Við­ur­kenn­ing starfs­rétt­inda

Prófgráða eða starfsleyfi frá einu EES-ríki veitir ekki sjálfkrafa rétt til að gegna lögvernduðu starfi í öðru. EES-reglur tryggja þó að umsókn sé metin eftir samræmdum reglum, og fyrir sumar stéttir er viðurkenningin sjálfvirk.

Gildir um: ESB/EES-ríki og Sviss (tilskipun 2005/36/EB) · Norðurlönd (auk þess norrænir samningar fyrir tilteknar stéttir) · Bretland og önnur ríki: sérreglur, sjá hér að neðan.

Þarf ég viðurkenningu?

Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa, en því frelsi má setja skorður með lögum ef almannahagsmunir krefjast (75. gr. stjórnarskrárinnar). Viðurkenningu þarf aðeins ef starfið er lögverndað í því ríki þar sem þú ætlar að starfa.

  • Lögvernduð starfsemi: Aðeins þeir sem hafa leyfi mega sinna starfinu. Dæmi á Íslandi: löggiltar heilbrigðisstéttir og lögmenn.
  • Lögverndað starfsheiti: Aðeins þeir sem hafa leyfi mega nota heitið, en starfið sjálft er öllum opið. Dæmi á Íslandi: bókasafns- og upplýsingafræðingar (lög nr. 97/1984).
  • Ekki lögverndað: Engin viðurkenning nauðsynleg; atvinnurekandi metur menntun og hæfni. Dæmi á Íslandi: viðskiptafræðingar og hagfræðingar (lögverndun afnumin með lögum nr. 27/2021) og lögfræðingar.

Viðurkenning starfsréttinda er annað en akademískt mat á námi. Akademískt mat staðfestir hvaða gráðu nám jafngildir en veitir ekki rétt til að starfa í lögvernduðu starfi.

Framkvæmdastjórn ESB heldur gagnagrunn yfir lögvernduð störf í hverju EES-ríki.

Lagagrundvöllur viðurkenningar

Tilskipun 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með breytingum samkvæmt tilskipun 2013/55/ESB, er innleidd með lögum nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið fer með málaflokkinn.

Nánari reglur eru í reglugerðum: nr. 477/2020 (almennar reglur), nr. 510/2020 (heilbrigðisstarfsmenn) og nr. 585/2011 (löggiltar iðngreinar). Umsókn er alltaf beint til þess stjórnvalds sem veitir leyfi fyrir viðkomandi starf.

Með lögum nr. 79/2025 var innleidd tilskipun (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun. Hún leggur skyldur á stjórnvöld áður en þau setja nýjar reglur um lögverndun, en breytir ekki umsóknarferli einstaklinga.

Þrjár leiðir til viðurkenningar

  1. Sjálfvirk viðurkenning. Fyrir stéttir þar sem lágmarkskröfur um menntun eru samræmdar á EES-svæðinu er viðurkenning sjálfvirk. Það á við um lækna, hjúkrunarfræðinga, ljósmæður, tannlækna, lyfjafræðinga, dýralækna og arkitekta. Innan BHM á þetta meðal annars við um tannlækna, ljósmæður og dýralækna.
  2. Viðurkenning á grundvelli starfsreynslu. Á við um tilteknar iðn- og verslunargreinar.
  3. Almenna kerfið. Fyrir aðrar lögverndaðar stéttir er menntun þín borin saman við þær kröfur sem gerðar eru í móttökuríkinu. Innan BHM á þetta meðal annars við um sálfræðinga, félagsráðgjafa, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, geislafræðinga, lífeindafræðinga og þroskaþjálfa.

Ef menntun þín er verulega frábrugðin því sem krafist er getur stjórnvald krafist uppbótarráðstafana: aðlögunartíma í allt að þrjú ár eða hæfnisprófs. Meginreglan er að umsækjandi velji á milli þeirra.

Í vissum tilvikum er unnt að fá takmarkaða viðurkenningu, það er aðgang að hluta lögverndaðs starfs, þegar munur á störfum ríkjanna er of mikill til að uppbótarráðstafanir dugi.

Tímabundin þjónusta í öðru ríki

Sem staðfestur sérfræðingur í einu EES-ríki geturðu veitt þjónustu í öðru ríki tímabundið og stöku sinnum án fullrar viðurkenningar. Móttökuríkið getur krafist fyrirfram yfirlýsingar og, í störfum sem varða heilsu eða öryggi almennings, kannað menntun þína fyrir fram. Um heilbrigðisstarfsmenn gildir V. kafli reglugerðar nr. 510/2020.

