Ör­ygg­is­trún­að­ar­menn, ör­ygg­is­verð­ir og ör­ygg­is­nefnd­ir

Vinnuvernd er samstarfsverkefni atvinnurekanda og starfsfólks. Öryggistrúnaðarmenn, sem starfsfólk kýs úr sínum hópi, taka þátt í gerð áhættumats og hafa eftirlit með því að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustaðnum séu í samræmi við lög.

Hvaða reglur gilda?

Í II. kafla laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og í reglugerð nr. 920/2006 um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum er kveðið á um samstarf atvinnurekanda og starfsfólks í vinnuverndarmálum. Fyrirkomulagið ræðst af fjölda starfsfólks á vinnustaðnum.

Stærð vinnustaðar ræður fyrirkomulaginu

  • Færri en tíu starfsmenn: Atvinnurekandi, eða verkstjóri hans, skal stuðla að góðum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi í nánu samstarfi við starfsfólk og félagslegan trúnaðarmann þess.
  • Tíu starfsmenn eða fleiri: Starfsfólk kýs úr sínum hópi öryggistrúnaðarmann og atvinnurekandi tilnefnir öryggisvörð. Þeir fylgjast í sameiningu með því að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustaðnum séu í samræmi við lög.
  • 50 starfsmenn eða fleiri: Stofna skal öryggisnefnd. Starfsfólk kýs tvo fulltrúa úr sínum hópi og atvinnurekandi tilnefnir tvo fulltrúa.

Fjöldi starfsfólks miðast að jafnaði við meðalfjölda á undanförnu ári. Atvinnurekandi og þeir sem undirbúa kosningu geta samið um að fyrirkomulagið gildi í einstökum starfseiningum eða útibúum, til dæmis þegar starfsemi er dreifð.

Hvert er hlutverk öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða?

Öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir vinna að bættum aðbúnaði og fylgjast með því að ráðstafanir í vinnuverndarmálum skili tilætluðum árangri. Þeir taka þátt í gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustaðnum, þar á meðal áhættumats og áætlunar um forvarnir, og fylgjast með því hvernig henni er framfylgt. Sjá nánar um áhættumat og forvarnir.

Þeir skulu fara í eftirlitsferðir um vinnustaðinn svo oft sem þörf er á og fylgjast meðal annars með því að:

  • vélar, búnaður, hættuleg efni og starfsaðferðir stofni ekki lífi og heilsu starfsfólks í hættu,
  • einelti, áreitni eða ofbeldi viðgangist ekki á vinnustaðnum,
  • starfsfólki sé kynnt sú áhætta sem fylgir störfum þess og vinnuaðstæðum,
  • vinnuslys, óhöpp og atvinnusjúkdómar séu skráð,
  • starfsfólk fái nauðsynlega fræðslu á sviði vinnuverndar.

Öryggistrúnaðarmenn gegna einnig hlutverki við meðferð kvartana og ábendinga um einelti, áreitni og ofbeldi, sjá einelti, áreitni og ofbeldi.

Ábyrgð á vinnuverndarstarfinu hvílir eftir sem áður á atvinnurekanda. Öryggistrúnaðarmaður ber ekki ábyrgð á því að vinnuumhverfið sé í lagi.

Öryggisnefnd

Öryggisnefnd skipuleggur aðgerðir varðandi aðbúnað, hollustuhætti og öryggi innan fyrirtækis eða stofnunar, annast fræðslu starfsfólks og hefur eftirlit með því að ráðstafanir komi að tilætluðum notum. Nefndin á meðal annars að fjalla um vinnuslys, óhöpp og atvinnusjúkdóma, greina orsakir þeirra og leggja til úrbætur. Hún á einnig að fjalla um áform um meiriháttar framkvæmdir eða breytingar á starfsemi.

Öryggisnefnd skal halda fundi að minnsta kosti fjórum sinnum á ári og oftar ef tveir eða fleiri nefndarmenn óska þess. Náist ekki samkomulag í nefndinni skal bóka sjónarmið hvors aðila og getur hver nefndarmaður vísað málinu til Vinnueftirlitsins.

Hvaða upplýsingar eiga öryggistrúnaðarmenn rétt á?

Atvinnurekandi skal skýra öryggistrúnaðarmönnum og öryggisvörðum frá vinnuslysum, óhöppum og atvinnusjúkdómum sem verða á vinnustaðnum. Þeim skulu jafnframt kynntar niðurstöður mælinga og rannsókna á hollustuháttum og öryggi, bilanir eða aðstæður sem geta haft áhrif á aðbúnað og öryggi og fyrirmæli Vinnueftirlitsins sem varða vinnustaðinn. Öryggistrúnaðarmenn eiga aðgang að öðrum gögnum sem varða aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustaðnum.

Öryggistrúnaðarmönnum og öryggisvörðum ber að gæta trúnaðar um persónuleg málefni og aðrar upplýsingar sem þeir fá vitneskju um í störfum sínum og leynt eiga að fara.

Kosning öryggistrúnaðarmanns

Félagslegir trúnaðarmenn starfsfólks eða trúnaðarmenn viðkomandi stéttarfélaga undirbúa og annast kosningu öryggistrúnaðarmanna. Sá sem hefur frumkvæði að kosningu skal tilkynna það gagnaðila.

  • Kosningin fer fram með leynilegri, skriflegri atkvæðagreiðslu sem stendur í að minnsta kosti einn vinnudag, eða á starfsmannafundi sem boðaður er með að minnsta kosti tveggja sólarhringa fyrirvara.
  • Kosningarétt og kjörgengi hefur starfsfólk almennt óháð ráðningarformi, að stjórnendum undanskildum.
  • Öryggistrúnaðarmenn eru að jafnaði kosnir til tveggja ára í senn.

Atvinnurekandi tilkynnir Vinnueftirlitinu hverjir hafa verið tilnefndir öryggisverðir og kosnir öryggistrúnaðarmenn. Þeir sem annast kosninguna tilkynna jafnframt viðkomandi stéttarfélögum um niðurstöðuna.

Hvað ef enginn öryggistrúnaðarmaður hefur verið kosinn?

Á vinnustöðum með tíu eða fleiri starfsmenn er kosning öryggistrúnaðarmanns lögbundin. Hafi hún ekki farið fram getur starfsfólk leitað til trúnaðarmanns stéttarfélags á vinnustaðnum eða til stéttarfélagsins sjálfs, sem getur haft frumkvæði að kosningu.

Tími, fræðsla og kostnaður

Atvinnurekandi skal sjá til þess að öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir fái hæfilegan tíma til að sinna störfum sínum og tækifæri til að afla sér nauðsynlegrar þekkingar á sviði vinnuverndar. Atvinnurekandi ber kostnað af störfum þeirra og bætir þeim tekjutap sem af þeim kann að hljótast.

Vinnueftirlitið býður upp á námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði.

Vernd í starfi

Öryggistrúnaðarmenn og fulltrúar starfsfólks í öryggisnefnd njóta sömu verndar gegn uppsögn og trúnaðarmenn stéttarfélaga samkvæmt 11. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Sjá nánar um réttindi og vernd trúnaðarmanna.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt