Veik­inda­rétt­ur á al­menn­um vinnu­mark­aði

Á almennum vinnumarkaði tryggja lög lágmarksrétt til launa í veikindum. Kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga BHM veitir ríkari rétt: tvo daga fyrir hvern unninn mánuð á fyrsta ári og tvo til sex mánuði eftir það.

Lög og kjarasamningur

Lög nr. 19/1979 tryggja launafólki lágmarksrétt: tvo daga á launum fyrir hvern unninn mánuð á fyrsta starfsári og einn mánuð eftir eins árs samfellt starf hjá sama atvinnurekanda. Réttindi samkvæmt kjarasamningi eða ráðningarsamningi halda gildi sínu þegar þau eru hagstæðari en lögin.

Kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins (SA) og aðildarfélaga BHM, sem gildir frá 1. maí 2025, veitir ríkari rétt og er fjallað um hann í 4. kafla samningsins. Starfir þú eftir öðrum kjarasamningi geta reglurnar verið aðrar.

Hversu lengi á ég rétt á veikindalaunum?

Rétturinn ræðst af starfstíma hjá sama vinnuveitanda (grein 4.3):

  • Á fyrsta ári: tveir dagar fyrir hvern unninn mánuð
  • Eftir 1 ár: 2 mánuðir á hverjum 12 mánuðum
  • Eftir 5 ár: 4 mánuðir á hverjum 12 mánuðum
  • Eftir 10 ár: 6 mánuðir á hverjum 12 mánuðum

Skiptir þú um vinnustað eftir að hafa áunnið þér fjögurra eða sex mánaða rétt hjá síðasta vinnuveitanda áttu rétt á launum í að minnsta kosti tvo mánuði á hverjum 12 mánuðum hjá nýjum vinnuveitanda.

Fæðingarorlof telst til starfstíma við mat á veikindarétti samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof.

Hvernig reiknast veikindarétturinn?

Veikindarétturinn er heildarréttur á hverju 12 mánaða tímabili, óháð tegund sjúkdóms. Þegar þú veikist er litið til þess hve margir veikindadagar hafa verið greiddir á síðustu 12 launamánuðum og þeir dregnir frá áunnum rétti. Launalaus tímabil teljast ekki með.

Hvaða laun eru greidd í veikindum?

Greidd eru föst laun (grein 4.4):

  • Föst laun eru dagvinnulaun auk fastrar og reglubundinnar yfirvinnu. Yfirvinna telst föst og reglubundin hafi hún verið samfelld síðustu fjóra mánuði.
  • Dagvinnulaun eru föst laun fyrir vinnu á dagvinnutímabili ásamt föstum aukagreiðslum, öðrum en kostnaðargreiðslum.

Laun greiðast ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa, sem skiptir máli í tímabundinni ráðningu og við starfslok.

Vinnuslys og atvinnusjúkdómar

Vegna vinnuslyss eða atvinnusjúkdóms greiðir vinnuveitandi að auki laun fyrir dagvinnu í allt að þrjá mánuði (grein 4.2.2).

Hlutaveikindi

Í kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM er ekki ákvæði um hlutaveikindi. Endurkoma í skert starf eftir veikindi byggist því á samkomulagi við vinnuveitanda.

Forföll af óviðráðanlegum ástæðum

Þú átt rétt á leyfi frá störfum þegar um óviðráðanlegar og brýnar fjölskylduástæður er að ræða vegna sjúkdóms eða slyss sem krefst tafarlausrar nærveru þinnar (grein 4.7.1). Leyfið er ólaunað nema um veikindi barna sé að ræða.

Heimildir og tengt efni

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt