- Veikindaréttur
- Ríki og sveitarfélög
- Tilkynning veikinda
- Almennur vinnumarkaður
- Veikindaréttur vegna barna yngri en 13 ára
- Sjúkdómar og veikindalaun
- Veikindi og uppsögn
- Veikindi og orlof
- Endurkoma til starfa – starfshæfnisvottorð og hlutaveikindi
- Starfsendurhæfing
- Veikindalaun vegna vinnuslysa
Starfshæfnisvottorð við endurkomu
Á flestum vinnustöðum, bæði á opinberum og almennum vinnumarkaði, gilda reglur í kjarasamningum eða starfsreglum um að starfsmaður skuli leggja fram læknisvottorð ef hann hefur verið frá vinnu vegna veikinda í ákveðinn tíma, oft 4 vikur eða lengur.
Slíkt vottorð staðfestir að starfsmaður geti sinnt starfi sínu með eðlilegum hætti eða hvort sérstakar ráðstafanir séu nauðsynlegar, t.d. tímabundin aðlögun eða lækkun starfshlutfalls. Yfirmaður eða mannauðsdeild ber ábyrgð á að óska eftir slíku vottorði ef þörf er á.
Dæmi:
Jón, sem starfar hjá ríkisstofnun, var frá vinnu í 8 vikur vegna bakmeiðsla. Þegar hann snýr aftur leggur hann fram læknisvottorð sem staðfestir að hann sé fær um að hefja störf á ný, en að hann þurfi að fá sérútbúinn vinnustól og forðast að lyfta þungum hlutum næstu mánuði. Vinnuveitandi þarf að tryggja að aðbúnaður og verkefni taki mið af þessum ráðleggingum.
Lækkað starfshlutfall eða hlutaveikindi
Ef starfsmaður getur ekki snúið beint aftur í fullt starf vegna heilsufars, er mögulegt að semja um lækkað starfshlutfall eða svokölluð hlutaveikindi. Í slíkum tilvikum vinnur starfsmaður hluta af starfshlutfalli sínu en fær bætur eða réttindi vegna þess hluta sem hann getur ekki sinnt.
Í kjarasamningum hjá ríki og sveitarfélögum er ákvæði um hlutaveikindi sem er til þess að starfsmaður sem verið hefur frá vinnu vegna veikinda eða slyss eigi kost á aðlögunartíma þegar hann kemur aftur til starfa.
Um heimildarákvæði er að ræða og getur aðeins nýst starfsmanni ef yfirmaður samþykkir það. Skal heimildin notuð sem hluti af endurhæfingu og alltaf tímabundið.
Ákvæðið á ekki við ef starfsmaður er orðinn varanlega ófær um að gegna að fullu því starfshlutfalli er hann er ráðinn til.
Slík ákvæði er í einnig að finna í sumum samningum aðildarfélaga BHM við opinber hlutafélög (ohf.) og sjálfseignarstofnanir.
Sambærilegt ákvæði er ekki í kjarasamningi aðildarfélaga BHM og SA fyrir hinn almenna vinnumarkað.
Veikindalaun
Ef starfsmaður er á hlutaveikindum er staða hans meðhöndluð eins og um tvo aðskilda starfsmenn sé að ræða. Hann fær laun greidd fyrir þann hluta vinnutíma sem hann vinnur, á meðan hann fær veikindagreiðslur fyrir hitt hlutfallið. Þessar veikindagreiðslur dragast frá áunnum veikindarétti.