- Yfir landamærin
- Frjáls för launafólks og jafnræði
- Viðurkenning starfsréttinda
- Tungumálakunnátta
- Opinber störf og ríkisfang
- Starfsfólk frá ríkjum utan EES
- Hvaða lög gilda um ráðningarsamninginn?
- Útsent starfsfólk
- Fjarvinna og störf í fleiri en einu ríki
- Almannatryggingar milli landa
- Lífeyrir frá fleiri en einu ríki
- Atvinnuleysisbætur og atvinnuleit erlendis
- Sjúkratryggingar og heilbrigðisþjónusta
- Skattar þegar unnið er yfir landamæri
- Ef réttur er brotinn – hvert leita ég?
Ef þú hefur búið eða starfað í fleiri en einu landi getur þú átt rétt á lífeyri frá hverju þeirra. Innan EES tryggir reglugerð (EB) nr. 883/2004 að réttindin glatist ekki við flutning, en hvert ríki greiðir lífeyri samkvæmt eigin reglum. Sjá einnig Almannatryggingar milli landa.
Hér er lýst gildandi reglum og framkvæmd.
Þrjár stoðir lífeyris á Íslandi
- Almannatryggingar. Ellilífeyrir frá Tryggingastofnun ræðst af búsetu á Íslandi. Fullur ellilífeyrir miðast við 40 ára búsetu frá 16 til 67 ára aldurs. Sé búsetan styttri reiknast réttindin hlutfallslega.
- Lífeyrissjóðir. Réttindi í skyldubundnum lífeyrissjóðum ráðast af greiddum iðgjöldum. Þau haldast þótt flutt sé úr landi og falla einnig undir EES-reglurnar.
- Viðbótarlífeyrissparnaður. Séreign sem lýtur eigin reglum um útborgun og fellur ekki undir samhæfingarreglurnar.
Meginreglur innan EES
- Hvert ríki greiðir fyrir sín tímabil. Þú færð lífeyri frá hverju ríki þar sem þú hefur verið tryggð(ur), þegar þú nærð lífeyrisaldri þar. Lífeyrisaldur er ekki sá sami í öllum ríkjum.
- Samlagning tímabila. Ef ríki gerir kröfu um lágmarkstryggingatíma eru tímabil í öðrum EES-ríkjum talin með til að uppfylla hana (6. og 51. gr.).
- Sjálfstæður og hlutfallslegur lífeyrir. Hvert ríki reiknar annars vegar lífeyri eingöngu samkvæmt eigin reglum og hins vegar hlutfallslegan lífeyri miðað við samanlögð tímabil í öllum ríkjunum. Greiddur er sá sem hærri er (52. gr.).
- Stutt tímabil. Ríki þarf almennt ekki að greiða lífeyri vegna tryggingatímabila sem eru samtals styttri en eitt ár, en hin ríkin taka þau þá með í útreikning sinn (57. gr.).
- Greiðsla úr landi. Lífeyrir er greiddur þótt þú búir í öðru EES-ríki.
Samhæfingin felur ekki í sér að lífeyrir sé samræmdur. Fjárhæðir, lífeyrisaldur og skilyrði ráðast áfram af lögum hvers ríkis.
Hvernig sæki ég um?
- Ef þú býrð á Íslandi sækir þú um hjá Tryggingastofnun, sem sendir umsóknina áfram til hinna ríkjanna og til íslenskra lífeyrissjóða þar sem þú átt réttindi.
- Ef þú býrð erlendis sækir þú um hjá tryggingastofnun búsetulandsins, sem sendir umsóknina til Tryggingastofnunar.
- Ákvarðanir. Hvert ríki tekur sjálfstæða ákvörðun og sendir þér niðurstöðu sína. Að lokum færðu yfirlit yfir allar ákvarðanirnar.
Sæktu um tímanlega, því afgreiðsla milli landa getur tekið nokkra mánuði.
Samspil við greiðslur Tryggingastofnunar
Greiðslur frá Tryggingastofnun eru tekjutengdar. Lífeyrir almannatrygginga frá ríkjum sem Ísland hefur gert samninga við telst til tekna við útreikning greiðslna, í samræmi við nánari ákvæði samninganna. Aðrar erlendar lífeyrisgreiðslur geta einnig haft áhrif.
Erlendar tekjur koma ósundurliðaðar fram á skattframtali. Því er mikilvægt að tilgreina allar erlendar lífeyrisgreiðslur í tekjuáætlun til Tryggingastofnunar, svo greiðslur verði réttar og ekki komi til endurkröfu.
Ef þú býrð erlendis og færð lífeyri frá Tryggingastofnun þarftu árlega að skila skattframtali frá búsetulandinu og lífsvottorði.
Utan EES
Ísland hefur gert tvíhliða samninga um almannatryggingar við nokkur ríki utan EES, svo sem Bandaríkin og Kanada. Samningur við Bretland hefur gilt frá 1. janúar 2024. Samningarnir eru ólíkir. Ef enginn samningur er í gildi falla lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun niður við flutning til viðkomandi lands.
Örorkulífeyrir
Sömu meginreglur gilda um örorkulífeyri, en mat á örorku fer fram samkvæmt reglum hvers ríkis og getur orðið ólíkt. Kerfi örorkulífeyris á Íslandi var endurskoðað frá 1. september 2025. Tryggingastofnun veitir nánari upplýsingar.
Hvert leita ég?
- Tryggingastofnun annast ellilífeyri og örorkulífeyri frá Íslandi og umsóknir til annarra EES-ríkja.
- Lífeyrissjóðurinn þinn veitir upplýsingar um réttindi í íslenskum lífeyrissjóðum.
- Aðildarfélög BHM veita félagsfólki ráðgjöf.
- Úrskurðarnefnd velferðarmála tekur við kærum vegna ákvarðana Tryggingastofnunar innan þriggja mánaða. Sjá Ef réttur er brotinn – hvert leita ég?
Lagagrundvöllur
- Reglugerð (EB) nr. 883/2004 um samhæfingu almannatryggingakerfa, einkum 6. gr. og 50.–60. gr., og reglugerð (EB) nr. 987/2009
- Lög nr. 100/2007 um almannatryggingar
- Lög nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða