Ef rétt­ur er brot­inn – hvert leita ég?

Hvert þú leitar ræðst af því hver braut á þér: atvinnurekandi, íslenskt stjórnvald eða stjórnvald í öðru EES-ríki. Hér er yfirlit yfir úrræðin, eðli þeirra og helstu fresti.

Þegar réttur er brotinn skiptir máli hver braut hann: atvinnurekandi, stjórnvald á Íslandi eða stjórnvald í öðru EES-ríki. Úrræðin eru ólík eftir því. Sum leiða til bindandi niðurstöðu en önnur fela fyrst og fremst í sér ráðgjöf, sáttaumleitun eða eftirlit.

Fyrsta skrefið: aðildarfélagið

Aðildarfélög BHM veita félagsfólki ráðgjöf, aðstoða við samskipti við atvinnurekanda og stjórnvöld og geta rekið mál fyrir hönd félagsfólks. Leitaðu til félagsins sem fyrst, því frestir geta verið stuttir.

Ágreiningur við atvinnurekanda

  • Trúnaðarmaður og aðildarfélag eru fyrsti viðkomustaður. Mörg mál leysast með samtali eða kröfubréfi.
  • Almennir dómstólar skera úr ágreiningi um ráðningarsamning og launakröfur. Sjá Hvaða lög gilda um ráðningarsamninginn? um lagaval og lögsögu.
  • Félagsdómur dæmir í málum um brot á kjarasamningum og skilning á þeim. Stéttarfélagið rekur málið.
  • Kærunefnd jafnréttismála fjallar um kærur vegna mismununar á vinnumarkaði, meðal annars vegna þjóðernisuppruna. Kærufrestur er sex mánuðir.
  • Opinberir vinnuveitendur. Ákvarðanir ríkis og sveitarfélaga um ráðningu og starfslok eru stjórnvaldsákvarðanir og um þær gilda stjórnsýslulög. Unnt er að kvarta til umboðsmanns Alþingis.

Ákvarðanir íslenskra stjórnvalda

Ákvarðanir stjórnvalda má í flestum tilvikum kæra til æðra stjórnvalds eða sjálfstæðrar úrskurðarnefndar. Kæruleið og kærufrestur eiga að koma fram í ákvörðuninni.

  • Tryggingastofnun, Sjúkratryggingar Íslands og Vinnumálastofnun. Ákvarðanir um bætur og tryggingar má kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála innan þriggja mánaða.
  • Útlendingastofnun. Ákvarðanir um dvalar- og atvinnuleyfi má kæra til kærunefndar útlendingamála.
  • Viðurkenning starfsréttinda. Um kæruleiðir, sjá Viðurkenning starfsréttinda.
  • Umboðsmaður Alþingis tekur við kvörtunum vegna stjórnvalda þegar kæruleiðir hafa verið tæmdar. Kvörtun skal að jafnaði berast innan árs.

Brot á EES-rétti

Ef stjórnvald á Íslandi eða í öðru EES-ríki beitir EES-reglum ranglega, til dæmis um frjálsa för, viðurkenningu starfsréttinda eða almannatryggingar, eru fleiri leiðir færar. Þær eru ólíkar að eðli:

  • SOLVIT er net miðstöðva í stjórnsýslu EES-ríkjanna sem leitar skjótra og óformlegra lausna þegar stjórnvald brýtur gegn EES-réttindum. Málið þarf að varða fleiri en eitt ríki. Flest mál leysast að meðaltali innan níu vikna. Niðurstaðan er ekki bindandi og hindrar ekki að farið sé með málið fyrir dómstóla. Utanríkisráðuneytið veitir upplýsingar um SOLVIT á Íslandi.
  • EFTA-eftirlitsstofnunin (ESA) tekur við kvörtunum um að Ísland, Noregur eða Liechtenstein framfylgi ekki EES-samningnum. Kvörtun er án endurgjalds. ESA getur hafið samningsbrotamál gegn ríkinu, en það leiðir ekki til bindandi niðurstöðu í máli einstaklingsins eða bóta til hans.
  • Dómstólar dæma um réttindi samkvæmt EES-reglum í einstökum málum og geta leitað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um skýringu þeirra (lög nr. 21/1994).
  • Skaðabætur. Ríki getur við tiltekin skilyrði orðið skaðabótaskylt gagnvart einstaklingi sem verður fyrir tjóni vegna þess að EES-reglur hafa ekki verið innleiddar réttilega (mál EFTA-dómstólsins E-9/97 Erla María Sveinbjörnsdóttir).

Upplýsingar og ráðgjöf

  • EURES veitir upplýsingar um störf og starfsskilyrði í öðrum EES-ríkjum. Vinnumálastofnun annast EURES hér á landi.
  • Info Norden veitir upplýsingar um flutning, störf og almannatryggingar milli Norðurlanda.
  • Your Europe er upplýsingavefur ESB um réttindi borgara sem flytja eða starfa milli Evrópuríkja.

Frestir í hnotskurn

  • Kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála: þrrír mánuðir.
  • Kæra til kærunefndar jafnréttismála: sex mánuðir.
  • Kvörtun til umboðsmanns Alþingis: að jafnaði eitt ár.
  • Kæra til kærunefndar útlendingamála og aðrar stjórnsýslukærur: samkvæmt leiðbeiningum í ákvörðuninni.

Frestir til að höfða dómsmál og fyrningarfrestir krafna eru ólíkir eftir eðli máls og þeim lögum sem gilda. Leitaðu ráðgjafar tímanlega.

Lagagrundvöllur

  • Stjórnsýslulög nr. 37/1993
  • Lög nr. 85/1997 um umboðsmann Alþingis
  • Lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála
  • Lög nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála
  • Lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur og lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna
  • Lög nr. 21/1994 um öflun álits EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um Evrópska efnahagssvæðið

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt