Frjáls för launa­fólks og jafn­ræði

Ríkisborgarar EES-ríkja mega leita sér að starfi, starfa og búa í öðru EES-ríki án atvinnuleyfis. Þeir eiga rétt á sömu meðferð og heimamenn í öllu sem varðar ráðningu, laun og starfskjör.

Frjáls för launafólks er ein af grunnstoðum EES-samningsins (28. gr.). Hún veitir ríkisborgurum EES-ríkjanna rétt til að leita sér að starfi, ráða sig til starfa og búa í öðru EES-ríki á sömu forsendum og ríkisborgarar þess.

Reglugerð (ESB) nr. 492/2011 um frjálsa för launafólks útfærir réttinn nánar og hefur lagagildi hér á landi samkvæmt lögum nr. 105/2014. Um dvalarrétt gildir tilskipun 2004/38/EB, sem innleidd er með lögum nr. 80/2016 um útlendinga.

Sömu reglur gilda um ríkisborgara Sviss á grundvelli EFTA-samningsins. Um ríkisborgara Norðurlanda gilda auk þess norrænir samningar um sameiginlegan vinnumarkað.

Hver telst launamaður?

Hugtakið launamaður hefur sjálfstæða merkingu í EES-rétti. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er það hver sá sem innir af hendi raunveruleg og virk störf í þágu annars, undir stjórn hans, gegn endurgjaldi (mál 66/85 Lawrie-Blum). Hlutastörf og tímabundin störf geta fallið hér undir.

Sjálfstætt starfandi einstaklingar njóta ekki réttinda samkvæmt þessum reglum. Um þá gilda reglur EES-samningsins um staðfesturétt og þjónustufrelsi (31. og 36. gr.).

Atvinnuleit og dvöl

  • Fyrstu þrír mánuðirnir. EES-borgari má dvelja í öðru EES-ríki í allt að þrjá mánuði án skilyrða.
  • Atvinnuleit. Atvinnuleitanda má ekki vísa úr landi á meðan hann leitar raunverulega að starfi og á raunhæfa möguleika á að fá það (mál C-292/89 Antonissen).
  • Starf. Launamaður á rétt til dvalar svo lengi sem hann starfar. Á Íslandi skrá EES- og EFTA-borgarar sig hjá Þjóðskrá ef dvölin er lengri en þrír mánuðir.
  • Atvinnumissir. Launamaður heldur stöðu sinni sem slíkur við tiltekin skilyrði, til dæmis ef hann verður óvinnufær vegna veikinda eða slyss, eða missir starf og skráir sig í atvinnuleit.
  • Ótímabundinn dvalarréttur. Eftir fimm ára samfellda löglega dvöl öðlast EES-borgari og fjölskylda hans ótímabundinn dvalarrétt.

Réttur til jafnrar meðferðar

Óheimilt er að mismuna launafólki frá öðrum EES-ríkjum vegna ríkisfangs. Bannið nær bæði til beinnar og óbeinnar mismununar. Óbein mismunun felst í skilyrðum sem virðast hlutlaus en koma í raun verr niður á ríkisborgurum annarra ríkja, til dæmis kröfu um búsetu eða próf frá tilteknu landi.

Samkvæmt reglugerð nr. 492/2011 á launafólk frá öðrum EES-ríkjum rétt á sömu meðferð og heimamenn varðandi:

  • aðgang að störfum og ráðningu (1.–6. gr.),
  • laun, uppsögn og önnur starfskjör (1. mgr. 7. gr.),
  • félagsleg og skattaleg fríðindi (2. mgr. 7. gr.),
  • starfsmenntun og endurmenntun (3. mgr. 7. gr.),
  • aðild að stéttarfélögum og kjör í trúnaðarstörf (8. gr.),
  • húsnæði (9. gr.).

Ákvæði í kjarasamningum, ráðningarsamningum og öðrum reglum sem mismuna launafólki frá öðrum EES-ríkjum eru ógild (4. mgr. 7. gr.).

Atvinnurekanda er óheimilt að láta starfsmann sæta óhagræði fyrir að leita réttar síns samkvæmt þessum reglum (2. gr. a laga nr. 105/2014).

Starfsreynsla frá öðrum EES-ríkjum

Þegar laun eða framgangur ráðast af starfsaldri verður að meta sambærilega starfsreynslu í öðru EES-ríki á sama hátt og starfsreynslu hér á landi. Þetta á einnig við um opinbera vinnuveitendur (mál C-15/96 Schöning-Kougebetopoulou og C-224/01 Köbler).

Þetta skiptir miklu fyrir háskólamenntað starfsfólk, til dæmis við röðun í launaflokka samkvæmt kjarasamningum. Ef starfsreynsla erlendis er ekki metin getur verið tilefni til að leita til aðildarfélagsins.

Fjölskyldan

Maki, sambúðarmaki, börn yngri en 21 árs og aðrir aðstandendur á framfæri eiga afleiddan rétt til dvalar og atvinnu, óháð eigin ríkisfangi. Börn launafólks eiga rétt á menntun á sömu forsendum og börn heimamanna (10. gr. reglugerðar nr. 492/2011). Sjá einnig Starfsfólk frá ríkjum utan EES.

Takmarkanir

Réttinum til frjálsrar farar má aðeins setja skorður af ástæðum sem varða allsherjarreglu, almannaöryggi eða almannaheilbrigði (3. mgr. 28. gr.). Slíkar takmarkanir verða að byggjast á háttsemi viðkomandi sjálfs og vera í samræmi við meðalhóf.

Störf í opinberri þjónustu sem fela í sér beitingu opinbers valds geta verið undanþegin (4. mgr. 28. gr.). Undantekningin er túlkuð þröngt. Sjá Opinber störf og ríkisfang.

Kröfur um tungumálakunnáttu eru heimilar ef þær leiða af eðli starfsins, sjá Tungumálakunnátta. Um lögvernduð störf gilda sérstakar reglur, sjá Viðurkenning starfsréttinda.

Hvert leita ég?

  • Aðildarfélög BHM veita félagsfólki ráðgjöf og aðstoð við að gera réttindi gildandi gagnvart atvinnurekanda.
  • SOLVIT leysir mál þar sem stjórnvald í EES-ríki beitir EES-reglum ranglega, án endurgjalds og utan dómstóla.
  • EFTA-eftirlitsstofnunin (ESA) tekur við kvörtunum um að Ísland, Noregur eða Liechtenstein framfylgi ekki EES-reglum. Kvörtun leiðir ekki til bindandi úrlausnar í einstöku máli.
  • Dómstólar skera úr ágreiningi um réttindi í einstökum málum og geta leitað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins.
  • EURES, evrópsk vinnumiðlun sem Vinnumálastofnun annast hér á landi, veitir upplýsingar um störf og starfsskilyrði í öðrum EES-ríkjum.

Lagagrundvöllur

  • 28. gr. EES-samningsins
  • Reglugerð (ESB) nr. 492/2011 um frjálsa för launafólks, sbr. lög nr. 105/2014 um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins
  • Tilskipun 2004/38/EB um rétt borgara til frjálsrar farar og dvalar, sbr. lög nr. 80/2016 um útlendinga
  • Tilskipun 2014/54/ESB, sbr. 4. gr. a laga nr. 105/2014

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt