lög nr. 94/1986 hafa ekki að geyma sérstök ákvæði um atkvæðagreiðslu um kjarasamning. Samkvæmt 23. gr. laganna verða ákvarðanir um kjarasamninga og önnur kjaramál þó aðeins teknar af þeim sem starfa hjá þeim vinnuveitanda eða vinnuveitendum sem samningurinn nær til. Enginn starfsmaður má taka þátt í atkvæðagreiðslu eða ákvörðun um kjaramál nema í einu stéttarfélagi sem er samningsaðili samkvæmt lögunum.

Í dómi Félagsdóms 23. júní 2020 í máli nr. 6/2020 var talið að sjónarmiðin að baki 3. mgr. 5. gr. laga nr. 80/1938 ættu jafnt við um opinbera starfsmenn og að beita bæri ákvæðinu með lögjöfnun. Kjarasamningur gildir því nema hann sé felldur með meiri hluta greiddra atkvæða. Í málinu voru auð atkvæði talin til greiddra atkvæða og var samningurinn ekki talinn felldur, þar sem nei-atkvæði náðu ekki meiri hluta greiddra atkvæða.

Fyrirkomulag samþykktar kjarasamnings ræðst að öðru leyti meðal annars af samþykktum stéttarfélagsins, samningsumboði þess og þeim reglum sem við eiga.

Almennur vinnumarkaður

Samkvæmt 3. mgr. 5. gr. laga nr. 80/1938 gildir undirritaður kjarasamningur frá undirskriftardegi, sé ekki um annað samið, nema hann sé felldur í leynilegri atkvæðagreiðslu innan fjögurra vikna frá undirritun.

Til að fella samning samkvæmt meginreglunni þarf meiri hluti greiddra atkvæða að vera á móti honum og þátttaka að ná að minnsta kosti fimmtungi þeirra sem eru á atkvæða- eða félagaskrá. Fari fram almenn leynileg póstatkvæðagreiðsla meðal félagsmanna gildir niðurstaða hennar hins vegar óháð þátttöku.

Taki kjarasamningur aðeins til hluta félagsmanna eða starfsfólks fyrirtækis er heimilt að ákveða í samningnum að þeir einir hafi atkvæðisrétt um hann, enda komi skýrt fram hvernig staðið verði að atkvæðagreiðslunni. Standi tvö eða fleiri stéttarfélög að vinnustaðarsamningi skal bera hann sameiginlega undir atkvæði allra félagsmanna sem hann tekur til, sbr. 4. mgr. 5. gr. Samninganefnd getur einnig ákveðið sameiginlega atkvæðagreiðslu félagsmanna fleiri félaga, sbr. 2. mgr. sömu greinar.

Hverjir hafa atkvæðisrétt?

Atkvæðisréttur um kjarasamning fer eftir gildandi lögum, samningsaðild og samþykktum viðkomandi stéttarfélags.

Aðild að stéttarfélagi tryggir því ekki í öllum tilvikum rétt til að greiða atkvæði um hvern þann kjarasamning sem félagið gerir. Á þetta einkum við um félög sem gera aðskilda kjarasamninga við ríkið, sveitarfélög og atvinnurekendur á almennum vinnumarkaði, sbr. 23. gr. laga nr. 94/1986.

Hvað gerist ef kjarasamningur er felldur?

Sé kjarasamningur felldur með bindandi hætti samkvæmt viðeigandi reglum þurfa samningsaðilar almennt að taka upp viðræður að nýju og geta þá leitað frekara samkomulags, eftir atvikum með milligöngu ríkissáttasemjara.

Synjun kjarasamnings leiðir ekki sjálfkrafa til verkfalls. Um verkfallsboðun gilda sjálfstæðar reglur sem uppfylla verður (sjá Vinnudeilur og verkfallsréttur).

Helstu lagaheimildir: 5. og 23.–24. gr. laga nr. 80/1938 og 4.–8. og 23. gr. laga nr. 94/1986.

Dómar Félagsdóms: nr. 6/2020.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt