Vinnu­álag, streita og sál­fé­lags­legt vinnu­um­hverfi

Óhóflegt vinnuálag, undirmönnun, óljósar starfskröfur og erfið samskipti eru áhættuþættir sem atvinnurekandi þarf að greina í áhættumati og bregðast við. Ábyrgð á forvörnum hvílir fyrst og fremst á atvinnurekanda.

Hvað er sálfélagslegt vinnuumhverfi?

Sálfélagslegt vinnuumhverfi tekur til skipulags vinnunnar, stjórnunarhátta, samskipta og þeirra krafna sem gerðar eru til starfsfólks. Þessir þættir geta haft jafnmikil áhrif á heilsu og líðan og hinir líkamlegu. Vinnuverndarlöggjöfin gerir ekki greinarmun á þessu tvennu: atvinnurekanda ber að greina og bregðast við hvoru tveggja.

Dæmi um áhættuþætti sem algengir eru í störfum háskólamenntaðra sérfræðinga:

  • viðvarandi vinnuálag umfram það sem raunhæft er að sinna á vinnutíma, til dæmis vegna undirmönnunar,
  • óljós ábyrgð, hlutverk og starfskröfur, eða verkefni umfram starfslýsingu,
  • tilfinningalegar og siðferðilegar kröfur, til dæmis þegar starfsfólk í heilbrigðis-, félags- eða menntakerfi getur ekki veitt þá þjónustu sem það telur faglega rétta,
  • lítil stjórn á eigin verkefnum og vinnutíma og skortur á faglegum stuðningi,
  • óljós mörk vinnu og einkalífs, meðal annars vegna stafrænna samskipta utan vinnutíma,
  • erfið samskipti, viðvarandi ágreiningur og óheilbrigð vinnustaðamenning,
  • hótanir og ofbeldi af hálfu notenda þjónustu.

Hvaða skyldur hefur atvinnurekandi?

Áhættumat atvinnurekanda á að taka til allra þátta vinnuumhverfisins, þar á meðal félagslegra og andlegra þátta. Samkvæmt reglugerð nr. 1009/2015 skal við gerð áhættumats meðal annars líta til fjölda starfsfólks, skipulags vinnutíma, vinnuálags og eðlis starfa. Sjá nánar um áhættumat og forvarnir.

Þegar áhættumat leiðir í ljós að álag ógnar heilsu starfsfólks skal atvinnurekandi grípa til forvarna. Samkvæmt meginreglum vinnuverndarréttar á að vinna gegn áhættu við upptök hennar. Aðgerðir eiga því fyrst og fremst að beinast að skipulagi vinnunnar, svo sem mönnun, verkefnaskipan, forgangsröðun, starfslýsingum, vinnutíma og stjórnunarháttum.

Að mati BHM geta námskeið í streitustjórnun eða hvatning til aukinnar seiglu verið gagnleg, en þau koma ekki í stað aðgerða sem draga úr álaginu sjálfu.

Atvinnurekandi skal einnig virða reglur um daglegan og vikulegan hvíldartíma og hámarksvinnutíma, sem settar eru til verndar heilsu og öryggi starfsfólks.

Hvað getur starfsfólk gert ef vinnuálag er óhóflegt?

  1. Skráðu álagið. Haltu utan um verkefni, vinnustundir, yfirvinnu og tilvik þar sem hvíld hefur verið skert. Atvinnurekanda er skylt að skrá vinnutíma og starfsfólk á rétt á aðgangi að skráningunni, sjá skráning vinnutíma.
  2. Ræddu við næsta yfirmann. Lýstu stöðunni og óskaðu eftir forgangsröðun verkefna eða öðrum úrbótum. Gott er að fylgja samtalinu eftir með tölvupósti.
  3. Leitaðu til öryggistrúnaðarmanns. Óskaðu eftir að álagsþættir verði metnir í áhættumati vinnustaðarins.
  4. Leitaðu til trúnaðarmanns eða stéttarfélags, ekki síst ef álagið tengist kjarasamningsbundnum réttindum, til dæmis yfirvinnu, vinnutíma eða starfslýsingu.
  5. Sendu Vinnueftirlitinu ábendingu ef atvinnurekandi bregst ekki við.

Sjá nánar hvað starfsfólk getur gert ef vinnuumhverfi er ábótavant.

Streita, kulnun og veikindi

Langvarandi álag getur leitt til streitutengdra einkenna, svo sem svefntruflana, þreytu, kvíða og einbeitingarerfiðleika, og að lokum til örmögnunar eða kulnunar. Ef ekki er brugðist við getur það leitt til veikindafjarvista og jafnvel starfsloka.

Starfsfólk sem verður óvinnufært á rétt á launum í veikindum samkvæmt kjarasamningi, sjá veikindaréttur. Þegar starfsorka er skert til lengri tíma getur starfsendurhæfing komið til álita. Frá 1. september 2025 hafa sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá Tryggingastofnun komið í stað endurhæfingarlífeyris. Um aðlögun starfa og endurkomu eftir veikindi er fjallað á síðunni endurkoma til starfa.

Um rétt til bóta vegna heilsutjóns sem rekja má til vinnu er fjallað á síðunni vinnuslys, atvinnusjúkdómar og vinnutengt heilsutjón.

Stuðningur eftir alvarleg atvik

Í mörgum störfum getur starfsfólk orðið fyrir eða orðið vitni að alvarlegum atvikum, svo sem ofbeldi, hótunum, alvarlegum slysum eða dauðsföllum. Í áætlun atvinnurekanda um forvarnir á að koma fram hvernig brugðist er við ofbeldi og hótunum. Eðlilegt er að áætlunin taki einnig til stuðnings við starfsfólk eftir slík atvik, til dæmis viðrunar, aðgangs að sálfræðiaðstoð og svigrúms til að jafna sig áður en starfsfólk snýr aftur til fullra starfa.

Nánari upplýsingar

Vinnueftirlitið hefur gefið út ítarlegt efni um sálfélagslegt vinnuumhverfi.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt