At­vinnu­leys­is­bæt­ur og at­vinnu­leit er­lend­is

Starfstímabil í öðrum EES-ríkjum geta aukið rétt til atvinnuleysisbóta og hægt er að halda bótum í allt að þrjá mánuði við atvinnuleit í öðru EES-ríki.

Atvinnuleysisbætur eru að jafnaði greiddar af því ríki þar sem þú starfaðir síðast, samkvæmt reglum þess. Reglugerð (EB) nr. 883/2004 tryggir að starfs- og tryggingatímabil í öðrum EES-ríkjum glatist ekki og að hægt sé að leita að starfi í öðru EES-ríki um tíma án þess að missa bætur. Sjá einnig Almannatryggingar milli landa.

Flutningur til Íslands: U1-vottorð

Ef þú hefur starfað í öðru EES-ríki má telja starfs- og tryggingatímabil þar með til að auka rétt þinn til atvinnuleysisbóta á Íslandi. Tímabilin eru staðfest með U1-vottorði, sem stofnanir ríkjanna skiptast oftast á rafrænt.

Skilyrði er að þú hafir starfað á Íslandi eftir komuna til landsins og áður en þú sækir um bætur. Ef þú hefur ekki unnið hér getur Vinnumálastofnun ekki litið til tímabila samkvæmt U1-vottorði. Sérstakar reglur gilda um þá sem flytja frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Noregi eða Svíþjóð.

Flutningur frá Íslandi

Ef þú flytur til annars EES-ríkis og starfar þar getur Vinnumálastofnun staðfest starfstímabil þín á Íslandi með U1-vottorði, svo þau nýtist til bótaréttar í nýja landinu. Stofnunin í því landi óskar yfirleitt eftir vottorðinu rafrænt.

Atvinnuleit í öðru EES-ríki: U2-vottorð

Ef þú átt rétt á atvinnuleysisbótum á Íslandi getur þú haldið þeim í allt að þrjá mánuði meðan þú leitar að starfi í öðru EES-ríki. Helstu skilyrði eru að:

  • þú sért með samþykkta umsókn um atvinnuleysisbætur,
  • þú hafir fengið greiddar bætur á Íslandi samfellt í fjórar vikur fyrir brottför,
  • þú sért ríkisborgari EES-ríkis,
  • þú ætlir í virka atvinnuleit.

Sækja þarf um U2-vottorð að minnsta kosti þremur vikum fyrir brottför. Vottorðið er gefið út til þriggja mánaða og það tímabil er ekki hægt að framlengja. Þú skráir þig hjá vinnumiðlun í hinu ríkinu, sem upplýsir Vinnumálastofnun um hvort þú sért virk(ur) í atvinnuleit.

Þegar þú færð starf í hinu ríkinu þarftu að afskrá þig af atvinnuleysisbótum. Ef þú kemur ekki aftur til Íslands áður en vottorðið rennur út getur þú misst bótaréttinn. Vinnumálastofnun getur ekki fjallað um kvartanir vegna ákvarðana sem teknar eru í öðrum EES-ríkjum.

Á sama hátt getur sá sem fær atvinnuleysisbætur í öðru EES-ríki leitað að starfi á Íslandi með U2-vottorði frá því ríki og skráð sig hjá Vinnumálastofnun.

Landamærastarfsmenn

Sá sem býr í einu ríki en starfar í öðru og fer heim að minnsta kosti einu sinni í viku á rétt á atvinnuleysisbótum í búseturíkinu ef hann missir starfið að fullu (65. gr.).

Hvert leita ég?

  • Vinnumálastofnun annast atvinnuleysisbætur, U1- og U2-vottorð og EURES.
  • Úrskurðarnefnd velferðarmála tekur við kærum vegna ákvarðana Vinnumálastofnunar innan þriggja mánaða. Sjá Ef réttur er brotinn – hvert leita ég?
  • Aðildarfélög BHM veita félagsfólki ráðgjöf.

Lagagrundvöllur

  • Reglugerð (EB) nr. 883/2004 um samhæfingu almannatryggingakerfa, einkum 61.–65. gr., og reglugerð (EB) nr. 987/2009
  • Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt