Heilsan í vinnunni
Starfsfólk á rétt á öruggu og heilsusamlegu vinnuumhverfi. Atvinnurekandi ber meginábyrgð á vinnuvernd, en starfsfólk tekur þátt í vinnuverndarstarfinu og ber einnig tilteknar skyldur.

Samkvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum skal atvinnurekandi tryggja að gætt sé fyllsta öryggis og góðs aðbúnaðar og hollustuhátta á vinnustað. Vinnuvernd tekur bæði til líkamlegra þátta vinnuumhverfisins og sálfélagslegra þátta, svo sem vinnuálags, samskipta og skipulags vinnunnar.
Á þessum síðum er fjallað um skyldur atvinnurekanda, réttindi og skyldur starfsfólks og þau úrræði sem standa til boða þegar vinnuumhverfi er ábótavant.
Félagsfólk getur leitað nánari upplýsinga og ráðgjafar hjá sínu aðildarfélagi BHM.