Kjara­samn­ingar á op­in­ber­um vinnu­mark­aði

Sérstaða opinbers vinnumarkaðar

Starfsfólk ríkis og sveitarfélaga á, að uppfylltum skilyrðum laga, rétt til að semja sameiginlega um laun og starfskjör.

Meginreglur um kjarasamninga þessa starfsfólks er að finna í lögum nr. 94/1986. Lögin kveða meðal annars á um samningsaðild, efni kjarasamninga, verkfallsrétt og úrlausn ágreinings. Samkvæmt 1. mgr. 1. gr. taka þau til starfsfólks sem er í stéttarfélögum með samningsrétt samkvæmt 4. og 5. gr. og ráðið er hjá ríkinu, ríkisstofnunum, sveitarfélögum eða stofnunum þeirra, enda teljist starfið aðalstarf. Samkvæmt 2. gr. geta lögin einnig tekið til starfsfólks tiltekinna sjálfseignarstofnana sem starfa í almannaþágu.

Lögin ná þó ekki til alls starfsfólks opinberra aðila. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. eru meðal annars undanþegnir tilteknir embættismenn, starfsfólk ríkisbanka og lánastofnana ríkisins og starfsfólk stofnana og fyrirtækja ríkis og sveitarfélaga þegar kaup þess og kjör fara eftir kjarasamningum á grundvelli laga nr. 80/1938. Um síðastnefnda hópinn, svo sem starfsfólk opinberra hlutafélaga, gilda því almennar reglur vinnumarkaðarins.

Því er mikilvægt að kanna hvaða lög og hvaða kjarasamningur gilda um viðkomandi starf.

Samningsréttur stéttarfélaga

Samkvæmt 4. gr. laga nr. 94/1986 fara stéttarfélög starfsmanna ríkis og sveitarfélaga eða samtök slíkra félaga með fyrirsvar félagsmanna sinna um gerð kjarasamninga. Önnur stéttarfélög öðlast samningsrétt samkvæmt 5. gr. ef þau uppfylla að minnsta kosti eitt eftirtalinna skilyrða:

  • að félagið taki til meiri hluta opinberra starfsmanna hjá ríki eða sveitarfélagi, annarra en þeirra sem eru í félögum með samningsrétt samkvæmt 2. eða 3. tölul. greinarinnar;
  • að félagið taki til að minnsta kosti tveggja þriðju hluta starfsmanna sem undir lögin heyra hjá tiltekinni stofnun og að þeir séu 100 eða fleiri;
  • að félagið taki til að minnsta kosti tveggja þriðju hluta starfsmanna í starfsstétt með lögformleg starfsréttindi, eða formlega menntun sem jafna má til slíkra réttinda, og að félagsmennirnir séu 40 eða fleiri.

Síðastnefnda skilyrðið hefur sérstaka þýðingu fyrir aðildarfélög BHM, sem mörg hver byggjast á tiltekinni háskólamenntun, sérþekkingu eða lögvernduðum starfsheitum. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. getur aðeins eitt stéttarfélag átt rétt til samningsgerðar við sama vinnuveitanda fyrir sömu starfsstétt.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laganna fer aðeins eitt stéttarfélag með samningsumboð fyrir hvern starfsmann. Þótt starfsmaður geti átt aðild að fleiri en einu félagi getur hann því ekki falið fleiri félögum en einu að fara með sama lögbundna samningsumboðið.

Félagsdómur sker úr ágreiningi um samningsaðild einstakra stéttarfélaga og um það til hvaða starfsmanna hún nær, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 26. gr. laganna.

Kjarasamningar við ríkið

Fjármála- og efnahagsráðherra fer samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga nr. 94/1986 með fyrirsvar ríkissjóðs við gerð og framkvæmd kjarasamninga samkvæmt lögunum. Ráðherra skipar nefnd til að annast samningsgerðina, samninganefnd ríkisins, og getur falið einstökum ríkisstofnunum að annast framkvæmd kjarasamninga. Forseti Alþingis gerir kjarasamninga við starfsfólk Alþingis, sbr. 3. mgr. 3. gr.

Aðildarfélög BHM sem eiga samningsrétt gagnvart ríkinu gera kjarasamninga við það, ýmist hvert fyrir sig eða í samstarfi við önnur stéttarfélög.

Kjarasamningar ríkisins geta meðal annars kveðið á um launakerfi, almenna launaþróun, vinnutíma og ýmis sameiginleg réttindi.

Um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna gilda jafnframt lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, eftir því sem þau eiga við. Kjarasamningar og þau lög mynda þannig saman grundvöll ráðningarkjara ríkisstarfsmanna.

Kjarasamningar við sveitarfélög

Sveitarstjórnir fara samkvæmt 4. mgr. 3. gr. laga nr. 94/1986 með fyrirsvar sveitarfélaga við gerð kjarasamninga við starfsfólk sitt.

Sveitarfélög geta samið sjálfstætt eða falið sameiginlegri samninganefnd að fara með samningsumboð sitt, sbr. 5. mgr. 3. gr. Samband íslenskra sveitarfélaga annast kjarasamningsgerð fyrir hönd þeirra sveitarfélaga sem hafa veitt því umboð. Reykjavíkurborg hefur jafnframt gert eigin kjarasamninga við ýmis stéttarfélög.

Þótt starfsfólk ríkis og sveitarfélaga falli að verulegu leyti undir sömu kjarasamningalöggjöf geta kjarasamningar, launakerfi og framkvæmd einstakra réttinda verið ólík eftir vinnuveitendum.

Stofnanasamningar og staðbundin launamyndun

Á opinberum vinnumarkaði er hluti launamyndunar oft útfærður í stofnanasamningum eða sambærilegum staðbundnum samningum.

Stofnanasamningar eru gerðir á grundvelli heimilda og fyrirmæla í viðkomandi kjarasamningi. Í þeim er meðal annars unnt að útfæra röðun starfa og mat á ábyrgð, hæfni og öðrum þáttum sem hafa áhrif á launasetningu.

Stofnanasamningur kemur ekki í stað aðalkjarasamnings heldur bætist við hann innan þeirra marka sem samningsaðilar hafa ákveðið.

Þegar ný stofnun er sett á fót eða nýjar stöður stofnaðar skal ákveða kjör starfsfólks með samkomulagi ráðherra eða sveitarstjórnar og hlutaðeigandi stéttarfélaga, sbr. 25. gr. laga nr. 94/1986.

Takmarkanir á verkfallsrétti

Þótt samningsréttur opinberra starfsmanna sé víðtækur sæta verkfallsréttur þeirra ákveðnum takmörkunum.

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 94/1986 er tilteknum hópum opinberra starfsmanna óheimilt að leggja niður störf. Þar undir falla meðal annars tilteknir embættismenn, starfsfólk Alþingis, Stjórnarráðsins og dómstóla og þeir sem gegna nauðsynlegustu öryggisgæslu og heilbrigðisþjónustu (sjá Vinnudeilur og verkfallsréttur).

Takmarkanirnar þýða ekki að viðkomandi starfsfólk sé án samningsréttar. Samkvæmt 1. mgr. 22. gr. laganna skal samninganefnd þess stéttarfélags sem það tilheyrir semja um kjör þess. Náist ekki samningar um kjör tiltekinna hópa á stéttarfélagið rétt á að gerðardómur leysi úr deilunni, sbr. 2. mgr. 22. gr.

Helstu lagaheimildir: 1.–8., 19., 22., 25. og 26. gr. laga nr. 94/1986 og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt