- Kjarasamningar og stéttarfélög
- Kjarasamningar og samningsréttur
- Kjarasamningar á opinberum vinnumarkaði
- Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði
- Gerð og samþykkt kjarasamninga
- Vinnudeilur og verkfallsréttur
- Ríkissáttasemjari og lausn vinnudeilna
- Félagafrelsi og réttindi stéttarfélaga
- Framkvæmd kjarasamninga og úrlausn ágreinings
Lagalegur grundvöllur
Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði byggjast fyrst og fremst á lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.
Lögin fjalla meðal annars um réttinn til að stofna stéttarfélög, samningsrétt þeirra, gerð kjarasamninga, verkföll og verkbönn, hlutverk ríkissáttasemjara og Félagsdóm.
Ólíkt því sem gildir á opinberum vinnumarkaði er samningsréttur stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði ekki háður sambærilegum skilyrðum um stærð félags eða tiltekna starfsmenntun og mælt er fyrir um í 5. gr. laga nr. 94/1986. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 80/1938 eru stéttarfélög lögformlegir samningsaðilar um kaup og kjör félagsmanna sinna, enda taki starfsemi þeirra samkvæmt samþykktum til slíkra málefna. Samkvæmt 2. gr. laganna skulu stéttarfélög vera opin öllum í hlutaðeigandi starfsgrein á félagssvæðinu, eftir nánari reglum í samþykktum félaganna.
Samningsaðilar og samningsumboð
Stéttarfélög geta gert kjarasamninga við einstök fyrirtæki, samtök atvinnurekenda eða aðra vinnuveitendur.
Samtök atvinnulífsins (SA) eru stærstu samtök atvinnurekenda á almennum vinnumarkaði og fara með samningsumboð fjölmargra fyrirtækja.
Aðildarfélög BHM á almennum vinnumarkaði geta gert kjarasamninga við SA, einstaka atvinnurekendur eða aðra aðila, eftir því hvernig samningsaðild og umboði er háttað.
Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 80/1938 hefur samninganefnd umboð til að setja fram tillögur að samningi, taka þátt í samningaviðræðum og undirrita kjarasamning fyrir hönd félagsins. Samninganefnd getur jafnframt falið sameiginlegri samninganefnd fleiri félaga umboð sitt að hluta eða að öllu leyti.
Lágmarkskjör samkvæmt kjarasamningum
Samkvæmt 1. gr. laga nr. 55/1980 eru laun og önnur starfskjör sem samið er um í kjarasamningum lágmarkskjör fyrir allt launafólk í viðkomandi starfsgrein á því svæði sem samningurinn tekur til.
Af því leiðir að atvinnurekanda er óheimilt að semja við starfsmann um lakari kjör en kjarasamningurinn tryggir. Reglan gildir einnig um atvinnurekendur sem eiga ekki aðild að þeim samtökum sem gerðu samninginn. Í dómi Félagsdóms 30. nóvember 2023 í máli nr. 9/2023 var þannig talið að kjarasamningur sem komst á með samþykkt miðlunartillögu ríkissáttasemjara fæli í sér lágmarkskjör fyrir allt launafólk í greininni á viðkomandi svæði, án tillits til þess hvort einstakir atvinnurekendur hefðu átt aðild að viðræðunum eða atkvæðagreiðslunni.
Starfsmaður getur hins vegar samið um hærri laun og önnur betri kjör, að því marki sem lög og kjarasamningar heimila.
Háskólamenntað starfsfólk á almennum vinnumarkaði
Háskólamenntað starfsfólk starfar á fjölbreyttum vettvangi, meðal annars við sérfræðiþjónustu, tækni, rannsóknir, fjármál, heilbrigðisþjónustu og í öðrum þekkingargreinum.
Ráðningarkjör þess geta ráðist af kjarasamningi, einstaklingsbundnum ráðningarsamningi eða samspili beggja.
Þótt einstaklingsbundin launasetning sé algeng hjá sérfræðingum breytir það ekki þeirri grundvallarreglu að virða þarf lágmarksréttindi samkvæmt lögum og kjarasamningum.
Leiki vafi á hvaða kjarasamningur gildir þarf að kanna starfssvið starfsmanns, samningsaðild atvinnurekanda, gildissvið kjarasamninga og eftir atvikum dómaframkvæmd. Í dómi Félagsdóms 29. nóvember 2022 í máli nr. 26/2021 var til dæmis lagt til grundvallar að stéttarfélag færi með samningsaðild fyrir félagsmenn sína samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 80/1938, en að kjarasamningur félagsins tæki engu að síður ekki til starfa þeirra, þar sem störfin féllu utan gildissviðs samningsins. Gildissvið kjarasamnings gat ekki rýmkast með síðari breytingum á félagslögum stéttarfélagsins án samþykkis gagnaðila.
Helstu lagaheimildir: 1.–7. gr. laga nr. 80/1938 og 1. gr. laga nr. 55/1980.
Dómar Félagsdóms: nr. 9/2023 og nr. 26/2021.