Lang­var­andi veik­indi: þegar veik­inda­rétt­ur er full­nýtt­ur

Þegar réttur til launa frá vinnuveitanda er tæmdur geta aðrar greiðslur tekið við. Þær byggjast á ólíkum grunni: reglum sjóða stéttarfélaga, lögum um sjúkratryggingar og almannatryggingar og samþykktum lífeyrissjóða.

Lýkur ráðningunni þegar veikindalaun falla niður?

Nei, ekki sjálfkrafa. Ráðningarsambandið helst þótt launagreiðslur falli niður, nema því sé slitið með uppsögn, lausn frá störfum eða samkomulagi. Réttindi sem ráðast af kjarasamningi og sjóðsaðild geta því áfram skipt máli.

Sjúkrasjóður og Styrktarsjóður BHM

Félagsfólk á almennum vinnumarkaði á aðild að Sjúkrasjóði BHM og félagsfólk hjá ríki og sveitarfélögum að Styrktarsjóði BHM. Sjóðirnir greiða meðal annars sjúkradagpeninga þegar launagreiðslur falla niður vegna veikinda eða slysa. Réttur, fjárhæðir og greiðslutími ráðast af úthlutunarreglum hvors sjóðs. Nýjar úthlutunarreglur Styrktarsjóðs tóku gildi 1. september 2025. Sótt er um á Mínum síðum BHM.

Sjúkradagpeningar Sjúkratrygginga Íslands

Sjúkratryggingar Íslands greiða sjúkradagpeninga þeim sem eru óvinnufærir og njóta ekki launa. Greitt er frá því að veikindarétti hjá vinnuveitanda lýkur, þó ekki fyrir fyrstu 14 daga veikinda. Dagpeningarnir eru föst fjárhæð á dag, greiddir að fullu eða hálfu, að hámarki í eitt ár á hverjum tveimur árum. Þá má fá samhliða greiðslum úr sjúkrasjóði stéttarfélags.

Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur Tryggingastofnunar

Frá 1. september 2025 greiðir Tryggingastofnun sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í stað endurhæfingarlífeyris. Þeim er ætlað að tryggja afkomu fólks sem þarf á endurhæfingu að halda vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar. Þær má einnig greiða meðan beðið er eftir að endurhæfing hefjist.

Lífeyrissjóðir

Sjóðfélagar lífeyrissjóða geta átt rétt á örorkulífeyri þegar starfsgeta skerðist til lengri tíma. Skilyrði og fjárhæðir ráðast af samþykktum hvers sjóðs. Leitaðu upplýsinga hjá þínum lífeyrissjóði.

Lausn frá störfum og lausnarlaun hjá ríki og sveitarfélögum

Kjarasamningar við ríki, sveitarfélög og Reykjavíkurborg heimila vinnuveitanda að leysa starfsmann frá störfum vegna heilsubrests í tveimur tilvikum:

  • þegar starfsmaður hefur verið óvinnufær svo mánuðum skiptir á hverju ári um fimm ára skeið og ekki er skýlaust vottað að hann hafi fengið varanlega heilsubót,
  • þegar starfsmaður hefur verið samfellt frá vinnu launalaust vegna veikinda eða slysa jafnlangan tíma og hann átti rétt á að halda launum.

Starfsmaður getur einnig sjálfur óskað lausnar ef hann er samkvæmt læknisvottorði varanlega ófær um að gegna starfi sínu. Krefjast má vottorðs trúnaðarlæknis.

Sé starfsmaður leystur frá störfum á þessum grundvelli heldur hann föstum launum í þrjá mánuði (lausnarlaun). Sama rétt á maki við andlát starfsmanns. Ákvæðin eru í greinum 12.4 og 12.5 í kjarasamningum við ríki og sveitarfélög og greinum 11.4 og 11.5 í kjarasamningum við Reykjavíkurborg.

Sambærileg ákvæði um lausnarlaun eru ekki í kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga BHM.

Leitaðu ráðgjafar tímanlega

Réttur til greiðslna getur verið háður umsóknarfrestum og því í hvaða röð sótt er um. Hafðu samband við aðildarfélag þitt áður en veikindaréttur klárast.

Heimildir og tengt efni

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt