- Veikindaréttur
- Veikindaréttur hjá ríki og sveitarfélögum
- Veikindaréttur á almennum vinnumarkaði
- Hvað telst veikindi?
- Tilkynning veikinda, læknisvottorð og persónuvernd
- Veikindi og orlof
- Veikindi, uppsögn og starfslok
- Endurkoma til starfa og hlutaveikindi
- Langvarandi veikindi: þegar veikindaréttur er fullnýttur
- Starfsendurhæfing og VIRK
- Veikindi barna og annarra aðstandenda
- Vinnuslys og atvinnusjúkdómar: laun og tryggingar
Hvaða kjarasamningur gildir?
Um veikindarétt fer eftir kjarasamningi aðildarfélags þíns við viðkomandi launagreiðanda. Hjá ríkinu og hjá sveitarfélögum sem Samband íslenskra sveitarfélaga semur fyrir er fjallað um réttinn í 12. kafla kjarasamninga, en í 11. kafla kjarasamninga við Reykjavíkurborg. Ákvæðin eru að stofni til samhljóða. Þar sem þau eru ólík er það tekið fram hér að neðan. Gildandi samningar gilda frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.
Hversu lengi á ég rétt á veikindalaunum?
Starfsfólk á mánaðarlaunum, sem ráðið er til að minnsta kosti tveggja mánaða, heldur launum í veikindum og eftir slys í tiltekinn fjölda daga á hverjum 12 mánuðum. Fjöldinn ræðst af starfstíma:
- Fyrstu 3 mánuði í starfi: 14 dagar
- Næstu 3 mánuði: 35 dagar
- Eftir 6 mánuði: 119 dagar
- Eftir 1 ár: 133 dagar
- Eftir 7 ár: 175 dagar
- Eftir 12 ár: 273 dagar
- Eftir 18 ár: 360 dagar
Starfsfólk í tímavinnu og þau sem ráðin eru til skemmri tíma en tveggja mánaða eiga rétt á 2 dögum á fyrsta mánuði í starfi, 4 dögum á öðrum mánuði, 6 dögum á þriðja mánuði, 14 dögum eftir þrjá mánuði og 30 dögum eftir sex mánuði.
Hvernig eru veikindadagar taldir?
Veikindadagar eru taldir í almanaksdögum en ekki vinnudögum. Helgar og frídagar innan veikindatímabils teljast því með. Miðað er við síðustu 12 mánuði en ekki almanaksárið: þegar þú veikist eru veikindadagar síðustu 12 mánaða lagðir saman og dregnir frá réttinum.
Telst fyrri starfsaldur með?
Já. Auk starfstíma hjá núverandi launagreiðanda telst þjónustualdur hjá stofnunum ríkisins, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meirihluta af almannafé.
Á fyrstu þremur mánuðum samfelldrar ráðningar er fyrri þjónustualdur þó aðeins metinn ef þú átt að baki samfelldan þjónustualdur hjá þessum launagreiðendum í 12 mánuði eða lengur.
Á þessa reglu reyndi í dómi Félagsdóms 5. mars 2025 í máli nr. 13/2024. Þar var viðurkennt að starfsmaður, sem hafði starfað skemur en þrjá mánuði hjá sveitarfélagi, ætti rétt á launum í veikindum í allt að 273 daga vegna þjónustualdurs hjá öðrum opinberum launagreiðendum, sbr. grein 12.2.5 í kjarasamningi.
Hvaða laun eru greidd í veikindum?
- Fyrstu vikuna: mánaðarlaun og fastar greiðslur, svo sem fyrir reglubundna yfirvinnu og vaktaálag, enda sé vinnan fyrir fram ákveðin og hafi staðið í 12 mánuði eða sé ætlað að standa svo lengi.
- Eftir fyrstu vikuna: að auki meðaltal yfirvinnustunda síðustu 12 mánaða.
Ákvæðin eru í greinum 12.2.6 og 12.2.7, en 11.2.6 og 11.2.7 hjá Reykjavíkurborg. Laun eru ekki greidd lengur en ráðningu er ætlað að standa, sem skiptir máli í tímabundinni ráðningu og við starfslok. Í kjarasamningum við Reykjavíkurborg er undantekning vegna vinnuslysa: þá heldur starfsmaður greiðslum eftir lok ráðningar þar til hann verður vinnufær eða hefur tæmt rétt sinn, hvort sem fyrr verður (grein 11.2.1).
Vinnuslys og atvinnusjúkdómar
Stafi óvinnufærni af vinnuslysi eða atvinnusjúkdómi bætist við réttinn réttur til mánaðarlauna í 13 vikur (91 dag). Sjá Vinnuslys og atvinnusjúkdómar: laun og tryggingar.
Hlutaveikindi
Vinni starfsmaður skert starf vegna veikinda eða slyss, að læknisráði og með leyfi forstöðumanns, greiðast veikindalaun fyrir það starfshlutfall sem á vantar. Um heimild er að ræða en ekki skilyrðislausan rétt. Sjá nánar um endurkomu til starfa og hlutaveikindi.