Evrópskt fagskírteini

Evrópskt fagskírteini (EPC) er rafrænt umsóknarferli, ekki raunverulegt skírteini. Það býst nú hjúkrunarfræðingum, sjúkraþjálfurum, lyfjafræðingum, fasteignasölum og fjallaleiðsögumönnum. Umsókn fer í gegnum vef framkvæmdastjórnar ESB.

Heilbrigðisstéttir

Embætti landlæknis veitir starfsleyfi heilbrigðisstétta samkvæmt lögum nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn. Sá einn sem hefur leyfi landlæknis má nota starfsheiti löggiltrar heilbrigðisstéttar og starfa sem heilbrigðisstarfsmaður.

  • Menntun frá öðru EES-ríki eða Sviss. Um umsóknina gildir reglugerð nr. 510/2020. III. kafli fjallar um sjálfvirka viðurkenningu og IV. kafli um almenna kerfið. Um uppbótarráðstafanir, aðlögunartíma og hæfnispróf gilda 24.–26. gr.
  • Tungumálakunnátta. Starfsleyfi er veitt á grundvelli menntunar. Kanna má tungumálakunnáttu sérstaklega þegar starfið varðar öryggi sjúklinga. Sjá Tungumálakunnátta.
  • Norðurlönd, Færeyjar og Grænland. EES-reglur gilda ekki í Færeyjum og á Grænlandi. Endurskoðaður Norðurlandasamningur um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir tilteknar heilbrigðisstéttir og dýralækna (Arjeplog-samningurinn), sem tók gildi 1. febrúar 2020, nær til tiltekinna stétta sem eru menntaðar þar.
  • Menntun utan EES. Sérstakar reglur gilda. Heimilt er að krefjast þess að umsækjandi kunni íslensku og þekki íslenska heilbrigðislöggjöf, þegar það er talið nauðsynlegt vegna öryggis og samskipta.

Aðildarfélög BHM veita ekki formlega umsögn um einstök mál, en veita félagsfólki almennar upplýsingar um reglurnar.

Akademískt mat

ENIC/NARIC-skrifstofa Íslands, sem rekin er innan Háskóla Íslands, sinnir akademísku mati á erlendu námi og veitir upplýsingar um prófgráður og menntakerfi. Skrifstofan veitir ekki starfsleyfi. Hún tekur einnig við umsóknum um mat á erlendu iðnnámi.

Menntun frá Bretlandi og ríkjum utan EES

Tilskipun 2005/36/EB gildir ekki um menntun sem aflað var utan EES. Umsókn þeirra sem falla ekki undir tilskipunina eða norræna samninga er beint til ráðuneytisins nema öðru stjórnvaldi sé falið málið með lögum (lög nr. 26/2010). Fyrir heilbrigðisstéttir fer landlæknir með málið.

Ef EES-ríki hefur þegar viðurkennt menntun frá þriðja ríki og þú hefur starfað þar í starfsgreininni í að minnsta kosti þrjú ár, geturðu byggð á þeirri viðurkenningu í öðru EES-ríki.

Bretland telst ríki utan EES í þessu tilliti frá 1. janúar 2021. Viðurkenningar sem fengust fyrir þann tíma halda gildi sínu.

Frestir og kæruleiðir

Samkvæmt tilskipuninni skal stjórnvald staðfesta móttöku umsóknar innan mánaðar og taka ákvörðun innan þriggja mánaða frá því að umsókn er fullbúin. Fresturinn má framlengjast um einn mánuð í almenna kerfinu.

Synjun eða krafa um uppbótarráðstafanir er stjórnvaldsákvörðun sem þú átt rétt á að fá rökstudda. Hana má að jafnaði kæra til æðra stjórnvalds. Ef þig grunar að brotin séu réttindi samkvæmt EES-rétti geturðu leitað til SOLVIT.

Lagagrundvöllur

  • Tilskipun 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með breytingum samkvæmt tilskipun 2013/55/ESB
  • Tilskipun (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun
  • Lög nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, sbr. lög nr. 79/2025
  • Lög nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn
  • Reglugerðir nr. 477/2020, 510/2020 og 585/2011
  • Arjeplog-samningurinn, endurskoðaður 2020

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt