Veik­indi og or­lof

Veikindi eiga ekki að eyða orlofi. Sá sem veikist fyrir orlof eða í orlofi getur átt rétt á að taka orlofið síðar, að uppfylltum skilyrðum um tilkynningu og læknisvottorð.

Í stuttu máli

  • Veikindi áður en orlof hefst: Getir þú ekki farið í orlof á ákveðnum tíma vegna veikinda og sannar það með læknisvottorði getur þú krafist þess að taka orlofið á öðrum tíma (6. gr. laga nr. 30/1987 um orlof). Á meðan nýtur þú launa samkvæmt veikindarétti.
  • Veikindi í orlofi: Samkvæmt kjarasamningum teljast veikindadagar í orlofi ekki til orlofs ef þú tilkynnir atvinnurekanda strax og sannar veikindin með læknisvottorði. Skilyrðin eru ólík eftir kjarasamningum.
  • Ávinnsla: Tími sem þú ert frá vinnu vegna veikinda eða slysa telst til vinnutíma við ávinnslu orlofs (3. gr. orlofslaga).
  • Langvarandi veikindi: Réttur til orlofs fellur ekki niður af þeirri ástæðu einni að starfsmaður gat ekki tekið orlof vegna veikinda.

Ítarleg umfjöllun um reglur kjarasamninga, EES-rétt og langvarandi veikindi er á síðunni Veikindi og orlof í kaflanum Orlofsréttur.

Sjá einnig Tilkynning veikinda, læknisvottorð og persónuvernd.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt