Hvað geri ég ef mér er sagt upp?

Hér er minnislisti fyrir þá sem hafa fengið uppsögn. Frestir eru stuttir og því skiptir máli að bregðast fljótt við.

Fyrstu skrefin

  1. Lestu uppsagnarbréfið vel. Athugaðu hvenær uppsögnin tekur gildi, hve langur uppsagnarfresturinn er og hvort óskað er eftir vinnuframlagi á uppsagnarfresti.
  2. Skrifaðu ekki undir neitt annað en staðfestingu á móttöku fyrr en þú hefur kynnt þér efnið.
  3. Hafðu samband við aðildarfélagið þitt sem fyrst.

Gættu frestanna

  • Ríki og sveitarfélög: Óskaðu skriflega eftir rökstuðningi fyrir uppsögn innan 14 daga. Sjá Ríkið og Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög.
  • Almennur vinnumarkaður: Óskaðu eftir viðtali um ástæður uppsagnar innan fjögurra sólarhringa frá móttöku uppsagnar. Sjá Almennur vinnumarkaður.
  • Ef þú telur að uppsögnin tengist meðgöngu, fæðingarorlofi, störfum sem trúnaðarmaður eða annarri lögbundinni vernd, sjá Uppsagnarvernd.

Á uppsagnarfresti

  • Þú heldur launum og réttindum út uppsagnarfrestinn, hvort sem óskað er eftir vinnuframlagi eða ekki.
  • Veikist þú á uppsagnarfresti gilda almennar reglur um veikindarétt. Sjá Veikindaréttur – sameiginlegar reglur.
  • Ef þú vilt hætta fyrr skaltu gera um það skriflegt samkomulag.

Lokauppgjör

Starfslokasamningur

Ef þér er boðinn starfslokasamningur skaltu ekki skrifa undir fyrr en þú hefur fengið ráðgjöf. Sjá Starfslokasamningar.

Atvinnuleysisbætur og sjóðir

  • Skráðu þig hjá Vinnumálastofnun þegar ráðningu lýkur, ef þú hefur ekki fengið annað starf.
  • Þú getur óskað eftir að greiða áfram félagsgjald af atvinnuleysisbótum og haldið þannig aðild að stéttarfélagi og réttindum í sjóðum.

Ef ég tel uppsögnina ólögmæta

  • Hjá ríki og sveitarfélögum má bera málið undir umboðsmann Alþingis eða dómstóla.
  • Á almennum vinnumarkaði getur ágreiningur um túlkun kjarasamnings farið fyrir Félagsdóm en kröfur um bætur fyrir almenna dómstóla.
  • Aðildarfélagið metur stöðu þína og getur gætt hagsmuna þinna. Sjá einnig Réttarúrræði.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt