Vinnu­deilur og verk­falls­rétt­ur

Hvað er vinnudeila?

Vinnudeila kemur upp þegar stéttarfélag og atvinnurekandi eða samtök atvinnurekenda ná ekki samkomulagi um kaup, kjör eða önnur málefni sem samningsaðilum er heimilt að semja um.

Vinnudeilur geta meðal annars snúist um launahækkanir, vinnutíma, starfsöryggi eða aðra þætti starfskjara.

Greina verður á milli ágreinings um gerð nýs kjarasamnings (hagsmunaágreinings) og ágreinings um túlkun eða framkvæmd gildandi kjarasamnings (réttarágreinings). Sú aðgreining hefur grundvallarþýðingu fyrir það hvaða úrræðum samningsaðilar geta beitt.

Friðarskylda á gildistíma kjarasamnings

Á gildistíma kjarasamnings ríkir almennt friðarskylda um þau atriði sem samningurinn tekur til. Samningsaðilar geta því ekki gripið til vinnustöðvunar til að knýja fram breytingar á gildandi samningsbundnum kjörum.

Friðarskyldan á sér meðal annars stoð í 1. tölul. 17. gr. laga nr. 80/1938 og 1. tölul. 17. gr. laga nr. 94/1986, en samkvæmt þeim er óheimilt að hefja vinnustöðvun ef ágreiningur lýtur einungis að atriðum sem Félagsdómur hefur úrskurðarvald um, nema til að fullnægja dómum hans.

Leysa ber ágreining um túlkun eða efndir gildandi kjarasamnings með viðræðum eða eftir atvikum fyrir Félagsdómi eða almennum dómstólum, eftir eðli kröfunnar (sjá Framkvæmd kjarasamninga og úrlausn ágreinings).

Rétturinn til verkfalls

Verkfallsréttur er eitt mikilvægasta úrræði stéttarfélaga til að fylgja eftir kröfum sínum í kjaradeilum. Hann er lögbundinn, sbr. 14. gr. laga nr. 80/1938 og 14. gr. laga nr. 94/1986, og nýtur einnig verndar 74. gr. stjórnarskrárinnar og alþjóðlegra mannréttindareglna. Hann er þó ekki ótakmarkaður.

Verkfall felst í því að starfsfólk leggur niður venjuleg störf sín að hluta eða öllu leyti í því skyni að ná tilteknu sameiginlegu markmiði. Sama gildir um aðrar sambærilegar aðgerðir sem jafna má til verkfalla, sbr. 19. gr. laga nr. 80/1938 og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 94/1986.

Dómaframkvæmd Félagsdóms hefur mótað nánari skilyrði fyrir lögmæti verkfalla:

  • Kröfur verða að liggja fyrir. Verkfall verður að þjóna þeim tilgangi að fylgja eftir kröfum stéttarfélags í deilu um kjarasamning. Í dómi Félagsdóms 23. október 2024 í máli nr. 11/2024 var talið að lög nr. 94/1986 mæli ekki fyrir um form eða efnislegt inntak kröfugerðar og að kröfur stéttarfélagsins hefðu verið nægilega fram komnar.
  • Verkþáttur verður að vera aðgreinanlegur. Í dómi Félagsdóms 4. apríl 2025 í máli nr. 2/2025 var talið að verkþáttur sem verkfall tekur til yrði að vera nægilega skýrt afmarkaður frá öðrum starfsskyldum til að unnt væri að framfylgja verkfallinu. Þar sem atkvæðagreiðslan tók til allra þátta verkfallsboðunarinnar í einu lagi leiddi ólögmæti eins þáttar til þess að vinnustöðvunin í heild var talin ólögmæt.
  • Samúðarverkföll. Samúðarverkföll eru heimil til stuðnings lögmætu verkfalli annars félags, en þau mega ekki hafa það markmið að breyta kjörum þeirra sem leggja niður störf. Í dómi Félagsdóms 5. mars 2020 í máli nr. 3/2020 var boðað samúðarverkfall dæmt ólögmætt, þar sem markmið þess var í reynd talið að breyta kjörum félagsmanna sjálfra. Óheimilt er að hefja vinnustöðvun til styrktar ólögmætri vinnustöðvun, sbr. 3. tölul. 17. gr. laga nr. 80/1938 og 3. tölul. 17. gr. laga nr. 94/1986.

Atkvæðagreiðsla og boðun verkfalls

Opinber vinnumarkaður

Samkvæmt 15. gr. laga nr. 94/1986 er boðun verkfalls því aðeins lögmæt að ákvörðun um hana hafi verið tekin í almennri leynilegri allsherjaratkvæðagreiðslu í hverju stéttarfélagi sem er samningsaðili. Til að samþykkja verkfallsboðun þarf að minnsta kosti helmingur þeirra félagsmanna sem starfa hjá þeim vinnuveitanda sem verkfallið beinist gegn að taka þátt í atkvæðagreiðslunni og meiri hluti þeirra að samþykkja tillöguna.

Samkvæmt 16. gr. laganna skal tilkynna ríkissáttasemjara og viðsemjanda um vinnustöðvun með að minnsta kosti 15 sólarhringa fyrirvara. Verkfallsboðun skal vera skrifleg og kynnt viðtakanda með sannanlegum hætti.

Ólíkt því sem gildir á almennum vinnumarkaði gera lög nr. 94/1986 ekki kröfu um að viðræður hafi reynst árangurslausar þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara áður en verkfall er boðað, eins og Félagsdómur benti á í máli nr. 11/2024.

Almennur vinnumarkaður

Samkvæmt 1. mgr. 15. gr. laga nr. 80/1938 er vinnustöðvun því aðeins heimil að ákvörðun um hana hafi verið tekin í almennri leynilegri atkvæðagreiðslu þar sem að minnsta kosti fimmtungur atkvæðisbærra félagsmanna tekur þátt og meiri hluti greiddra atkvæða styður tillöguna. Fari fram almenn leynileg póstatkvæðagreiðsla ræður niðurstaða hennar óháð þátttöku.

Sé vinnustöðvun aðeins ætlað að taka til ákveðins hóps félagsmanna eða starfsfólks á tilgreindum vinnustað er heimilt að taka ákvörðun um hana með atkvæðum þeirra sem henni er ætlað að taka til, sbr. 2. mgr. 15. gr. Í tillögu um vinnustöðvun skal koma skýrt fram til hverra hún tekur og hvenær hún á að hefjast.

Það er jafnframt skilyrði lögmætrar ákvörðunar um boðun vinnustöðvunar að samningaviðræður eða viðræðutilraunir hafi reynst árangurslausar þrátt fyrir milligöngu sáttasemjara, sbr. 3. mgr. 15. gr.

Samkvæmt 16. gr. laganna skal tilkynna sáttasemjara og þeim sem vinnustöðvun beinist einkum gegn um hana með sjö sólarhringa fyrirvara. Samninganefnd getur ávallt aflýst vinnustöðvun og frestað henni, einu sinni eða oftar, um allt að 28 sólarhringa samtals án samþykkis gagnaðila, enda sé frestunin kynnt með minnst þriggja sólarhringa fyrirvara, sbr. 4. mgr. 15. gr.

Í dómi Félagsdóms 6. febrúar 2023 í máli nr. 1/2023 var áréttað að samkvæmt 14. gr. laga nr. 80/1938 verði verkfallsrétturinn aðeins takmarkaður með skilyrðum sem fram koma í lögum.

Hverjir taka þátt í verkfalli?

Löglega boðað verkfall er sameiginleg aðgerð þess hóps sem verkfallsboðunin tekur til. Starfsmaður getur því fallið undir verkfall þótt hann hafi sjálfur greitt atkvæði gegn verkfallsboðun.

Á opinberum vinnumarkaði tekur boðað verkfall samkvæmt 1. mgr. 18. gr. laga nr. 94/1986 til allra starfsmanna viðkomandi stéttarfélags hjá þeim vinnuveitendum sem verkfallið beinist gegn, annarra en þeirra sem óheimilt er að leggja niður störf. Í dómi Félagsdóms 9. febrúar 2025 í máli nr. 1/2025 var talið að vinnuveitendur í skilningi ákvæðisins væru sveitarfélögin sjálf en ekki einstakir skólar. Verkföll sem aðeins náðu til félagsmanna í tilteknum skólum innan sveitarfélags voru því dæmd ólögmæt, þar sem þau tóku ekki til allra félagsmanna stéttarfélagsins hjá viðkomandi sveitarfélagi. Staðbundin verkföll eru þó ekki bönnuð sem slík, en þau verða að ná til allra félagsmanna stéttarfélagsins hjá vinnuveitandanum.

Á almennum vinnumarkaði getur löglega boðað verkfall einnig tekið til starfsfólks utan stéttarfélagsins sem vinnur á því starfssviði sem kjarasamningurinn tekur til. Í dómi Félagsdóms 13. febrúar 2020 í máli nr. 19/2019 var talið að launafólk í starfsgreininni nyti sömu réttarstöðu óháð stéttarfélagsaðild, sbr. lög nr. 55/1980, en að verktakar og aðrir sem kjarasamningurinn tæki ekki til væru ekki bundnir af verkfallinu.

Þegar vinnustöðvun er löglega hafin er þeim sem hún beinist gegn óheimilt að afstýra henni með aðstoð einstakra félagsmanna þess félags sem að henni stendur, sbr. 18. gr. laga nr. 80/1938 og 2. mgr. 18. gr. laga nr. 94/1986. Í máli nr. 19/2019 var atvinnurekandi talinn hafa brotið gegn 18. gr. laga nr. 80/1938 með því að láta starfsmann, sem féll undir kjarasamninginn, ganga í störf þeirra sem voru í verkfalli.

Félagsfólk ætti ávallt að kynna sér leiðbeiningar síns stéttarfélags um umfang verkfalls, framkvæmd þess og þær skyldur sem því fylgja.

Takmarkanir á verkfallsrétti opinberra starfsmanna

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 94/1986 nær verkfallsheimild ekki til tiltekinna hópa opinberra starfsmanna. Takmarkanirnar taka meðal annars til tiltekinna embættismanna, starfsfólks Alþingis, skrifstofu forseta Íslands og Stjórnarráðsins, starfsfólks dómstóla og tiltekinna embætta, þeirra sem gegna nauðsynlegustu öryggisgæslu og heilbrigðisþjónustu og tiltekinna stjórnenda sveitarfélaga.

Samkvæmt 2. mgr. 19. gr. skulu ráðherra og sveitarfélög, að undangengnu samráði við viðkomandi stéttarfélög, birta fyrir 1. febrúar ár hvert skrár yfir þau störf sem falla undir 5.–8. tölul. 1. mgr. Andmæli gegn breytingum á skrám skulu berast fyrir 1. mars og Félagsdómur sker úr ágreiningi um þær. Í dómi Félagsdóms 20. desember 2019 í máli nr. 16/2019 var talið að túlka bæri undantekningar frá verkfallsrétti þröngt og að vinnuveitandi yrði að sýna fram á að skráning starfa gengi ekki lengra en nauðsynlegt væri. Þá var talið að samráðsskyldan fæli í sér að stéttarfélag fengi hæfilegan frest til að kynna sér tillögur og koma að athugasemdum, þótt hún krefðist ekki samkomulags. Nokkur störf voru felld af skránni.

Samkvæmt 20. og 21. gr. laganna er heimilt að kalla starfsfólk í verkfalli tímabundið til vinnu til að afstýra neyðarástandi. Nefnd tveggja fulltrúa, annars tilnefnds af stéttarfélaginu og hins af viðsemjanda þess, tekur ákvörðun um slíka kvaðningu.

Laun og réttindi meðan á verkfalli stendur

Þegar starfsmaður leggur niður störf í verkfalli fellur launagreiðsluskylda atvinnurekanda almennt niður þann tíma sem vinna er ekki innt af hendi.

Stéttarfélög geta samkvæmt eigin reglum greitt félagsfólki styrki úr verkfallssjóðum.

Um önnur réttindi, svo sem ávinnslu réttinda, veikindi og orlof í tengslum við verkfall, getur þurft að meta aðstæður sérstaklega með hliðsjón af lögum og kjarasamningum.

Verkbönn

Á almennum vinnumarkaði geta atvinnurekendur og samtök þeirra, að uppfylltum lögbundnum skilyrðum, gripið til verkbanns í vinnudeilu, sbr. 14. og 15. gr. laga nr. 80/1938.

Verkbann er vinnustöðvun af hálfu atvinnurekanda sem beinist gegn starfsfólki, sbr. 19. gr. laganna.

Lög nr. 94/1986 kveða ekki á um heimild til verkbanns.

Helstu lagaheimildir: 14.–22. gr. laga nr. 94/1986, 14.–19. gr. laga nr. 80/1938 og 74. gr. stjórnarskrárinnar.

Dómar Félagsdóms: nr. 1/2025, nr. 2/2025, nr. 11/2024, nr. 1/2023, nr. 3/2020, nr. 19/2019 og nr. 16/2019.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt