- Yfir landamærin
- Frjáls för launafólks og jafnræði
- Viðurkenning starfsréttinda
- Tungumálakunnátta
- Opinber störf og ríkisfang
- Starfsfólk frá ríkjum utan EES
- Hvaða lög gilda um ráðningarsamninginn?
- Útsent starfsfólk
- Fjarvinna og störf í fleiri en einu ríki
- Almannatryggingar milli landa
- Lífeyrir frá fleiri en einu ríki
- Atvinnuleysisbætur og atvinnuleit erlendis
- Sjúkratryggingar og heilbrigðisþjónusta
- Skattar þegar unnið er yfir landamæri
- Ef réttur er brotinn – hvert leita ég?
Skattskylda ræðst af öðrum reglum en vinnuréttur og almannatryggingar. Þótt íslensk lög gildi um ráðningarsamninginn og þú sért almannatryggð(ur) hér getur annað ríki átt rétt til að skattleggja launin, og öfugt.
Hér er stutt yfirlit yfir helstu reglur. Það kemur ekki í stað skattaráðgjafar, og Skatturinn veitir nánari upplýsingar.
Hver er skattskyldur á Íslandi?
- Ótakmörkuð skattskylda. Þeir sem eru heimilisfastir hér á landi eru skattskyldir af öllum tekjum sínum, óháð því hvar þeirra er aflað.
- Dvöl lengur en 183 daga. Sá sem dvelur hér lengur en samtals 183 daga á 12 mánaða tímabili ber einnig ótakmarkaða skattskyldu. Eðlileg fjarvera, svo sem vegna orlofs, telst hluti dvalarinnar.
- Eftir flutning úr landi. Sá sem flytur úr landi en sýnir ekki fram á að hann sé skattskyldur í öðru ríki getur áfram borið ótakmarkaða skattskyldu hér í allt að þrjú ár frá næstu áramótum eftir brottflutning.
- Takmörkuð skattskylda. Þeir sem búa erlendis en hafa tekjur frá Íslandi bera skattskyldu af tekjum sem eiga uppruna hér á landi.
Ríkisskattstjóri úrskurðar um heimilisfesti og miðar þá við reglur um lögheimili eftir því sem við á. Úrskurðinn má kæra til yfirskattanefndar.
Tvísköttunarsamningar
Ísland hefur gert tvísköttunarsamninga við fjölda ríkja, þar á meðal Norðurlandasamninginn. Þeir ákveða hvort ríkið hefur rétt til að skattleggja tilteknar tekjur og hvernig komist er hjá því að sömu tekjur séu skattlagðar tvisvar. Almennt má ríkið þar sem vinnan er unnin skattleggja launin.
Sá sem býr erlendis og fær laun eða lífeyri frá Íslandi getur sótt um lækkun eða undanþágu frá staðgreiðslu samkvæmt tvísköttunarsamningi. Réttur til persónuafsláttar hér ræðst af samningnum við búseturíkið.
Fjarvinna og vinna í fleiri en einu ríki
Fjarvinna frá öðru landi getur leitt til skattskyldu þar, jafnvel þótt launin séu greidd frá Íslandi. Hún getur einnig haft skattalegar afleiðingar fyrir atvinnurekandann. Sjá Fjarvinna og störf í fleiri en einu ríki.
Skattar og almannatryggingar eru aðskilin
A1-vottorð segir til um hvaða ríkis almannatryggingalöggjöf gildir og hvar greiða skal tryggingagjald. Það ræður ekki skattskyldu. Hvar tekjuskattur er greiddur fer eftir skattalögum og tvísköttunarsamningum. Sjá Almannatryggingar milli landa.
Erlendir sérfræðingar á Íslandi
Erlendir sérfræðingar sem flytja til Íslands til starfa geta, að uppfylltum skilyrðum, fengið 25% launa sinna undanþegin tekjuskatti fyrstu þrjú árin í starfi. Sótt er um til Rannís og sérstök nefnd metur hvort skilyrðin séu uppfyllt. Reglan gildir óháð ríkisfangi.
Hvert leita ég?
- Skatturinn veitir upplýsingar um skattskyldu, staðgreiðslu og tvísköttunarsamninga.
- Yfirskattanefnd tekur við kærum vegna úrskurða ríkisskattstjóra.
- Aðildarfélög BHM geta leiðbeint um réttindi tengd ráðningunni en veita ekki skattaráðgjöf.
Lagagrundvöllur
- Lög nr. 90/2003 um tekjuskatt, einkum 1. og 3. gr.
- Lög nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda
- Reglugerð nr. 1202/2016 um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga
- Tvísköttunarsamningar Íslands