Til­kynn­ing veik­inda, lækn­is­vott­orð og per­sónu­vernd

Starfsfólki ber að tilkynna veikindi strax. Reglur um læknisvottorð eru ólíkar eftir vinnumarkaði, en vinnuveitandi á almennt rétt á upplýsingum um óvinnufærni, ekki um sjúkdómsgreiningu.

Hvenær og hvernig á ég að tilkynna veikindi?

Tilkynntu yfirmanni eða þeim sem vinnustaðurinn tilgreinir um óvinnufærni vegna veikinda eða slyss strax, helst áður en vinnudagur hefst. Kjarasamningur SA og aðildarfélaga BHM kveður á um tilkynningu í upphafi vinnudags. Kjarasamningar við ríki og sveitarfélög kveða á um tilkynningu án tafar. Fylgdu reglum vinnustaðarins um hvert og hvernig skuli tilkynna.

Vanræki starfsmaður tilkynningarskyldu getur það leitt til þess að fjarvera teljist óréttmæt og laun falli niður fyrir þá daga. Ítrekuð vanræksla getur einnig haft afleiðingar fyrir ráðningarsambandið.

Þarf ég að skila læknisvottorði?

Reglurnar eru ólíkar eftir vinnumarkaði:

  • Ríki, sveitarfélög og Reykjavíkurborg: Komi starfsmaður ekki til vinnu vegna veikinda eða slyss í meira en fimm vinnudaga samfleytt skal hann sanna óvinnufærni með læknisvottorði. Við endurteknar fjarvistir getur forstöðumaður ákveðið að vottorðs sé krafist fyrr (grein 12.1.2 í kjarasamningum við ríki og sveitarfélög).
  • Almennur vinnumarkaður (SA og BHM): Vinnuveitandi ákveður hvort og hvenær læknisvottorðs er krafist.

Vinnuveitandi greiðir kostnað af læknisvottorðum sem hann krefst, þar á meðal viðtal hjá lækni vegna vottorðsins.

Hvaða upplýsingar má vinnuveitandi fá um veikindi mín?

Heilsufarsupplýsingar eru viðkvæmar persónuupplýsingar samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Vinnuveitandi má aðeins vinna með þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að gæta réttinda og skyldna samkvæmt ráðningarsambandinu.

  • Vinnuveitandi á rétt á upplýsingum um að þú sért óvinnufær og hversu lengi líklegt er að óvinnufærnin vari.
  • Þér er ekki skylt að greina vinnuveitanda frá sjúkdómsgreiningu. Venjuleg læknisvottorð um óvinnufærni tilgreina hana ekki.
  • Sé vottorð um starfshæfni lagt fram getur það tilgreint hvaða aðlögun er þörf, án þess að sjúkdómur sé nefndur.
  • Upplýsingar um heilsufar skal varðveita með öruggum hætti og aðgangur að þeim skal vera takmarkaður við þá sem þurfa á þeim að halda.

Nánar er fjallað um persónuvernd á vinnustað í kaflanum Persónuvernd.

Hvert er hlutverk trúnaðarlæknis?

Kjarasamningar heimila vinnuveitanda að krefjast vottorðs trúnaðarlæknis um óvinnufærni, svo og um starfshæfni við endurkomu og um varanlega óvinnufærni. Trúnaðarlæknir starfar fyrir vinnuveitandann en er bundinn þagnarskyldu um heilsufarsupplýsingar. Hann á að jafnaði einungis að upplýsa vinnuveitanda um hvort fjarvist sé réttmæt og hver starfsgetan er, ekki um sjúkdómsgreiningu.

Kjarasamningur SA og aðildarfélaga BHM kveður á um að starfsmanni sé skylt að gangast undir venjulega læknisskoðun sem trúnaðarlæknir telur nauðsynlega til að skera úr um réttmæti forfalla. Kjarasamningar opinberra starfsmanna kveða á um rétt vinnuveitanda til vottorðs trúnaðarlæknis, en ekki sjálfkrafa um skyldu starfsmanns til að mæta til skoðunar eða viðtals. Réttur til friðhelgi einkalífs og réttur sjúklinga til að velja sér lækni takmarka hvaða kröfur vinnuveitandi getur gert.

Ef trúnaðarlæknir telur sér ekki fært að staðfesta óvinnufærni án þess að ræða við starfsmann og starfsmaður hafnar því getur það leitt til þess að fjarvera teljist ekki réttmæt. Leitaðu ráðgjafar hjá aðildarfélagi þínu ef þú ert boðaður eða boðuð til trúnaðarlæknis.

Vottorð og reglur heilbrigðisstarfsfólks

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn skal sýna varkárni og nákvæmni við útgáfu vottorða og votta það eitt sem viðkomandi veit sönnur á. Nánari reglur eru í reglugerð nr. 82/2025 um vottorð, álitsgerðir, faglegar yfirlýsingar og skýrslur heilbrigðisstarfsmanna.

Heimildir og tengt efni

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt