EES-samningurinn tengir saman vinnumarkaði ESB-ríkjanna og EFTA-ríkjanna Íslands, Liechtenstein og Noregs. Hann veitir ríkisborgurum þessara ríkja rétt til að starfa hvar sem er á svæðinu og tryggir að áunnin réttindi glatist ekki við flutning.
Réttindin byggjast þó á ólíkum reglum sem gilda ekki alltaf um sömu ríki. Sami einstaklingur getur til dæmis starfað samkvæmt lögum eins ríkis, verið tryggður í öðru og borið skattskyldu í þriðja. Á þessum síðum er fjallað um hvert svið fyrir sig.
Hvað gildir um hvaða land?
- ESB- og EES-ríki. Frjáls för launafólks, viðurkenning starfsréttinda og samhæfing almannatrygginga gilda til fulls. Liechtenstein hefur þó heimild til að takmarka fjölda dvalarleyfa EES-borgara; starf þar er ekki háð því að búa í landinu.
- Sviss. Sviss er ekki í EES, en flestar sömu reglur gilda samkvæmt samningi ESB og Sviss og, gagnvart Íslandi, samkvæmt EFTA-samningnum.
- Norðurlönd. EES-reglurnar gilda, og norrænir samningar bæta við þær, meðal annars um sameiginlegan vinnumarkað, almannatryggingar og starfsleyfi heilbrigðisstétta. Færeyjar og Grænland eru utan EES.
- Bretland. EES-samningurinn hætti að gilda um Bretland 1. janúar 2021. Sérstakur samningur um almannatryggingar hefur gilt frá 1. janúar 2024, en að öðru leyti gilda almennt sömu reglur og um ríki utan EES.
- Önnur ríki. Ríkisborgarar ríkja utan EES þurfa atvinnu- og dvalarleyfi til að starfa hér. Ísland hefur gert tvíhliða samninga um almannatryggingar við nokkur ríki.
Meginreglur innan EES
- Frjáls för launafólks (28. gr. EES-samningsins). Þú mátt leita þér að starfi og starfa í öðru EES-ríki án atvinnuleyfis. Þú átt rétt á sömu meðferð og ríkisborgarar þess ríkis um ráðningu, laun, starfskjör og félagsleg réttindi.
- Staðfesturéttur og þjónustufrelsi (31. og 36. gr.). Sjálfstætt starfandi sérfræðingar geta sest að og starfað í öðru EES-ríki eða veitt þar þjónustu tímabundið. Starfsfólk sem fyrirtæki sendir tímabundið út vegna þjónustu er í annarri stöðu en launafólk sem flytur sjálft.
- Dvalarréttur. EES-borgari má dvelja í öðru EES-ríki í allt að þrjá mánuði án skilyrða. Lengri dvöl er háð skilyrðum, til dæmis um starf, og skráningu. Á Íslandi skrá EES- og EFTA-borgarar sig hjá Þjóðskrá ef dvölin er lengri en þrír mánuðir. Fjölskyldumeðlimir hafa afleiddan dvalarrétt.
Hvar á ég að byrja?
Aðstoð
Upplýsingarnar á þessum síðum eru almennar og koma ekki í stað ráðgjafar í einstökum málum. Aðildarfélög BHM veita félagsfólki ráðgjöf og aðstoð við að gera réttindi sín gildandi.