- Veikindaréttur
- Veikindaréttur hjá ríki og sveitarfélögum
- Veikindaréttur á almennum vinnumarkaði
- Hvað telst veikindi?
- Tilkynning veikinda, læknisvottorð og persónuvernd
- Veikindi og orlof
- Veikindi, uppsögn og starfslok
- Endurkoma til starfa og hlutaveikindi
- Langvarandi veikindi: þegar veikindaréttur er fullnýttur
- Starfsendurhæfing og VIRK
- Veikindi barna og annarra aðstandenda
- Vinnuslys og atvinnusjúkdómar: laun og tryggingar
Tvö skilyrði: sjúkdómur og óvinnufærni
Lög nr. 19/1979 og kjarasamningar tryggja rétt til launa þegar starfsmaður forfallast frá vinnu vegna sjúkdóms eða slyss. Hvorki lögin né kjarasamningar skilgreina hvað telst sjúkdómur. Í framkvæmd ræður einkum tvennt:
- Óvinnufærni: Starfsmaður verður að vera ófær um að sinna starfi sínu vegna heilsubrests. Það er ekki nóg að vera veikur ef veikindin hindra ekki vinnu.
- Læknisfræðilegur grundvöllur: Heilsubresturinn eða meðferðin þarf að eiga sér læknisfræðilega stoð, sem staðfest er með læknisvottorði þegar þess er krafist.
Rétturinn er heildarréttur á tilteknu tímabili og fer ekki eftir því hvaða sjúkdómur á í hlut.
Gilda sömu reglur um andleg og líkamleg veikindi?
Já. Geðrænir sjúkdómar, svo sem þunglyndi og kvíði, veita sama rétt og líkamlegir sjúkdómar ef þeir valda óvinnufærni. Hæstiréttur hefur staðfest að geðrænir sjúkdómar falli undir sjúkdómshugtakið, sjá til dæmis dóm Hæstaréttar í máli nr. 116/2012. Sá dómur varðaði sjómannalög, en hann styður almenna túlkun á hugtakinu.
Veitir læknismeðferð eða aðgerð rétt til launa?
Fjarvera vegna aðgerðar eða meðferðar veitir rétt til launa ef meðferðin er læknisfræðilega nauðsynleg vegna heilsubrests og leiðir til óvinnufærni. Þá skiptir ekki máli þótt starfsmaður hafi sjálfur ákveðið að gangast undir meðferðina.
Í dómi Hæstaréttar 28. júní 2023 í máli nr. 5/2023 var deilt um rétt trans manns til launa vegna fjarveru eftir brjóstnám. Landsréttur hafði sýknað vinnuveitandann á þeim grundvelli að aðgerðin stafaði ekki af sjúkdómi. Hæstiréttur taldi hins vegar að starfsmaðurinn hefði sannað rétt sinn til launa í veikindaforföllum á grundvelli kjarasamnings. Þar var meðal annars byggt á læknisfræðilegum gögnum um að brjóstnám væri mikilvægur liður í meðferð.
Aðgerðir og meðferðir sem ekki eru læknisfræðilega nauðsynlegar, svo sem fegrunaraðgerðir, veita almennt ekki rétt til veikindalauna. Hið sama gildir að jafnaði um reglubundnar læknis- eða tannlæknisheimsóknir sem ekki valda óvinnufærni. Úr vafatilvikum verður að leysa á grundvelli atvika hverju sinni og þá skiptir læknisfræðilegt mat miklu.
Atvinnusjúkdómar
Atvinnusjúkdómur er sjúkdómur sem orsakast af vinnu eða aðstæðum í starfsumhverfi. Sjúkdómar sem geta talist bótaskyldir atvinnusjúkdómar eru taldir upp í viðauka við reglugerð nr. 390/2023. Óvinnufærni vegna atvinnusjúkdóms getur veitt rétt til viðbótarlauna og bóta úr slysatryggingum. Sjá Vinnuslys og atvinnusjúkdómar: laun og tryggingar og Vinnutengt heilsutjón.
Hvað ef vafi er um rétt minn?
Telji vinnuveitandi að fjarvera falli ekki undir veikindarétt er mikilvægt að afla læknisvottorðs sem lýsir óvinnufærni og tilefni meðferðar. Leitaðu ráðgjafar hjá aðildarfélagi þínu ef ágreiningur kemur upp.