Tungu­mála­kunn­átta

Heimilt er að gera kröfu um tungumálakunnáttu umsækjenda og starfsfólks þegar slík krafa er nauðsynleg vegna verkefna og eðlis starfsins. Skilyrði um íslenskukunnáttu verða þó ávallt að vera málefnaleg og í samræmi við lögmæt markmið.

Heimilt er að gera kröfur um íslenskukunnáttu

Vinnuveitanda er heimilt að gera kröfu um að starfsmaður eða umsækjandi um starf hafi tiltekna íslenskukunnáttu þegar slík krafa er nauðsynleg vegna eðlis starfsins og þeirra verkefna sem því fylgja. Þetta getur meðal annars átt við þegar starfið felur í sér mikil samskipti við almenning, meðferð mála hjá stjórnvöldum, gerð stjórnvaldsákvarðana, kennslu, skráningu upplýsinga, samskipti við sjúklinga eða önnur verkefni þar sem fullnægjandi tungumálakunnátta er forsenda þess að starfið verði unnið með réttum og öruggum hætti.

Kröfur um íslenskukunnáttu mega þó ekki ganga lengra en nauðsynlegt er. Vinnuveitandi þarf að geta sýnt fram á að krafan eigi sér málefnalega stoð í þeim verkefnum sem fylgja viðkomandi starfi og að það stig tungumálakunnáttu sem krafist er sé í hæfilegu samhengi við þau. Sama á við um hvernig umsækjanda er gert að sýna fram á tungumálakunnáttu sína.

Íslenska er opinbert mál á Íslandi

Samkvæmt lögum nr. 61/2011 um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls er íslenska þjóðtunga Íslendinga og opinbert mál á Íslandi. Í 2. gr. laganna segir að þjóðtungan sé sameiginlegt mál landsmanna og að stjórnvöld skuli tryggja að unnt sé að nota hana á öllum sviðum íslensks þjóðlífs. Jafnframt skulu allir sem búsettir eru hér á landi eiga þess kost að læra og nota íslensku til almennrar þátttöku í íslensku þjóðlífi.

Lögin leggja sérstakar skyldur á ríki og sveitarfélög. Þau bera ábyrgð á að varðveita og efla íslenska tungu og skulu sjá til þess að hún sé notuð. Samkvæmt 8. gr. er íslenska mál Alþingis, dómstóla, stjórnvalda ríkis og sveitarfélaga, skóla á öllum skólastigum og annarra stofnana sem hafa með höndum framkvæmdir og veita almannaþjónustu.

Þessar reglur hafa augljósa þýðingu við mat á tungumálakröfum í opinberum störfum. Starf sem felur til dæmis í sér að semja stjórnvaldsákvarðanir, lögfræðileg skjöl eða önnur opinber gögn eða eiga regluleg samskipti við almenning getur réttlætt kröfu um mjög góða íslenskukunnáttu. Af lögunum verður þó ekki dregin sú ályktun að heimilt sé að gera sömu almennu kröfu um íslenskukunnáttu í öllum opinberum störfum án tillits til verkefna viðkomandi starfs. Meta verður þörfina með hliðsjón af eðli og verkefnum starfsins og öðrum reglum sem gilda um ráðninguna.

EES-réttur og frjáls för launafólks

Ríkisborgarar annarra EES-ríkja njóta réttar til frjálsrar farar launafólks samkvæmt 28. gr. EES-samningsins. Meginreglan er því að íslenskur vinnuveitandi má ekki útiloka umsækjanda frá starfi eða setja honum lakari skilyrði vegna ríkisfangs hans.

Þetta þýðir hins vegar ekki að ríkisborgari annars EES-ríkis eigi rétt á að gegna starfi á Íslandi án þess að hafa þá íslenskukunnáttu sem starfið krefst. EES-réttur heimilar tungumálakröfur sem leiða af eðli starfsins (3. gr. reglugerðar (ESB) nr. 492/2011 um frjálsa för launafólks). Slíkar kröfur verða þó að vera málefnalegar og í samræmi við meðalhóf.

Við matið skiptir því máli hvað starfsmaðurinn þarf í raun að geta gert á íslensku. Starf getur til dæmis kallað á mjög góða munnlega færni en minni skriflega færni, eða öfugt. Ekki ætti að gera meiri kröfur til tungumálakunnáttu en verkefni starfsins réttlæta.

Sama gildir um sönnun tungumálakunnáttu. Varhugavert getur verið að krefjast tiltekins íslensks prófskírteinis eða vottorðs ef umsækjandi getur sýnt fram á sömu færni með öðrum fullnægjandi hætti. Enn fremur væri almennt mun erfiðara að réttlæta kröfu um að íslenska væri móðurmál umsækjanda en kröfu um tiltekna færni í íslensku sem leiðir af starfinu.

Evrópudómstóllinn hefur talið kröfu um kunnáttu í tilteknu tungumáli lögmæta þegar hún er liður í stefnu um að vernda og efla tungumálið og gengur ekki lengra en nauðsynlegt er (mál C-379/87 Groener). Hins vegar er óheimilt að krefjast tiltekins prófskírteinis sem aðeins fæst í viðkomandi ríki ef umsækjandi getur sýnt fram á sambærilega kunnáttu með öðrum hætti (mál C-281/98 Angonese og C-317/14 framkvæmdastjórnin gegn Belgíu).

Opinber störf

Í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 er ekki kveðið á um almenna kröfu um tungumálakunnáttu. Hins vegar er í 6. gr. laganna gerð krafa um almenna menntun og, þegar við á, þá sérmenntun sem lög eða eðli starfs krefjast til að tryggja vandaða og faglega framkvæmd þess.

Sérstök sjónarmið geta átt við um störf hjá ríki og sveitarfélögum vegna stöðu íslensku sem opinbers máls. Því meiri sem tengsl starfs eru við stjórnsýslu, opinbera ákvarðanatöku, samskipti við almenning eða gerð opinberra gagna, þeim mun ríkari málefnalegar ástæður geta staðið til þess að gera kröfu um góða eða mjög góða íslenskukunnáttu.

Ákvæði EES-samningsins um frjálsa för launafólks gilda þó að meginstefnu einnig um störf hjá opinberum aðilum. Undantekning 4. mgr. 28. gr. EES-samningsins um störf í opinberri þjónustu verður ekki túlkuð þannig að öll störf hjá ríki eða sveitarfélögum falli utan reglna um frjálsa för. Því verður almennt ekki réttlætt að útiloka umsækjanda frá öðru EES-ríki frá opinberu starfi eingöngu vegna ríkisfangs eða gera óþarflega strangar tungumálakröfur. Sjá Opinber störf og ríkisfang.

Heilbrigðisstarfsfólk – starfsleyfi og tungumálakunnátta eru aðskilin atriði

Sérstök sjónarmið eiga við um heilbrigðisstarfsfólk. Viðurkenning á faglegri menntun og hæfi eða útgáfa starfsleyfis felur ekki sjálfkrafa í sér að vinnuveitandi verði að telja tungumálakunnáttu starfsmanns fullnægjandi til allra þeirra verkefna sem viðkomandi starfsleyfi nær til.

Krafan um nauðsynlega tungumálakunnáttu kemur fram í lögum nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi og byggist á 53. gr. tilskipunar 2005/36/EB. Gagnvart umsækjendum með menntun utan EES heimila lög nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn að krafist sé kunnáttu í íslensku og þekkingar á íslenskri heilbrigðislöggjöf þegar það er talið nauðsynlegt vegna öryggis og samskipta. Sjá Viðurkenning starfsréttinda.

Samkvæmt reglum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsfólks frá öðrum EES-ríkjum skal heilbrigðisstarfsmaður búa yfir þeirri tungumálakunnáttu sem nauðsynleg er til að geta stundað starfið hér á landi með viðunandi hætti. Heimilt er að kanna tungumálakunnáttu þegar starf varðar öryggi sjúklinga og lýðheilsu og verulegur og hlutlægur vafi er á því hvort tungumálakunnátta viðkomandi sé nægileg. Slík athugun fer fram eftir viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi og skal miðast við það starf sem viðkomandi hyggst sinna.

Vinnuveitandi ber jafnframt ábyrgð á að meta eftir atvikum hvort tungumálakunnátta heilbrigðisstarfsmanns sé nægileg til að tryggja öryggi og hagsmuni sjúklinga. Það getur til dæmis réttlætt sérstakar kröfur þegar starfsmaður sinnir áhættusömum læknis- eða meðferðarúrræðum, þarf að taka þátt í hraðri og nákvæmri munnlegri upplýsingamiðlun innan teymis, gefur fyrirmæli sem varða öryggi sjúklinga, þarf að afla upplýsts samþykkis eða ber ábyrgð á nákvæmri skráningu í sjúkraskrá.

Þótt heilbrigðisstarfsmaður hafi þegar fengið starfsleyfi getur vinnuveitandi því gert málefnalegar kröfur um þá tungumálafærni sem nauðsynleg er vegna tiltekinna verkefna. Slíkar kröfur verða þó að byggjast á raunverulegri þörf vegna starfsins og vera í samræmi við meðalhóf. Ekki er heimilt að nota tungumálakröfur sem óbeina leið til að útiloka starfsmenn frá öðrum EES-ríkjum.

Jafnræði og bann við mismunun

Lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði banna beina og óbeina mismunun, meðal annars vegna þjóðernisuppruna. Bannið nær til ráðninga, launa og annarra starfskjara.

Krafa um íslenskukunnáttu beinist ekki að þjóðerni, en getur komið verr niður á fólki af erlendum uppruna. Hún getur því falið í sér óbeina mismunun nema hún eigi sér málefnalega stoð í starfinu og sé í samræmi við meðalhóf.

Fyrsta málið sem kærunefnd jafnréttismála fjallaði um samkvæmt lögunum, árið 2019, varðaði kröfu um íslenskukunnáttu í starfi sendibílstjóra. Nefndin taldi ekki um brot á lögunum að ræða. Hvert mál ræðst þó af eðli starfsins og þeim kröfum sem gerðar eru.

Hvert leita ég?

  • Kærunefnd jafnréttismála. Ef þú telur að tungumálakrafa feli í sér mismunun geturðu kært til nefndarinnar. Kæran þarf að berast innan sex mánaða frá því að þú fékkst vitneskju um brotið. Bera má úrskurði nefndarinnar undir dómstóla.
  • Jafnréttisstofa veitir upplýsingar og ráðgjöf um lögin.
  • SOLVIT aðstoðar ef stjórnvald í EES-ríki brýtur gegn réttindum þínum samkvæmt EES-rétti, t.d. við viðurkenningu starfsréttinda.
  • Aðildarfélög BHM veita félagsfólki ráðgjöf og geta leitað til kærunefndar fyrir hönd félagsmanna.

Lagagrundvöllur

  • 28. gr. EES-samningsins og 3. gr. reglugerðar (ESB) nr. 492/2011
  • Lög nr. 61/2011 um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls
  • Lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði
  • Lög nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi og 53. gr. tilskipunar 2005/36/EB
  • Lög nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn
  • Lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
  • Lög nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt