Um BHM
BHM eru heildarsamtök 23 aðildarfélaga. Í aðildarfélögunum eru yfir 19 þúsund félagar með margvíslegan bakgrunn og sérfræðiþekkingu sem starfa á öllum sviðum samfélagsins. Í krafti fjöldans og fjölbreytninnar stendur BHM vörð um mikilvægi hugvits, sérfræðikunnáttu og menntunar.

Hinsegin vottun BHM
BHM hlaut Hinsegin vottun Samtakanna '78 fyrir tímabilið 2025-2027. Vottunin staðfestir að unnið hafi verið markvisst að því að skapa öruggt, aðgengilegt og inngildandi starfsumhverfi þar sem mannréttindi, virðing og fjölbreytileiki eru höfð að leiðarljósi.
Samkvæmt Samtökunum '78 er vottunin veitt þeim vinnustöðum sem uppfylla skilyrði um fræðslu, stefnu og verklag sem stuðlar að jafnrétti og þátttöku hinsegin fólks.
Fyrir BHM er Hinsegin vottun ekki aðeins viðurkenning á því sem þegar hefur verið gert heldur einnig hvatning til áframhaldandi vinnu.
Ertu að útskrifast úr háskóla?
Öll með háskólamenntun eða sambærilega sérfræðikunnáttu eru hjartanlega velkomin í aðildarfélög BHM.
Það skiptir miklu máli að vera í góðu stéttar- eða fagfélagi sem gætir þinna hagsmuna.
Innan BHM eru 23 aðildarfélög, hverju þeirra tilheyrir þú?

Þjónustan í tölum
BHM kappkostar við að veita félögum sem besta þjónustu í gegnum þjónustuverið

Fyrir fjölmiðla
Við leggjum áherslu á að svara spurningum og fyrirspurnum fjölmiðla hratt og örugglega. Hér er hægt að nálgast merki BHM og myndir af formanni sem geta nýst vel í umfjöllun um bandalagið.





