- Veikindaréttur
- Veikindaréttur hjá ríki og sveitarfélögum
- Veikindaréttur á almennum vinnumarkaði
- Hvað telst veikindi?
- Tilkynning veikinda, læknisvottorð og persónuvernd
- Veikindi og orlof
- Veikindi, uppsögn og starfslok
- Endurkoma til starfa og hlutaveikindi
- Langvarandi veikindi: þegar veikindaréttur er fullnýttur
- Starfsendurhæfing og VIRK
- Veikindi barna og annarra aðstandenda
- Vinnuslys og atvinnusjúkdómar: laun og tryggingar
Hve marga daga má ég vera heima vegna veikinda barns?
Rétturinn ræðst af kjarasamningi og hefur ekki áhrif á þinn eigin veikindarétt.
- Ríki, sveitarfélög og Reykjavíkurborg: Foreldri má vera frá vinnu í samtals 12 vinnudaga á almanaksári vegna veikinda barna undir 13 ára aldri, enda verði annarri umönnun ekki við komið. Það jafngildir 86,4 vinnuskyldustundum í fullu starfi. Greidd eru dagvinnulaun og vaktaálag samkvæmt reglubundinni vaktskrá (grein 12.8.1, hjá Reykjavíkurborg 11.8.1).
- Almennur vinnumarkaður (SA og BHM): Fyrstu sex mánuði í starfi má foreldri verja tveimur dögum fyrir hvern unninn mánuð til að annast sjúk börn sín undir 13 ára aldri, enda verði annarri umönnun ekki við komið. Eftir sex mánaða starf er rétturinn 12 dagar á hverju 12 mánaða tímabili. Foreldri heldur dagvinnulaunum og vaktaálagi þar sem það á við (grein 4.8).
Með foreldri er einnig átt við fósturforeldri eða forráðamann sem er framfærandi barnsins.
Eldri börn og alvarleg veikindi
Samkvæmt kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM frá 2025 nær rétturinn einnig til barna undir 16 ára aldri þegar um alvarleg veikindi er að ræða sem leiða til sjúkrahúsvistar í að minnsta kosti einn dag. Sambærilegt ákvæði er ekki í kjarasamningum við ríki og sveitarfélög.
Hvað telst til veikinda barns?
Rétturinn er ætlaður til að annast barn sem er veikt. Félagsdómur hefur talið að ferð með barn í reglubundna meðferð, svo sem talþjálfun, falli ekki undir ákvæði kjarasamnings um aðhlynningu sjúkra barna (dómur Félagsdóms 16. júní 2021).
Langveik og alvarlega fötluð börn
Foreldrar barna sem greinast með alvarlegan, langvinnan sjúkdóm eða alvarlega fötlun geta átt rétt á greiðslum samkvæmt lögum nr. 22/2006 um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna þegar þeir geta ekki stundað vinnu vegna umönnunar. Tryggingastofnun greiðir einnig umönnunargreiðslur til framfærenda fatlaðra og langveikra barna. Greiðslurnar koma frá ríkinu en ekki vinnuveitanda.
Þegar réttur til launa vegna veikinda barns er tæmdur getur foreldri átt rétt á greiðslum úr sjúkrasjóði eða styrktarsjóði BHM samkvæmt reglum sjóðanna.
Veikindi annarra aðstandenda
Í íslenskum lögum er enginn almennur réttur til launaðrar fjarveru vegna veikinda maka, foreldris eða annarra aðstandenda. Réttur til fjarveru getur þó leitt af kjarasamningi:
- Samkvæmt kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM á starfsmaður rétt á leyfi frá störfum vegna óviðráðanlegra og brýnna fjölskylduástæðna, svo sem sjúkdóms eða slyss sem krefst tafarlausrar nærveru hans. Leyfið er launalaust nema um veikindi barna sé að ræða (grein 4.7.1).
- Ráðningarsamningar og reglur einstakra vinnustaða geta veitt ríkari rétt.
Samkvæmt lögum nr. 27/2000 um fjölskylduábyrgð er óheimilt að segja starfsmanni upp vegna fjölskylduábyrgðar, svo sem umönnunar veiks maka eða skyldmennis sem býr á heimili hans. Lögin veita þó ekki rétt til fjarveru. Sjá Fjölskylduábyrgð.
Umönnunarleyfi samkvæmt EES-reglum
Tilskipun (ESB) 2019/1158 um samræmingu atvinnu og einkalífs foreldra og umönnunaraðila veitir meðal annars rétt til umönnunarleyfis í fimm vinnudaga á ári. Tilskipunin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2024 frá 15. mars 2024. Ákvörðunin hefur þó ekki öðlast gildi, þar sem Ísland hefur ekki aflétt stjórnskipulegum fyrirvara, og tilskipunin hefur ekki verið innleidd í íslensk lög. Hún veitir því ekki rétt hér á landi að svo stöddu. Upplýsingar um stöðuna eru á EEA-Lex-vef EFTA.